Fréttablaðið - 31.01.2014, Síða 55
KYNNING − AUGLÝSING Vefsíðugerð31. JANÚAR 2014 FÖSTUDAGUR 3
Allra Átta er fjölskyldufyrir-tæki sem á síðustu tíu árum hefur verið leiðandi í mark-
aðssetningu, hönnun og hýsingu
á notendavænum veflausnum.
Allra Átta notar nýjustu aðferð-
ir til að hjálpa fyrirtækjum við að
markaðssetja vörur sínar og þjón-
ustu í gegnum netið, hérlendis og
erlendis.
Hjá fyrirtækinu er valinn maður
í hverju rúmi en forritun og vef-
síðuhönnun fer að mestu leyti fram
erlendis en verkefnastjórnun og
gæðaeftirlit fer fram í höfuðstöðv-
um Allra Átta í Brautarholti 10.
Allra Átta greinir þarfir
Þarfagreining og stefnumótun er
grunnur að góðum vef.
„Þarfir viðskiptavina geta verið
mjög ólíkar og því mikilvægt í upp-
hafi að skoða hvaða árangri við-
skiptavinur ætlar sér að ná. Í fram-
haldi er útbúin áætlun um hvern-
ig best sé að ná þeim markmiðum
og fyrirtæki sem í upphafi móta sér
skýra stefnu í markaðssetningu
eru mun líklegri til að ná árangri,“
segir Jón Trausti Snorrason, fram-
kvæmdastjóri Allra Átta.
Allra Átta veitir ráðgjöf
Allra Átta veitir fyrirtækjum sér-
hæfða markaðsráðgjöf sem miðar
að því að auka sölu og styrkja
ímynd fyrirtækja á netinu.
„Við hlustum, skoðum, grein-
um og veitum að lokum faglega
ráðgjöf um alla helstu þætti mark-
aðssetningar á Netinu, sérsniðna
að hverjum viðskiptavini,“ segir
Jón Trausti.
Allra Átta framkvæmir frá A-Ö
Til að ráðgjöf nýtist tekur Allra Átta
þátt í framkvæmdinni.
„Við hönnum og setjum upp vef-
síður; skrifum texta, útvegum ljós-
myndir og útfærum útlit vefsíðna
þannig að þær verði sýnilegri á leit-
arvélum eins og Google,“ segir Jón
Trausti.
„Vinna við leitarvélabestun
(SEO) hefur aukist mikið og í dag er
það orðinn stór hluti af vel heppn-
uðum vef. Við aðstoðum fyrirtæki
gjarnan við að útbúa fréttabréf,
veita ráðgjöf um notkun samfélags-
miðla, eins og Facebook, og hjálp-
um fyrirtækjum með markaðsher-
ferðir á netinu.“
Verkefnastjórnun og forritun
úthýst til Allra Átta
Allra Átta hefur á síðustu árum
vaxið út fyrir landsteina og fer nú
stór hluti forritunar fram á erlendri
grundu, með góðum árangri.
„Íslensk fyrirtæki leita til okkar
í vaxandi mæli með að halda utan
um verkefnastjórnun á smærri
og stærri verkefnum. Dæmi um
slík verkefni eru ýmis sérforritun,
tenging bókhalds- og birgðakerfa
við netverslanir, uppfærslur á eldri
vefkerfum og breytingar og endur-
hönnun á viðmóti og grafísku út-
liti vefsvæða,“ útskýrir Jón Trausti.
Allra Átta hýsir og þjónustar
Úthýsing á forritun er vinsæl þjón-
usta hjá Allra Átta. Fyrirtækið for-
ritar og sérhæfir sig í vefkerfum
fyrir WordPress, SilverStripe, A8-
CMS-vefumsjónarkerfi og hin vin-
sælu Cs-Cart og WooCommerce-
netverslanakerfi.
„Fyrirtæki með vefi í þessum
kerfum geta leitað til okkar. Við
veitum ráðgjöf og hjálpum fyrir-
tækjunum að gera þær breytingar
sem þarf, hvort sem um er að ræða
hönnun eða forritun,“ upplýsir Jón
Trausti.
Allra Átta býður einnig upp á
örugga hýsingu og þjónustu fyrir
ofangreind vefkerfi, allt að óskum
og þörfum viðskiptavina.
„Það hentar fyrirtækjum sem
vilja úthýsa vefráðgjöf, verkefna-
stjórnun, hönnun og forritun og
á sama tíma ná fram hagræðingu
í rekstri. Síðast en ekki síst hjálp-
um við fyrirtækjum að ná árangri
í markaðssetningu á netinu.“
Allra Átta er í Brautarholti 10. Sjá
nánar á www. 8.is. Á borðanum
hér fyrir neðan má sjá nokkur af
þeim 900 fyrirtækjum sem Allra
Átta hefur unnið með síðustu ár.
Markaðsráðgjöf, vefhönnun
og hýsingar hjá Allra Átta í 10 ár
Fjölskyldufyrirtækið Allra Átta fagnar nú tíu ára afmæli sínu. Á áratug hefur fyrirtækið notið trausts og velgengni og aðstoðað yfir 900
íslensk fyrirtæki í markaðssetningu á netinu. Kjörorð Allra Átta felst í stefnumótun og þarfagreiningu sem leggja grunninn að góðum vef.
Fyrirtæki sem í
upphafi móta
sér skýra stefnu í
markaðssetningu eru
mun líklegri til að ná
árangri.
Jón Trausti
Snorrason,
framkvæmdastjóri
Allra Átta.
M
Y
N
D
/G
VA