Fréttablaðið - 31.01.2014, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 31.01.2014, Blaðsíða 12
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 MENNINGARMÁL Setja á upp við Digraneskirkju í Kópavogi skjöld til minningar um systkini sem drukknuðu í Kópavogslæk fyrir 140 árum. Á vef Kópavogsbæjar má lesa um þennan voðaatburð. Þar segir að áður en Kópavogslækur var brúaður gat hann verið farar- tálmi í leysingum. 1. mars 1874 fóru þrjú börn Árna Björnssonar í Hvammkoti með frænku sinni, sem þá gekk til prests, til kirkju í Reykjavík. „Að áliðnum degi héldu systkin- in þrjú heimleiðis, en er þau komu að læknum var hann í foráttuvexti vegna mikill leysinga um daginn. Ætluðu þau yfir á broti eða vaði sem þau þekktu og fór Árni yngri, þá fimmtán ára fyrstur en þá Sig- ríður Elísabet sautján ára og síð- ust Þórunn nítján ára og leiddust þau út í lækinn,“ segir vef Kópa- vogsbæjar. „Miðja vegu missti Árni yngri fótanna og féll hann í lækinn. Ætluðu systur hans að grípa til hans en féllu þá báðar í streng- inn. 70-80 föðmum neðar skolaði Sigríði Elísabetu á grynningar þar sem hún gat fótað sig og kom- ist heim til bæja. Fór faðir þeirra ásamt næturgestum er þar voru strax til lækjarins, sem þá var með stíflum og jakaburði. Fundu þeir eldri stúlkuna eftir nokkra leit á jaka á ánni og var hún látin, en drengurinn fannst ekki fyrr en daginn eftir.“ Fjallað var um málið í tímarit- inu Þjóðólfi sex dögum eftir slysið. „Sorgaratburður þessi var því sárari fyrir foreldrana sem þeir áður höfðu reynt hina miklu sorg, að missa þrjú börn sín einn- ig sviplega, pilt um tvítugt, sem drukknaði á sjó fyrir nálega tólf árum og tvær stúlkur, tveggja og sex ára úr barnaveikinni. Börnin voru öll hin mannvæn- legustu í alla staði og má nærri geta hve sár missir þessi er for- eldrunum, báðum aldurhnignum og lúnum,“ sagði í Þjóðólfi 7. mars 1874. - gar Minnast hörmulegs slyss sem varð fyrir 140 árum í Kópavogslæk með skildi sem settur er upp við Digraneskirkju: Skjöldur fyrir systkini sem drukknuðu á heimleiðinni SYSTKININ Í HVAMMKOTI Hönd í hönd reyndu systkinin að komast yfir ólgandi Kópavogslækinn og í heimahús í Hvammkoti. TEIKNING/KOPAVOGUR.IS SVEITARSTJÓRNARMÁL Neyðarlínan virkjar Neyðarlínan hefur óskað eftir því við sveitarstjórn Rangárþings ytra að fá að byggja litla 5-6 kw smávirkjun við rætur Laufafells á Rangárvallaafrétti fyrir fjar- skiptastöð á Laufafelli sem Neyðarlínan rekur. Samhliða verður aflagður gámur og olíurafstöð, sem staðsett er neðan við fellið. 32 milljónir í sögu Hellu Rangárþing ytra hefur þegar greitt 32 milljónir króna fyrir ritun á byggðasögu Hellu. Hafist var handa við verkið árið 2008. Gengið hefur verið frá samningi við Ingibjörgu Ólafsdóttur söguritara um lok verkefnisins. Reiknað er með að bókin komi út síðar á þessu ári. Hanar bannaðir Íbúi í Þorlákshöfn hefur sótt um leyfi hjá bæjarráði Ölfuss til þess að halda hænur í íbúðahverfi. Ráðið hefur samþykkt að veita íbúanum heimild til að halda allt að sex hænur, en ekki er heimilt að halda hana í Þorlákshöfn. SVEITASTJÓRNARMÁL „Það er mikilvægt að þeir sem kjósa að búa hér með okkur, deili þá kjörum með okkur,“ segir Svanfríður Inga Jónasdóttir, bæjarstjóri á Dalvík, um þá hugsun sem liggur að baki stefnu bæjarins í málefnum innflytjenda og margbreytileika. Undanfarin ár hefur fræðslu- og menningarsvið bæj- arins staðið fyrir fjölmörgum verkefnum og stefnumót- un í málaflokknum, eða allt frá því að íbúum af erlend- um uppruna tók að fjölga mikið. „Við njótum þess að við erum með öflugt starfsfólk sem brennur fyrir þessu verkefni, sem smitar yfir í skólana og foreldrasamfé- lagið,“ segir Svanfríður. Svanfríður segist sjálf hafa smitast af áhuganum og skráð sig í diplómanám í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands í vetur. „Ég sem stjórnandi vil vita meira um margbreytileika í samfélögum. Hvern- ig getum við gert þetta sem best? Hvernig getum við tryggt að fólki líði vel í bænum okkar?“ spyr hún. Svanfríður segir afar mikilvægt að bæði kjörnir fulltrúar og starfsmenn séu meðvitaðir um breytingarnar sem eru að verða í samfélaginu og séu til- búnir að vinna að aðlögun samfélags- ins að breyttum veruleika. Áður var litið á erlenda íbúa sem farandverka- menn og íslenskunámskeið látið duga. Nú sé þörf á að ganga lengra. Verkefnin á Dalvík hafa flest verið í tengslum við skólastarf. „Eitt af merkilegustu verkefnunum að mínu mati var íslenskunámskeið fyrir foreldra leikskóla- barna. Það varð til þess að foreldrar barna af erlendum uppruna áttuðu sig loksins á því hvað var að gerast í leik- skólanum, hvaða viðburðir voru í boði og að þeir væru alltaf velkomnir,“ segir Svanfríður. Svanfríður segir ekki fullnægjandi að tryggja erlend- um íbúum sömu þjónustu og öðrum íbúum. „Það má kannski orða það þannig að þjónustan eigi að mæta hverjum og einum þar sem hann er staddur. Við leggjum til dæmis mikla áherslu á að tvítyngd börn læri móður- málið sitt. Það er mikilvægt fyrir þau félagslega, til dæmis til að viðhalda tengslum við afa og ömmu, og svo hjálpar góður grunnur í móðurmálinu við að læra íslensku,“ útskýrir hún. Svanfríður er hvergi nærri hætt og segir hún næsta verkefni snúast um að færa starfið út í samfélagið. „Við spyrjum okkur núna hvaða aðrar leiðir við höfum að fólki til þess að ræða þessi mál enn víðar. Það er næsta verkefni,“ segir hún. eva@frettabladid.is Innflytjendur í brennidepli Málefni innflytjenda hafa verið í brennidepli á Dalvík undanfarin ár eða frá því að íbúum af erlendum upp- runa tók að fjölga mikið. Bæjarstýra segir ekki fullnægjandi að veita öllum sömu þjónustu, því mæta þurfi hverjum og einum þar sem hann er staddur. Hún hóf nám í jafnréttisfræðum til að auka þekkingu sína. SVANFRÍÐUR I. JÓNASDÓTTIR SAMVINNA Á Dalvík hafa margbreytileikaverkefni meðal annars miðað að auknum tengslum erlendra og íslenskra foreldra. MYND/DALVÍKURBYGGÐ Ugnius Hervar Didziokas settist að á Djúpavogi fyrir tíu árum. Hann starfar sem ferða- og menn- ingarfulltrúi bæjarins og reynist pólskukunnátta hans oft vel. „Ég horfi á þetta að þannig að mitt hlutverk er að hjálpa því fólki sem tengist ekki samfélaginu að tengjast, því ég hef tök á því. Þegar fólk kemur eitt til Djúpavogs, eða hvaða litla samfélags sem er, eða með erlendri fjölskyldu sinni er það mikið erfiðari pakki að takast á við heldur en það sem ég reyndi,“ segir Ugnius og vísar þar til aðstöðumunar á milli þeirra sem eiga íslenska maka og þeirra sem tengjast ekki Íslendingum fjölskylduböndum. Öðruvísi sé tekið á móti útlendingum sem eigi íslenska maka og að álit fólks á þeim sé ólíkt. „Ég held þess vegna að mikilvægast sé að hjálpa fólki að tengjast samfélaginu. Þú getur farið í skóla og lært allt um Ísland og íslensku sem tungumál, en ef þú nærð ekki að kynnast fólki verður lítill árangur,“ segir hann aðspurður um það hvað sveitarfélög geti gert fyrir þennan hóp. Ugnius bendir á að útgáfa upplýsinga á ólíkum tungumálum hafi dregist saman eftir að kreppan skall á. „Það hefur lítið gerst eftir 2008, sem veldur því að marga vantar upplýsingar um réttindi sín og skyldur, en einnig um stöðuna í efnahagsmálum. Fólk veit oft ekki hvort það sé enn kreppa eða ekki, eða hvernig staðan sé í heilbrigðismálum og á gjaldeyrishöftunum,“ bendir hann á. Hjálpar fólki að tengjast Djúpavogi FRAMKVÆMDIR Framkvæmd- ir hófust í vikunni við að grafa skurð út úr ósi Lagarfljóts við Héraðsflóa til að breyta farvegi fljótsins sem hefur færst nokkuð norður eftir á síðustu árum. Frá þessu segir á vef Austurfrétta. Fréttablaðið sagði fyrr í vetur frá áhyggjum bæjarstjórnar- fólks eystra vegna tafa við fram- kvæmdina. Færsla óssins í norður var farin að ógna Fögruhlíðará sem og vernduðu votlendissvæði og ræktarlandi en nú er vonast til að snúa þróuninni við með gerð 200 metra langs skurðar í gegnum fjörukambinn á þeim slóðum þar sem ósinn var á seinni helmingi síðustu aldar. - þj Farvegur ógnaði annarri á: Grafa út úr ósi Lagarfljóts DÓMSMÁL Forsvarsmenn Kron ehf. ætla að áfrýja dómum Hér- aðsdóms Reykjavíkur þar sem fyrirtækið var dæmt til að greiða tveimur spænskum skófram- leiðendum, Salvador Sapena og Sapena Trading Company SL, um átján milljónir króna og rúmar 2,2 milljónir í málskostnað. Salvador Sapena stefndi Kron vegna útistandandi skuldar sem var tilkomin vegna viðskipta Krons frá árinu 2011. Kron var á þriðjudag dæmt til að greiða fyrirtækinu upphæðina, 51.441 evrur, um átta milljónir íslenskra króna, og 852 þúsund krónur í málskostnað. Héraðsdómur Reykjavík- ur dæmdi einnig í máli Sapena Trading Company SL gegn Kron, en fyrirtækið er rekið af syni eiganda Salvador Sapena. Það mál snerist einnig um útistand- andi skuld vegna skóframleiðslu. Héraðsdómur dæmdi Kron til að greiða fyrirtækinu 64.823 evrur, um tíu milljónir króna, og 1,4 milljónir í málskostnað. - hg Kron dæmt til að greiða átján milljónir króna: Áfrýja til Hæstaréttar ÁFRÝJA Hugrún Dögg Árnadóttir og Magni Þorsteinsson eru eigendur Krons ehf. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.