Fréttablaðið - 31.01.2014, Qupperneq 78
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 50
„Sýningin verður síbreytileg því fólk
getur haft áhrif á hvaða listaverk úr
okkar safneign rata inn á hana,“ segir
Ólöf Sigurðardóttir, forstöðumaður
Hafnarborgar, um sýninguna Þitt er
valið sem þar verður opnuð á morgun.
Hún hvetur sem flesta til að velja verk
úr listaverkaskrá Hafnarborgar í gegn-
um heimasíðurnar hafnarborg.is og sarp-
ur.is og bendir á að þeir sem taka þátt í
valinu geti verið staddir hvar sem er í
veröldinni.
Óskir skal senda á netfangið hafnar-
borg@hafnarfjordur.is ásamt stuttum
rökstuðningi fyrir valinu. „Við reynum
að verða við öllum óskum, bæta í sal-
inn, taka niður verk og setja upp önnur,“
segir Ólöf og tekur fram að leitast verði
við að láta verkin njóta sín og gera þeim
jafnframt skil með hugmyndalegu og
sögulegu samhengi. „Við eigum von á að
verkin sem eru hér við sýningaropnun
á morgun verði allt önnur en þau sem
verða uppi 9. mars þegar sýningunni
lýkur. Gestir geta því komið vikulega
og alltaf séð eitthvað nýtt,“ segir hún og
giskar á að hvert verk verði kannski uppi
í viku til tíu daga.
Sigurður Trausti Traustason, fram-
kvæmdastjóri Sarps, heldur stutta kynn-
ingu á vef Sarps og notkunarmöguleikum
hans á morgun klukkan 15 og starfsfólk
Hafnarborgar og Sarps verður á staðnum
milli klukkan 15 og 17 bæði á morgun og
sunnudag til að ræða við sýningargesti
um verkin.
Flest verkin í safneign Hafnarborgar
eru frá seinni hluta 20. aldar, málverk,
skúlptúrar, leirverk og ljósmyndir að
sögn Ólafar. Hún segir verkin á sýning-
unni verða merkt á hefðbundinn hátt en
einnig komi fram hver óski eftir sýningu
hvers verks og hvers vegna. „Sumir eru
búnir að senda inn langan texta en aðrir
bara nokkur orð. Það eru mismunandi
hlutir sem hafa áhrif á valið.“
gun@frettabladid.
Mismunandi hlutir hafa áhrif á valið
Almenningi gefst kostur á að velja listaverk á sýningu í Hafnarborg í Hafnarfi rði sem hefst á morgun. Hún nefnist Þitt er valið. Gald-
urinn felst í að fara inn á heimasíðurnar hafnarborg.is eða sarpur.is skoða safneignina og senda póst til Hafnarborgar.
FORSTÖÐUMAÐURINN Gestir geta komið vikulega og alltaf séð eitthvað nýtt,“ bendir Ólöf á. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
BJARTUR 1994 Verk eftir
Sæmund Valdimarsson.
VETRARSÓLHVÖRF Í HAFNARFIRÐI Verk
eftir Ásgrím Jónsson frá 1930.
BÖRN AÐ LEIK Í FJÖRUBORÐINU Verk eftir
Kristján Davíðsson frá 1949.
➜ Við eigum von á að verkin
sem eru hér við sýningaropnun
á morgun verði allt önnur
en þau sem verða uppi 9. mars
þegar sýningunni lýkur.
HELGARBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Ómissandi hluti af góðri helgiSkaft ahlíð 24 | 105 Reykjavík | 512 5000 | Auglýsingar 512-5401 | visir.is
STARFAR MEÐ
HOLLYWOOD-STJÖRNUM
Eva María Daníelsdóttir er kvikmyndaframleiðandi, búsett
í New York, og hefur starfað með sumum frægustu stjörnum
Hollywood. Hún ræðir ferilinn, endurgreiðslur vegna kvikmynda á
Íslandi og áföllin en faðir hennar og bróðir létust nýlega með nokk-
urra mánaða millibili. Hún saknar Íslands og vill eyða meiri tíma hér
á landi.
FRÉTTABLAÐIÐ ER HELGARBLAÐIÐ
Super Bowl
á sunnudag
Einn stærsti íþróttaviðburður
ársins verður á sunnudags-
kvöld þegar Denver Broncos
og Seattle Seahawks mætast
í Super Bowl, úrslitaleik NFL-
deildarinnar. Hvað gera Peyton
Manning og Denver Broncos
gegn ógnarsterku varnarliði
Seattle Seahawks?
Ánægð á Ísafirði
Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir flutti
frá Reykjavík til Ísafjarðar fyrir tveimur
árum. Þar hefur hún komið sér vel fyrir
með fjölskyldu sinni og líkar lífið vel. Hún
starfar sem verkefna- og rekstrarstjóri
menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar og
er formaður Femínistafélags Vestfjarða.
Ný bók um hrunið
Eiríkur Bergmann, prófessor í
stjórnmálafræði, gaf nýlega út
bók um íslenska efnahagshrun-
ið og eftirmál þess. Þar fjallar
hann um kenningu sína um
grundvöll hrunsins og pólitíska
sjálfsmynd Íslendinga.