Fréttablaðið - 31.01.2014, Blaðsíða 2
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
FJÖLMIÐLAR Fréttablaðinu verður
dreift í um 96 þúsund eintökum
í dag og með því fylgir sérstakt
kynningarblað um Stöð 2. Frétta-
blaðið fer á öll heimili á höfuð-
borgarsvæðinu, Akureyri, Akra-
nesi, Borgarnesi, Stykkishólmi,
Ísafirði, Egilsstöðum, Selfossi,
Hveragerði og Reykjanesbæ.
Stöðvar 2 blaðið fer þó á 120
þúsund heimili um allt land. „Það
eru margar hendur sem koma að
þessu verkefni og við vonumst
til þess að þetta gangi vel, þrátt
fyrir að færðin sé eins og hún
er,“ segir Hannes A. Hannesson,
framkvæmdastjóri Póstdreifing-
ar, sem sér um dreifingu Frétta-
blaðsins. - skó
Kynningarblað fylgir:
Sérstök dreifing
á blaðinu í dag
STJÓRNSÝSLA Matvælastofnun (MAST) hefur ákveðið í
samráði við dýraeftirlitsmann sem starfar hjá stofn-
uninni að hann hverfi tímabundið frá störfum meðan
ásakanir um að hann hafi í nokkrum tilvikum ekki sinnt
skyldum sínum um umhirðu og eftirlit með stóðhesta-
girðingum verða teknar til skoðunar. Þetta kemur fram
í tilkynningu frá MAST.
Starfsmaðurinn var ráðinn um síðustu áramót í stöðu
sérfræðings sem sinnir eftirliti með dýrahaldi ásamt
móttöku og úrvinnslu tilkynninga um illa meðferð dýra.
MAST hafði spurnir af því að haustið 2007 hefðu
verið gerðar athugasemdir við ástand og umhirðu
stóðhests sem tímabundið var í umsjón starfsmanns-
ins. Hesturinn hafi þó ekki orðið fyrir varanlegum
skaða og engin kæra var lögð fram.
Þá hafi nýlega borist upplýsingar um önnur mál sem
tengjast meðal annars umhirðu með stóðhestagirðing-
um á ábyrgð hlutaðeigandi á árunum 2006 og 2009.
Stofnuninni og dýraeftirlitsmanninum þykir því
rétt að fela óháðum aðilum að skoða umrædd mál.
Athugun hefur þegar verið sett í gang og verður málið
tekið til endanlegrar ákvörðunar þegar niðurstöður
liggja fyrir. - þj
SPURNING DAGSINS
Hjá okkur getur þú valið úr 15 tegundum af
mannbroddum allt eftir því hvað þú ætlar að gera.
Vilt þú rölta, ganga, skokka, hlaupa, ganga úti í náttúrunni,
fara á fjöll eða jökla? Þú hlýtur að geta fundið eitthvað við
þitt hæfi. Einnig getum við neglt í skósóla.
Líttu á úrvalið á heimasíðunni okkar
www.skovinnustofa.is
Mikið úrval mannbrodda
Skóvinnustofa Sigurbjörns
Háaleitisbraut 68 – 103 Reykjavík
s. 553 3980Heildsala
Smásala
Matvælastofnun tekur mál dýraeftirlitsmanns til nánari skoðunar:
Vikið tímabundið úr starfi
INNAN GIRÐINGAR Starfsmanni MAST hefur tímabundið
verið vikið frá störfum vegna ásakana um að hann hafi ekki
sinnt skyldum sínum vegna viðhalds stóðhestagirðinga.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VIÐSKIPTI „Ég hef fengið mörg
tækifæri til að vaxa í starfi og
sum þeirra hafa komið til vegna
þess að ég er kona og vegna þess-
arar lagasetningar,“ sagði Liv
Bergþórsdóttir, forstjóri Nova,
um lög um kynjakvóta í stjórnum
fyrirtækja. Liv hlaut í gær verð-
laun Félags kvenna í atvinnulíf-
inu, FKA, á árlegu hófi félags-
ins sem haldið var í Hörpu. Liv
stofnaði árið 2006 nýtt símafélag
ásamt félaga sínum, Jóakim Reyn-
issyni, sem í dag ber heitið Nova
og hefur 140 manns í vinnu.
„Það er liðsheildin og stemn-
ingin sem hefur tekist að skapa
innan fyrirtækisins, gleði, metn-
aður og löngun til að ná árangri.
Við erum fyrst og fremst þjón-
ustufyrirtæki og höfum gaman
af því sem við erum að gera,“
sagði Liv. Nova hlaut fyrir tæpu
ári hæstu einkunn allra fyrir-
tækja á Íslandi í ánægjuvoginni
þriðja árið í röð og viðskiptavin-
ir félagsins mældust þeir ánægð-
ustu í farsímaþjónustu á Íslandi
fjórða árið í röð.
Hvatningarviðurkenningu FKA
hlaut Rakel Sölvadóttir, stofn-
andi Skema, eða reKode eins og
félagið kallast erlendis. Félagið
sérhæfir sig í að kenna ungu fólki
frá sex ára aldri að forrita, búa
til sína eigin tölvuleiki og öðlast
þannig tækniþekkingu sem mun
nýtast þeim á flestum sviðum í
framtíðinni. „Þau eru ótrúlega
móttækileg fyrir þessari fræðslu
enda er það vel þekkt staðreynd
að börn eiga miklu auðveldara en
fullorðnir með að læra ný tungu-
mál og forritun er í raun bara
tungumál fyrir samskipti milli
manns og tölvu. Fyrir þeim er
þetta ekkert flókið,“ sagði Rakel.
Þakkarviðurkenninguna hlaut
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, for-
stjóri Actavis á Íslandi. Guðbjörg
hefur starfað fyrir lyfjafyrirtæk-
ið Actavis og forvera þess í yfir
þrjátíu ár, allt frá því hún var
ráðin markaðsstjóri lyfjafyrir-
tækisins Delta árið 1983. „Það er
bókstaflega allt breytt. Það hafa
orðið gífurlegar tækniframfar-
ir á þessum árum, rekstur fyr-
irtækja er orðinn mun faglegri
en hann var og svo hef ég sjálf
þróast heilmikið í starfi,“ sagði
Guðbjörg. Auk starfa sinna sem
forstjóri Actavis á Íslandi situr
Guðbjörg nú í stjórnum Viðskipta-
ráðs Íslands, Össurar og Íslands-
stofu.
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
afhenti viðurkenningarnar að
viðstöddum fjölda þeirra karla
og kvenna sem standa í framlínu
íslensks viðskipta- og atvinnulífs.
fanney@frettabladid.is
„Ég hef oft verið
súkkulaðikleina“
Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova, hlaut viðurkenningu Félags kvenna í atvinnulíf-
inu. Hún sagðist hætt að hugsa um að hún fengi bara að vera með af því að hún er
stelpa og ákvað að nýta tækifærin og sýna að hún ætti fullt erindi í hópinn.
ATHAFNAKONUR Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, Liv Bergþórsdóttir og Rakel Sölva-
dóttir voru heiðraðar af FKA í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Þórólfur, er grasið þá ekki
alltaf grænna hinum megin?
„Það er allavega myglugrænna.“
Þórólfur Jónsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkur,
segir myglulyktina, sem hefur fundist víða í
Reykjavík síðustu daga, vera tilkomna vegna
kalskemmda á grasi sem hafi legið lengi
undir klaka.
SAMGÖNGUR „Lífsspursmál“ er
fyrir byggðir á norðanverðum
Vestfjörðum að ríkisstjórnin eyði
óvissu og bjóði út gerð Dýrafjarð-
arganga. Þetta segir í bókun bæj-
arráðs Ísafjarðarbæjar. Að auki er
talið brýnt að lokið verði við hönn-
un vegstæðis Dynjandisheiðar.
Tekur bæjarráð undir áhyggj-
ur Orkubús Vestfjarða, en fram-
kvæmdastjóri sagði að á meðan
ekki væri vitað hvernig málum
verði háttað sé ekki hægt að leggja
í fjárfestingar á svæðinu. - þj
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar:
Lífsspursmál að
eyða óvissunni
DÓMSMÁL Hæstiréttur dæmdi í
gær Ingvar Hreiðarsson, 21 árs
gamlan karlmann, í tveggja ára
fangelsi fyrir að hafa munnmök
við annan karlmann gegn vilja
hans. Sá sem brotið var gegn gat
ekki spornað við verknaðinum
vegna neyslu áfengis og vímu-
efna og svefndrunga.
Hæstiréttur þyngdi dóm Hér-
aðsdóms Reykjaness, sem dæmdi
Ingvar í 15 mánaða fangelsi.
Einn hæstaréttardómari taldi
rétt að sýkna Ingvar þar sem
hann taldi framburð þess sem
brotið var á ekki nægja til sak-
fellingar gegn neitun Ingvars þar
sem hún hafi ekki stoð í öðrum
gögnum málsins. - hrs, bj
Dæmdur fyrir nauðgun:
Nauðgaði vini
sínum sofandi
HEILBRIGÐISMÁL Ekki liggur fyrir
hvernig fjármagna skuli samning
við sérgreinalækna utan sjúkra-
húsa, sem tók gildi um áramót.
Heildarkostnaður ríkisins er met-
inn á 6,2 milljarða.
„Við bjuggumst alveg eins við
hækkunum á sjúklingagjöldum
vegna þessa samnings en það varð
ekki,“ segir Steinn Jónsson, formað-
ur Læknafélags Reykjavíkur. Hann
segir að í gegnum tíðina hafi hlutur
sjúklinga í slíkum samningum verið
þrjátíu prósent en hlutur ríkisins
sjötíu prósent.
Nýsamþykkt reglugerð um kostn-
aðarhlutdeild sjúklinga gerir ekki
ráð fyrir hækkunum á þessu ári.
„Skýringin er líklega sú að stjórn-
völd hafa viljað halda þessum hækk-
unum í skefjum og láta ríkissjóð
borga,“ segir Steinn, en samið var
um ríflega 20 prósenta hækkun á
einingarverði.
Hjá Sjúkratryggingum feng-
ust þær upplýsingar að ákveðinn-
ar tregðu gæti við útfærslu á fjár-
mögnuninni, en fjármálaráðuneyti,
velferðarráðuneyti og Sjúkratrygg-
ingar ræðist við. - eb
Fjármögnun samnings við sérgreinalækna liggur enn ekki fyrir:
Búist við að hækkanir falli á ríkið
SÉRGREINALÆKNAR Samningur við
lækna utan sjúkrahúsa felur í sér miklar
hækkanir.
LÖGREGLUMÁL Eldur kviknaði í verksmiðjuhúsi í Dugguvogi um hádegi
í gær og er hluti hússins gerónýtur eftir brunann. Þegar slökkvilið bar
að garði var hitinn orðinn svo mikill að rúður í húsinu voru farnar að
springa. Með snarræði tókst slökkviliði hins vegar að koma í veg fyrir
að eldurinn breiddist út í aðra hluta hússins.
„Slökkviliðsmenn sáu það strax þegar þeir voru að koma úr Árbænum
að þetta var mikið. Þannig að við kölluðum út aukalið enda gríðarmik-
ill eldur og hiti,“ sagði Marteinn Geirsson, deildarstjóri hjá Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins, sem stjórnaði aðgerðum á vettvangi. - eh
Eldur kviknaði í verksmiðjuhúsnæði í Dugguvogi í gærdag:
Náðu að stöðva útbreiðslu eldsins
SKJÓT VIÐBRÖGÐ Umfangsmikið slökkvistarf var unnið á vettvangi í gær og tókst
að koma í veg fyrir að eldurinn breiddist út. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR