Fréttablaðið - 31.01.2014, Blaðsíða 88
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 60
Málmhaus uppskar flestar til-
nefningar til Edduverðlauna í
ár, eða alls sextán tilnefningar.
Fimm leikarar í myndinni eru
tilnefndir fyrir leik. Hross í oss
fékk fjórtán tilnefningar og XL
níu. Allar þessar þrjár eru til-
nefndar í flokknum mynd ársins.
Tilkynnt var hverjir eru til-
nefndir til Edduverðlauna þetta
árið í Bíói Paradís á hádegi í gær.
Tilnefnt var í 23 verðlaunaflokk-
um og valið var úr 108 innsend-
um verkum. Edduverðlaunahátíð-
in fer fram í Silfurbergi í Hörpu
þann 22. febrúar. Meðlimir á kjör-
skrá Íslensku kvikmynda- og sjón-
varpsakademíunnar geta kosið
rafrænt á milli tilnefndra frá 3.
febrúar til þess sautjánda.
Fyrir leikstjórn voru tilnefnd-
ir til verðlauna Benedikt Erlings-
son fyrir Hross í oss, Guðmundur
Arnar Guðmundsson fyrir Hval-
fjörð, Marteinn Þórsson fyrir XL,
Ragnar Bragason fyrir Málmhaus
og Þór Ómar Jónsson fyrir Falsk-
an fugl.
Fyrir besta handrit var Bene-
dikt Erlingsson tilnefndur fyrir
Hross í oss, Brynja Þorgeirs-
dóttir, Bragi Valdimar Skúlason
og Konráð Pálmason fyrir sjón-
varpsþáttinn Orðbragð, Guð-
mundur Óskarsson og Marteinn
Þórsson fyrir handritið að XL,
Jón Atli Jónasson fyrir Falskan
fugl og Ragnar Bragason fyrir
Málmhaus.
Tilnefndar fyrir besta leik
konu í aðalhlutverki eru Charlotte
Böving fyrir leik sinn í Hross í
oss, Ilmur Kristjánsdóttir fyrir
Ástríði 2, María Birta Bjarnadótt-
ir fyrir XL, Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir fyrir Fiska á þurru landi
og Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir
fyrir leik sinn í Málmhaus.
Karlar sem fengu tilnefningu
fyrir leik í aðalhlutverki eru
Ágúst Örn B. Wigum fyrir leik
sinn í Hvalfirði, Ingvar E. Sig-
urðsson fyrir leik sinn í Hross
í oss, Kjartan Guðjónsson fyrir
Ástríði 2, Ólafur Darri Ólafsson
fyrir XL og Styr Júlíusson sem
lék í Fölskum fugli.
Fyrir leik karlmanns í auka-
hlutverki eru tilnefndir Björn
Hlynur Haraldsson fyrir Ástríði
2, Hannes Óli Ágústsson fyrir
Málmhaus, Ingvar E. Sigurðsson
fyrir Málmhaus, Steinn Ármann
Magnússon fyrir Hross í oss og
Sveinn Ólafur Gunnarsson fyrir
Málmhaus.
Leikkonur sem tilnefndar
eru fyrir leik í aukahlutverki
eru Halldóra Geirharðsdóttir
fyrir Málmhaus, Margrét Helga
Jóhannsdóttir fyrir XL, Maríanna
Clara Lúthersdóttir fyrir Þetta
reddast, Nanna Kristín Magnús-
dóttir fyrir XL og Sigríður María
Egilsdóttir fyrir Hross í oss.
Tilnefndar í flokki heimildar-
mynda voru Aska, Ég gefst ekki
upp, Fit Hostel, Hvellur og Strigi
og flauel. Leikið sjónvarpsefni
sem fékk tilnefningar eru Ástríð-
ur 2, Fiskar á Þurru landi og
Hulli.
Frétta- eða viðtalsþættir sem
eru tilnefndir eru Auðæfi hafs-
16 tilnefningarMálmhaus
14 tilnefningarHross í oss
9 tilnefningar XL
Rýmingarsala
Opið. föstud. 10-18,
Laugard. og sunnud. 10-16
Bæjarlind 6, 201 Kópavogur. s. 519-7561 facebook: Appaman Ísland
verð frá
500 kr - 5000 kr.
Í tilefni af 25 ára afmæli útvarpsstöðvarinnar FM957
verður blásið til stórtónleika í Laugardalshöll þann
16. júní næstkomandi. Það er hinn heimsfrægi David
Guetta sem kemur til með að troða upp fyrir afmælis-
gesti en hann er eitt stærsta nafnið í tónlistarbransan-
um í dag.
„David er mjög spenntur fyrir að koma til landsins og upplifa þjóðhá-
tíðarstemningu,“ segir Trond Opsahl, annar eigenda Sky Agency sem
flytur David inn. David er einn vinsælasti tónlistarmaður í heimi um
þessar mundir en þrátt fyrir það er David að sögn Tronds mjög jarðbund-
inn og kurteis og alls engin prímadonna.
„Það fer samt ekkert á milli mála hvers vegna maðurinn er stjarna,
hann gefur sig alltaf 100 prósent í það sem hann gerir og hættir aldrei
mínútu fyrr en hann er fullkomlega sáttur,“ segir Trond. Fluttur verður
inn búnaður frá Noregi fyrir tónleikana.
„Það eru ekki til nægilega góðar græjur á landinu fyrir tónleika eins og
þessa. David myndi frekar þiggja lægri greiðslu fyrir að koma fram en að
sætta sig við eitthvað annað en fullkomnun. Það að standa fyrir framan
trylltan áhorfendaskara er það skemmtilegasta sem hann gerir.“ - jme
David Guetta
í Laugardalshöll
Útvarpsstöðin FM957 fagnar 25 ára
afmæli með heljarinnar tónlistarveislu.
SAMHELDNIR David Guetta og félagar hans í Sky Agency á góðri stund.
TRON OPSAHL
Málmhaus með fl estar tilnefningar
Tilkynnt var um tilnefningar til Edduverðlauna í Bíói Paradís í gær. Edduverðlaunahátíðin verður í Hörpu 22. febrúar.
TILNEFNINGAR Frá blaðamannafundi í Bíó Paradís.
ins, Ísþjóðin 3, Kastljós, Málið og
Tossarnir. Að auki var tilnefnt í
fleiri flokkum, eins og fyrir klipp-
ingu, gervi, brellur, barna- og
unglingaefni, búninga og fleira.
Sjónvarpað verður beint frá
Edduverðlaunahátíðinni laugar-
daginn 22. febrúar í opinni dag-
skrá á Stöð 2 og á Vísi. Lesa má
nánar um málið á Vísi.
hannarun@365.is og ugla@frettabladid.is