Fréttablaðið - 31.01.2014, Blaðsíða 82
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 54
Bláskjár fjallar um tvö systkini í Kópavogi sem
hafa búið í kjallaranum hjá föður sínum síðustu
sjö árin og lítið sem ekkert farið út. „En nú er
kallinn dáinn og yngsti bróðirinn sem ólst upp
á efstu hæðinni gerir sig líklegan til að taka við
af föður sínum. Allt breytist þó þegar blá end-
urvinnslutunna frá Kópavogsbæ birtist óvænt
á stofugólfinu,“ segir Vignir Rafn, leikstjóri
verksins, um söguþráðinn.
„Bláskjár er íslenskt gamandrama, með
súrum keim, og fjallar um einlæga löng-
un tveggja systkina í Kópavogi, skammt frá
Hamraborg, til að endurnýta sig og byrja
lífið upp á nýtt. Reyndar fjallar það um sitt-
hvað fleira, til dæmis feðraveldið, grimmdina,
ofbeldið og veikburða getu okkar til þess að
segja hvert öðru satt – og svo auðvitað Bláskjá
og sígaunana,“ útskýrir Vignir, léttur í bragði
og bætir við.
„Bláskjár ætti að höfða sérstaklega til þeirra
sem hafa áralanga reynslu af að láta sér leiðast
í leikhúsinu og langar að breyta út af vanan-
um.“
En æfingar hafa ekki gengið snurðulaust
fyrir sig. „Leiðin er búin að vera löng og ströng.
Útgáfan af handritinu sem nú er æfð á sviðinu
er draft númer næstum-þriggja-stafa-tala,“
segir Vignir að lokum.
Vilja ekki að fólki
leiðist í leikhúsi
Vignir Rafn Valþórsson leikstýrir Bláskjá, verki eft ir skáldið Tyrfi ng Tyrf-
ingsson, sem frumsýnt verður þann áttunda febrúar í Borgarleikhúsinu.
Með burðarhlutverk í sýningunni fara þau Arndís Hrönn Egilsdóttir, Hjört-
ur Jóhann Jónsson og Arnmundur Ernst Backman. Ljósmyndari Frétta-
blaðsins kom við á æfi ngu Bláskjás í gær og leikstjórinn var tekinn tali.
AF ÆFINGU Verkið Bláskjár verður frumsýnt 8. febrúar næstkomandi.
5.000 MACKINTOSH-BRÉF Auglýst var eftir Mackintosh-bréfum til að nota í sviðsmyndina og
þeim bárust um 5.000 bréf sem notuð verða í sýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LEIKUR Í HAMLET Á SAMA TÍMA Hjörtur Jóhann, hér í hlutverki Valters, leikur samhliða Bláskjá í uppsetningu Jóns
Páls á Hamlet sem er einnig sýnt í Borgarleikhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VALTER OG ELLA
eru fyrst og fremst
Íslendingar sem
mala um breytingar
og betri tíð og reyna
að endurnýta sig
eftir undarlegustu
leiðum.
LEIKARAHÓPURINN Arnmundur Ernst Backman, Arndís Hrönn Egilsdóttir og Hjörtur Jóhann Jónsson leika í Bláskjá.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA