Fréttablaðið - 31.01.2014, Blaðsíða 49
VEFSÍÐUGERÐ
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2014 Kynningarblað Hugsmiðjan, Opex og Allra Átta
Vel hannaðir vefir eru grundvall-aratriði í kynningu fyrirtækja og stofnana í dag, góður vefur skapar
traust og trúverðugleika,“ útskýrir Magn-
ús Bjarnason, hönnunarstjóri Hugsmiðj-
unnar.
Hann segir fyrirtæki vera að vakna til
vitundar um mikilvægi vefhönnunar.
„Það sem skrifað er á vefinn og hvern-
ig það er framsett skiptir máli. Vefurinn
snýst um notagildi og þjónustulund. Vef-
síður geta verið jafn ólíkar og tilgangur fyr-
irtækjanna sjálfra. Kynningar- eða söluvef-
ur, innri- eða þjónustuvefur, allir eiga það
sameiginlegt að þurfa að nýtast notandan-
um og helst að einfalda fólki lífið. Vefhönn-
un í dag snýst því um miklu meira en það
að gera hlutina fallega. Notagildið skipt-
ir máli. Lausnin verður að virka og hjálpa
okkar viðskiptavinum að bæta þjónustu
sína,“ útskýrir Magnús.
Gott samstarf við viðskiptavini
„Mikilvægast er að finna hvar þörfin ligg-
ur, hvaða vandamál þarf að leysa og vinna
lausnina í samvinnu við viðskiptavininn.
Best er ef allur undirbúningur er góður og
að fyrirtækið hafi metnað í að gera hlutina
vel. Það skilar ekki miklum árangri að biðja
okkur um að „henda upp vef“ byggðum á
takmörkuðum upplýsingum. Innihaldið
skiptir svo miklu máli,“ útskýrir Magnús.
„Tilgangur vefsins getur verið umfjöll-
un, sala eða vinnusparnaður. Vefurinn
er alltaf opinn, getur tekið við og miðlað
gögnum og geta fyrirtæki oft á tíðum gert
meira til að fá meira út úr vefnum sínum.
Það borgar sig,“ segir Magnús. „Við höfum
lagt meiri áherslu á grunnvinnuna síð-
asta árið með því að bjóða til dæmis upp
á þarfagreiningu og vefstefnumótun og
finnum hvernig það er að skila sér. Þegar
greiningarvinnu er lokið eru allir komnir
með sama vegvísinn í hendurnar og verður
ákvarðanataka líklegri til að færa hönnun
í átt að því sem fyrirtækið og notandi vefs-
ins þurfa á að halda. Góð vísbending um
gildi undirbúningsvinnunnar eru þrettán
tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna í
ár fyrir vefi unna af Hugsmiðjunni “
Allt snjallt
„Miklar breytingar hafa orðið síðasta árið
og öld snjallvefja er gengin í garð. Sjálfsagt
þykir að geta skoðað vefi óháð tæki,“ segir
Magnús en það kallar á breytta nálgun í
hönnunarferlinu.
„Í dag er ekki farið út í að hanna lausn-
ir nema þær virki í símanum, í spjaldtölvu,
sjónvarpi og tölvu. Þetta er spurning um
þjónustu og aðgengi. Notandinn á rétt á
sömu upplýsingum hvort sem hann er að
nota símann sinn eða annað tæki til að
skoða vefinn. Snjallvefir kalla á einföldun í
efni vefsins, en einnig þarf að gera ráðstaf-
anir vegna mismunandi skjástærða í hönn-
unarferlinu.“
Öruggur grunnur
„Við hjá Hugsmiðjunni notum mestmegn-
is okkar eigið vefumsýslukerfi fyrir okkar
lausnir. Kerfið heitir Eplica og var þróað af
okkur. Með því höldum við utan um alla
þræði og eru öll öryggismál og þróun í
okkar höndum. Þar af leiðandi getum við
tryggt öryggi veflausnarinnar sem getur
verið erfitt ef notað er kerfi frá þriðja aðila.“
Hugsmiðjan var stofnuð árið 2001 og
státar af elstu kennitölu í vefgeiranum.
Magnús segir starfsemina byggða á góðum
grunni.
„Við byggjum á þeirri þekkingu sem
safnast hefur á þessum tíma. Reynslan
gefur okkur grunninn til að taka vefina
okkar skrefinu lengra,“ segir Magnús.
Vefir eiga að virka
Magnús Bjarnason, hönnunarstjóri hjá Hugsmiðjunni, segir fyrirtæki vera að vakna til vitundar um mikilvægi vefhönnunar en hún
snýst um meira en gott útlit. Hugsmiðjan leggur áherslu á gott samstarf við viðskiptavini því það er besta leiðin til að gera góða vefi.
Magnús Bjarnason, hönnunarstjóri Hugsmiðjunnar við Snorrabraut, segir fyrirtæki að vakna til vitundar um mikilvægi vefhönnunar. MYND/DANÍEL
Miklar breytingar hafa
orðið síðasta árið og öld
snjallvefja er gengin í garð.
Sjálfsagt þykir að geta skoðað
vefi óháð tæki.