Fréttablaðið - 31.01.2014, Blaðsíða 34
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 34
og fyrrnefndum hópum þegar
það kynnir sig. Í augum almenn-
ings eru þetta allt fasteignasalar.
Algengt er að allir hafi sömu laun,
þ.e. prósentur af sölu, og sinni að
mestu sömu störfum.
Óskýrar reglur
Lög um fasteignsala nr. 99 voru
sett árið 2004. Þau kveða á um
hvað fasteignasali er og á að gera
og hvað aðrir mega ekki gera.
Hvorki lögin né reglugerðir eru
hins vegar nægilega skýr svo
það hefur verið nokkuð auðvelt
að túlka lögin eftir hentisemi.
Endurskoðun laganna átti að fara
fram fyrir árið 2008 en það hefur
ekki gerst ennþá. Þó hefur verið
skipuð eftirlitsnefnd fasteignasala
samkvæmt þessum lögum og er
hún við störf núna. Nefndin gaf
fasteignasölum frest til að fara
eftir lögunum, eins og nefndin
túlkar þau, til 1. nóvember 2013.
Það heyrir til nokkurra tíðinda
að lægra yfirvald en Alþingi gefi
frest á að fara eftir lögum. Hvern-
ig er það hægt? Það þekkist varla
á öðrum stöðum eða löndum að
menn geti brotið lög í dag eins og
hver vill en eftir einhvern ákveð-
inn tíma verða allir að fara eftir
þeim. Lögin tóku gildi árið 2004,
ekki í gær. Eftirlitsnefndin hefur
úrskurðað í mörgum málum en
hins vegar er sá galli á gjöf Njarð-
ar að úrskurðir eru ekki birtir svo
enginn fær að vita hvernig þeir
eru nema þær persónur sem eiga
að fara eftir úrskurðunum.
Stjórnmálamenn virðast ekki
hafa haft bein í nefinu til að taka
alvarlega á þessu máli.
Flest mistök í fasteignaviðskipt-
um verða þegar ómenntaðir menn
eru að vinna vinnu fasteigna-
sala og meðhöndla gögn sem eiga
eingöngu að vera meðhöndluð af
fasteignasölum samkvæmt lögum.
Þar má nefna skoðun og verðmat
eigna, tilboð (sem er löggerning-
ur og bindandi samningur), alls
konar ráðgjöf og skjalagerð. Í kjöl-
farið þarf svo löggilti fasteignasal-
inn að hnoða saman kaupsamningi
og úr verður tómt klúður, mála-
ferli og oft fjárhagslegt tjón fyrir
marga.
Starfsfólk sem starfar í
fasteignaviðskiptum er að
mínu mati þrískipt.
Í grunninn eru löggiltir
fasteignasalar, þ.e. fast-
eignasalar sem eru um
200 aðilar með full rétt-
indi. Hægt er að ljúka
námi á tveimur árum
við HÍ (80-90 ECTS-ein-
ingar). Löggildingarnám
er af mörgum talið erfitt
nám og krafist er hærri
meðaleinkunnar en í flestu öðru
háskólanámi við HÍ eða meðalein-
kunnar að lágmarki sjö. Námið er
að mestu byggt upp á lög-
fræði, hagfræði o.fl. Síðan
er farið fram á 12 mánaða
starfsreynslu á fasteigna-
sölu áður en viðkomandi
getur fengið löggildingu
sem fasteignasali. Einnig
má viðkomandi aldrei,
samkvæmt lögum, hafa
orðið gjaldþrota, til að öðl-
ast löggildingu en hægt er
að fá undanþágu frá því
eftir 5 ár. Tryggingu til
að bæta hugsanlegt tjón er skylda
að hafa til að öðlast löggildingu.
Tryggingafélög gera kröfu um að
viðkomandi sé ekki á vanskilaskrá
til að hann fái tryggingu.
Næsta lag má kalla rótgróna
sölufulltrúa sem eru um 200
manns sem hafa haft fasteignasölu
að aðalatvinnu í mörg ár. Þessir
aðilar geta verið ómenntaðir og
engar kröfur eru gerðar um neitt
annað. Í flestum tilvikum eru þeir
sölumenn sem endast í starfinu
hinir bestu menn, vandvirkir og
standa vel undir flestum kröfum
sem sölufulltrúar og koma vel
fram fyrir hönd fasteignasalans.
Svo kemur þriðja lagið sem sam-
anstendur af um 100-500 óvönum
starfsmönnum sem eru oft blautir
á bak við eyrun. Þetta eru t.d.
byggingamenn, lagermenn, skrif-
stofufólk, húsmæður eða hver
annar sem verða vill. Þeir kaupa
sér lakkskó, lakkrísbindi og jakka-
föt í t.d. Dressmann og fara síðan
út á markaðinn sem „fasteignasal-
ar“. Fjöldi þessa hóps fer algerlega
eftir því hvernig fasteignamark-
aðurinn er. Ef hann er á upp-
leið hrúgast menn og konur inn á
fasteignasölur til að selja eignir
en hætta fljótt þegar harðna fer
á dalnum. Hinn almenni maður
þekkir ekki mun á þessu fólki
➜ Stjórnmálamenn virðast
ekki hafa haft bein í nefi nu
til að taka alvarlega á þessu
máli.
Hver er fasteignasali?
STARFSHEITI
Einar G.
Harðarson
löggiltur fasteignasali
AF NETINU
Einkabílahatrið
Borgarskipulag
hefur versnað á
þessu kjörtíma-
bili. Yfirvöld reyna
að bregða fæti
fyrir einkabíla til
að troða fólki í
strætó eða upp
á reiðhjól. Síðara
er bara góðviðrisstefna, eins og
sjá mátti í flughálkunni. Stefnan
er varin með rugli. Meðal annars
er sagt, að verktakar vilji færri
bílastæði. Vilja þeir þó bara
minnka kostnað sinn og vita ekk-
ert um óskir íbúa. Einnig vantar
í dæmið tilfinningu fyrir víðari
vanda: Bílastæðaskortur við ný
hús dreifir vandanum til íbúa,
sem fyrir eru. Þröngbýlisstefna
rýrir lífsgæði fólks, sem búið er
að koma sér fyrir á svæðum, er
laskast svo við þéttingu byggðar.
http://www.jonas.is/
Jónas Kristjánsson
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook