Fréttablaðið - 31.01.2014, Blaðsíða 56
KYNNING − AUGLÝSINGVefsíðugerð FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 20144
Vinsælar stefnur í vefsíðugerð árið 2014
Á vefsíðunni thenextweb.com eru tekin saman
nokkur atriði sem talið er að verði vinsæl í hönnun
vefsíðna á árinu.
Öðruvísi leturgerð verður áberandi. Hönnuðir munu
reyna að gera síðurnar persónulegri með því að finna
óvenjulega leturgerð.
Flöt hönnun. Apple hefur undanfarið farið þessa
leið, til dæmis í iOS7, með því að sleppa skuggum og
öðru prjáli á valskjánum. Allar líkur eru á að fleiri fylgi
í kjölfarið.
Stór og flott svæði með litlum texta. thenextweb.
com kallar þetta „hero areas“. Um er að ræða stór
svæði, oftast efst á síðum, sem eru annaðhvort unnar
ljósmyndir eða flottar grafíkmyndir.
Meiri áhersla á snjalltæki. Hönnuðir miða vefsíðu-
hönnun í æ meiri mæli við snjallsíma og spjaldtölvur.
Myndbönd í stað texta. Þar sem auðvelt er að búa
til myndbönd nú til dags og auðvelt að deila þeim á
vefsíðum verða myndbönd æ oftar notuð á síðum í
stað texta.
Einfaldar litasamsetningar. Árið 2014 verða vefsíður
með færri liti en áður hefur tíðkast. Jafnvel má sjá síður
með aðeins eitt eða tvö litbrigði.
Unnar myndir. Vinsælt verður að vinna myndir með
ýmsum hætti á vefsíðum á árinu. Nota óskýrar myndir, breyta þeim með myndvinnslutækni og jafnvel nota myndir
sem minna á Instagram-myndir.
Unnar myndir koma sterkt inn.
Litasamsetning verður einfaldari.
Flöt hönnun án
skugga er málið.
Stór „hero area“ á borð við þetta verða vinsæl.
Fólk velur sér oft auðveldustu leiðina og það á líka við um að-
gangsorð. Öryggisfyrirtækið splashdata.com gerði nýlega könn-
un á mest notuðu lykilorðunum 2013 sem jafnframt eru með
minnsta öryggið.
Efst á listanum yfir verstu lykilorðin er talnarunan „123456“ og
í þriðja sæti listans er sama runa að viðbættum „78“. Mikið hug-
myndflug. Lykiorðið 1234 er í sextánda sæti þannig að lágar tölur
í röð eru mikið notaðar. Notendur taka mikla áhættu með því að
nota svo auðveld lykilorð og ættu að breyta þeim strax.
Það er áhugavert að svo margir velji auðveld lykilorð því marg-
ar netsíður hafa útbúið strangar reglur um hvernig lykilorðin eigi
að vera samsett.
Hér koma 25 verstu lykilorðin sem jafnframt eru vinsæl í notkun:
Verstu lykilorðin
1. 123456
2. password
3. 12345678
4. qwerty
5. abc123
6. 123456789
7. 111111
8. 1234567
9. iloveyou
10. adobe123
11. 123123
12. admin
13. 1234567890
14. letmein
15. photoshop
16. 1234
17. monkey
18. shadow
19. sunshine
20. 12345
21. password1
22. princess
23. azerty
24. trustno1
25. 000000
Smartmedia | Fákafen 9, Reykjavík | S: 588-4100 | info@smartmedia.is
Vefsíðugerð
Netverslanir
íla unar er
unar er
Facebook leikir
Leitarvélabestun
enging við f r agsker
Vefhýsing
Sérfræðingar í netverslun og vefsíðugerð