Fréttablaðið - 31.01.2014, Blaðsíða 51
LÍFEYRISSJÓÐIR
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2014 Kynningarblað Lífeyrisréttindi, viðbótarlífeyrissparnaður og sagan.
Viðbótarlífeyrissparnaður hefur aðra eiginleika en lögbundinn skyldu-sparnaður sem gengur út á dýrmæt-
an ævilangan lífeyri. Greiðslur í viðbótarlíf-
eyrissparnað eru frjálsar og undir hverjum
og einum komið hvort þessi valmöguleiki er
nýttur,“ segir Auður Finnbogadóttir, fram-
kvæmdastjóri Lífsverks, og áréttar að öllum
sé heimilt að greiða viðbótarlífeyrissparn-
að til Lífsverks.
Lífsverk býður upp á þrjár ávöxtunarleiðir
í viðbótarlífeyrissparnaði með mismunandi
áhættustigi. Auður segir mikilvægt að huga
að aldri, eignum og öðrum þáttum við val á
séreignarleið. „Sérfræðingar okkar geta að-
stoðað við val á ávöxtunarleið með tilliti til
áhættuþols,“ segir hún.
Þrjár séreignarleiðir
Séreignarleið 1 er innlend skuldabréfa-
leið. „Þessi leið hentar þeim sem vilja
leggja áherslu á verðtryggð skuldabréf, að
mestu leyti með ábyrgð ríkisins. Meðallíf-
tími skuldabréfa í leiðinni er langur og er
ávöxtun safnsins að miklu leyti háð sveifl-
um á ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa og
þeim verðbreytingum sem þær sveif lur
hafa á virði verðbréfanna,“ útskýrir Auður
og bætir við að leiðin sé talin bera með sér
meðaláhættu og henti almennt fólki á miðri
starfsævi.
Séreignarleið 2 er blönduð leið hluta-
bréfa og skuldabréfa, auk þess sem hlutfall
erlendra verðbréfa er um 17%. „Leiðin sam-
anstendur af ríkisskuldabréfum, innlend-
um og erlendum hlutabréfum, ásamt fyrir-
tækja- og sveitarfélagaskuldabréfum,“ lýsir
Auður, en vegna fjárfestinga í hlutabréfum
ætti þessi leið að gefa betri ávöxtun en Sér-
eignarleið 1 til lengri tíma. Ávöxtun safnsins
er að miklu leyti háð sveiflum á markaðs-
vöxtum ríkisskuldabréfa og verðbreyting-
um á innlendum og erlendum hlutabréf-
um. „Þessi leið hentar almennt frekar fólki
við upphaf starfsævinnar, eða þeim sem
vilja taka meiri áhættu, hafa gott þol gagn-
vart sveiflum í ávöxtun og vilja ávaxta fjár-
muni sína til lengri tíma.“
Séreignarleið 3 er innlánsleið. Leiðin er
blanda af innlánum og stuttum ríkisskulda-
bréfum. Þar sem áhættan er minnst í þessari
leið ætti hún að gefa lægstu ávöxtunina til
lengri tíma. „Ávöxtun safnsins er að miklu
leyti háð innlánsvöxtum banka,“ segir
Auður sem telur þessa leið henta almennt
best þeim sem nálgast eftirlaunaaldur, og/
eða leggja mikla áherslu á að vernda höfuð-
stól sinn.
Auður segir góða ávöxtun hafa verið á
öllum séreignarleiðum sjóðsins á árinu 2013.
„Hæsta ávöxtun var á Séreignarleið 2 eða
14,3%, ávöxtun Séreignarleiðar 1 var 5,1%,
og ávöxtun Séreignarleiðar 3 var 4,6%,“ upp-
lýsir hún en allar ávöxtunarleiðirnar skiluðu
umtalsvert betri ávöxtun en markaðsviðmið
þeirra. „Meðalávöxtun síðastliðinna fimm
ára er á bilinu 6,9%-14,9%.“
Frádráttarbært iðgjald hækkar á ný í
fjögur prósent
Þann 1. júlí næstkomandi taka gildi lög sem
hækka aftur frádráttarbært iðgjald í viðbót-
arlífeyrissparnað í 4%. Auður segir þetta
þýða að ekki þurfi að greiða tekjuskatt af
þessum hluta launa sem fer í viðbótarsparn-
að. „Samtals eru þetta 6% þar sem launa-
greiðandi greiðir 2%,“ segir hún.
„Fjárhagslegur ávinningur þess að greiða
í viðbótarlífeyrissparnað er mikill og er kost-
ur sem allir ættu að nýta sér sem hafa tök á
því. Ekki þarf að greiða tekjuskatt fyrr en við
úttekt,“ segir Auður og tiltekur að leggi ein-
staklingur fyrir að lágmarki 2% í viðbótar-
lífeyrissparnað fái hann 2% mótframlag frá
atvinnurekanda. „Einstaklingurinn fær því
tvöfalda þá upphæð sem hann greiðir inn í
sjóðinn. Þetta gerir það að verkum að erfitt
er að finna sparnaðarform sem stenst sam-
anburð við viðbótarlífeyrissparnað.“
Áhugaverður valkostur opinn öllum
Lífsverk býður upp á þrjár ávöxtunarleiðir í viðbótarlífeyrissparnaði og er öllum frjálst að greiða í þær. Margir kostir eru við
viðbótarlífeyrissparnað umfram hefðbundinn sparnað fyrir utan fjárhagslegan ávinning.
Auður Finnbogadóttir framkvæmdastjóri Lífsverks.
Frekari upplýsingar má finna á
heimasíðu Lífeyrissjóðs verkfræð-
inga, www.lifsverk.is
7,5%
SÉREIGN 1 SÉREIGN 3
5 ára meðaltal
Nafnávöxtun 2013
Viðmið 2013
5,1%
2,8%
14,9%
14,3%
6,2%
SÉREIGN 2
6,9%
4,6%
3,8%
Innlán
8,9%
Önnur
innlend
skuldabréf
27%
Ríkistryggð
skuldabréf
70,1%
Innlán
56,5%
Ríkistryggð
skuldabréf
43,5%
Ríkistryggð
skuldabréf
34,3%
Önnur
innlend
skuldabréf
17%
Erlend
hlutabréf
16,8%
Innlend
hlutabréf
22,9%
Innlán
2,9%
SÉREIGN 2SÉREIGN 1
SÉREIGN 3
EIGNASAMSETNING SÉREIGNARLEIÐA 2013
Ávöxtun í fortíð gefur ekki vísbendingu um ávöxtun í framtíð.
Fimm ára ávöxtunartölurnar sýna meðalnafnávöxtun frá 31.12.2008 -31.12.2013 fyrir Séreign 1 og 2,
en frá ágúst 2009-31.12.2013 fyrir Séreign 3.
ÁVÖXTUN SÉREIGNARLEIÐA