Fréttablaðið - 31.01.2014, Blaðsíða 57
FRÉTTABLAÐIÐ
LÍFIÐ 31. JANÚAR 2014 • 9
Nýjar vörur
AUSTURSTRÆTI 8 - 10 • SÍMI 534 0005
OPIÐ ALLA DAGA Finndu okkur á Facebook
10.800 kr
14.800 kr 14.800 kr 12.800 kr
10.800 kr peysa 10.800 krpeysa 9800 kr
Aztek slá 10.800 kr
skyrta 7800 kr golla 8.800 kr
buxur 9800 kr
an fókus og ekki var alltaf auðvelt
að selja umhverfisþenkjandi hönn-
un. Áherslur í viðskiptum geta oft
gengið út á skjótan gróða á meðan
langtímastefna, framtíðarsýn og
áhrif fá að víkja fyrir skammtíma-
markmiðum.“
Markþjálfað ómeðvitað allt
sitt líf
Þú kynntist markþjálfun þegar þú
réðst markþjálfa til að aðstoða þig
við stefnumótun hjá bandaríska
hönnunarfyrirtækinu þínu. Hvað
gerðist í framhaldi af því?
„Markþjálfinn minn sá í mér
einhvers konar „hugsunar- og
úrvinnsluaðferðir“ sem honum
fannst mikill fengur í og bauðst
til þess að taka mig í læri hjá sér.
Í kjölfarið fór ég í skóla í Arizona
og lærði aðferðafræði markþjálf-
unar og varð Certified Trans-
formational Coach, eða vottað-
ur „Umbreytinga-markþjálfi“.
Ég komst að því að á vissan hátt
hafði ég alltaf verið að markþjálfa
þegar ég hitti nýja viðskiptavini
með viðskiptahugmyndir þar sem
spurningarnar í fyrstu voru ekki
ósvipaðar; hvað viltu gera, hvern-
ig viltu gera það, hver er fram-
tíðarsýnin, hvað viltu bæta, hvað
viltu minnka, hver er besta mögu-
lega útkoman, hver eru gildi fyr-
irtækisins, styrkleikar reksturs-
ins, sagan sem þið viljið segja og
annað í þeim dúr. Þessar sann-
leiksspurningar og svör heilluðu
mig alltaf og fannst mér þetta ein-
staklega skemmtilegur hluti af
starfinu en þarna á sér stað mikil
sköpun og í raun nokkurs konar
stefnumótun fyrir reksturinn.
Þetta var þó lítill hluti af hönnun-
arstarfinu og síðan fór fólk sína
leið. Mér fannst það heillandi hug-
mynd að geta unnið við þessa gerð
sköpunar og fengið að fylgja fyr-
irtækjum eftir enn lengra og fá að
vinna með stjórnendum og stjórn-
endateymum sem eru stöðugt að
vinna við breytingar og þróun á
rekstri. Það verður varla meira
skapandi en það.“
Mætti því segja að örlögin hafi
gripið í taumana og leitt þig á nýja
braut?
„Já, augljóslega því að fyrsti
aðilinn sem ég tilkynnti að ég
hefði lært markþjálfun, réð mig
til þess að þjálfa sig og sitt teymi.
Það vill svo til að ég starfa enn
með því fyrirtæki í dag og hef
fylgt því eftir frá því að þau voru
með 15 starfsmenn yfir í að vera
komin með hátt í 100 starfsmenn.
Markþjálfunarstarfið er mjög
skemmtilegt og fæ ég útrás fyrir
mörg persónuleg áhugasvið og
kynnist alls konar rekstri og við-
skiptasköpun. Ég nýti að mörgu
leyti bæði heilahvelin mín sem
hafa gaman af hönnunarhugs-
un og stjórnun og stefnumótun en
skemmtilegast af öllu er að fá að
vinna með fólki sem er að skapa
betri framtíð fyrir sig og aðra og
fá að fylgja því eftir í að skapa
stöðugar framfarir.“
Markþjálfun gerir þig glaðari
Hvað er að vera markþjálfi? Endi-
lega segðu nánar frá því.
„Markþjálfi getur sá kall-
að sig sem hefur lært aðferða-
fræði markþjálfunar sem geng-
ur út á samtalsaðferð sem byggist
á opnum spurningum og miða að
því að laða fram jákvæðar breyt-
ingar. Góður markþjálfi eflir
fólk í að mynda sér sterka fram-
tíðarsýn og stefnu og aðstoðar
fólk við að setja sér markmið og
gera þau framkvæmanleg. Mark-
þjálfar aðstoða fólk einnig við að
takast á við áskoranir sem geta
orðið á veginum og hjálpa marg-
ir til við að brjóta aðgerðir niður
í framkvæmanlegar einingar.
Fær markþjálfi getur sem dæmi
komið inn í teymi og ýtt undir
virkni, gagnsæi, samvinnu og
ábyrgð hvers og eins, bæði gagn-
vart sjálfum sér sem og gagnvart
teyminu og fyrirtækinu sem það
starfar með. Það hefur sýnt sig að
með aðstoð góðs markþjálfa nást
markmið mun hraðar en ella og
fólk er almennt einbeittara, glað-
ara og öflugra í því sem það er að
gera. Fólk er almennt sáttara og
tengdara.“
Í dag ert þú stjórnarformaður
Félags markþjálfunar á Íslandi.
Er félagið mjög öflugt á Íslandi?
„Félagið er ungt en í örum
vexti og hefur verið að stækka
og eflast ár frá ári. Í dag erum
við með um 70 félaga og eru þeir
allir með menntun í markþjálfun.
Félagið hélt Markþjálfunardag-
inn í annað sinn í gær í Opna há-
skólanum í Háskólanum í Reykja-
vík og var aðsókn langt fram-
ar bestu vonum. Félagið stendur
fyrir því að kynna og efla mark-
þjálfun sem fag, kynna starfandi
markþjálfa og standa vörð um að
félagsmenn sýni fagmennsku og
fylgi siðareglum félagsins. Fyrir
þá sem hafa áhuga á að vita meira
um markþjálfun og starfandi
markþjálfa á Íslandi þá er um
að gera að skoða síðu félagsins,
www.markþjálfun.is “
Auðlindir heims-
ins eru ekki óend-
anlegar og í fram-
tíðinni gæti það
vel orðið þann-
ig að ruslahaug-
ar nútímans verði
álitnir fjársjóðir.
Hönnuðir geta ýtt
undir framsýna
hugsun og boðið
upp á umhverfis-
væna valkosti og
lausnir og end-
urnýtt enn betur
það sem hægt er
að endurnýta.
Með fjölskyldunni á skíðum. María Lovísa og bestu vinkonurnar saman á góðri stundu. Með eiginmanni sínum og börnum. Inspira-hönnun eftir Maríu Lovísu.