Fréttablaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 6
15. mars 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
Loft innan fárra mínútna
Ilmur af mentól og eukalyptus
Andaðu
með nefinu
Otrivin Menthol ukonserveret, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð
1 mg/ml. Ábendingar: Bólgur og aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Skammtar
og lyfjagjöf: Fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára: 1 úði í hvora nös 3 sinnum á sólarhring
eftir þörfum, lengst í 10 sólarhringa og ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á
sólarhring. Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingranna.
Úðað er með því að þrýsta kraganum niður að flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram.
Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu sinni, um leið og andað er
að sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi
fyrir einhverju innihaldsefnanna, ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum nefið eða
munninn eða ert með þrönghornsgláku. Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú
ert: Þunguð, með barn á brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum, ert með skjaldvakaóhóf,
sykursýki, háþrýsting, æðakölkun, slagæðargúlp, blóðtappa í hjarta, óreglulegan eða hraðan
púls, erfiðleika við þvaglát, æxli í nýrnahettum, þunglyndi og ert á lyfjameðferð við því.
Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er
að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare.
Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
Arna Mekkín
Ragnarsdóttir
hefur hafið störf hjá
Sjúkraþjálfuninni AFL, Borgartúni 6
Tímapantanir í síma 511 4111
www.aflid.is
SKIPULAG Hvorki Dómarafélag
Íslands né dómstólaráð hafa feng-
ið að vera með í ráðum eða feng-
ið afrit af bréfaskriftum borgar-
stjóra og innanríkisráðherra um
mögulegan flutning Héraðsdóms
Reykjavíkur af Lækjartorgi, að
sögn Skúla Magnússonar, for-
manns Dómarafélagsins.
Vitnað var á Vísi í fyrradag í
skrif Dags B. Eggertssonar á
Facebook þar sem hann sagði að
innanríkisráðherra hefði tekið
vel í óskina um viðræður um að
flytja Héraðsdóm af Lækjartorgi.
„Borgarráð skipaði viðræðuteymi
í morgun,“ skrifaði Dagur.
Í viðtali við Vísi sagði hann
að lögreglustöðvarreiturinn við
Hlemm væri tilvalin staðsetning.
Þar væri stórt plan þar sem hægt
væri að koma upp byggingum.
Símon Sigvaldason, formaður
dómstólaráðs sem fjallaði meðal
annars um málið á fundi sínum
í gær, segir það algerlega ótækt
að flytja starfsemi dómhússins
á lögreglureitinn. „Árið 1992
varð frægur aðskilnaður. Þá var
dómsvald og framkvæmdavald
aðskilið. Dómsvaldið var tekið
af sýslumönnum til að það yrði
sýnilega sjálfstætt. Dómsvaldið
á að vera óháð og ótengt fram-
kvæmdarvaldinu og þess vegna
gengur aldrei að setja lögreglu
og dómstóla aftur á sama stað,“
segir Símon og bætir við að dóm-
stólaráð mótmæli harðlega þeim
vinnubrögðum að ekkert samráð
skuli hafa verið haft við það og
Héraðsdóm Reykjavíkur um und-
irbúning að flutningnum.
Ráðið segir að finna verði starf-
seminni stað í hjarta höfuðborg-
arinnar þar sem nú þegar sé að
finna helstu stofnanir ríkisins og
Reykjavíkurborgar.
Skúli Magnússon segir að svo
virðist sem flytja eigi Héraðsdóm
hreppaflutningum. „Þetta virðist
alfarið vera mál borgarinnar og
innanríkisráðherra hvar stærsti
dómstóll landsins eigi að vera.
Það er ekki metnaður fyrir því
að Héraðsdómur fái stað sem ber
vitni um virðingu og reisn dóm-
kerfisins þegar rætt er um hann
verði á bak við lögreglustöðina,“
segir Skúli.
Formaður borgarráðs hefur
lýst því yfir að dómhúsið smiti
engri gleði á Lækjartorg. Mögu-
leiki væri að koma þar fyrir
verslunum og veitingahúsi.
„Þetta er partur af því sem
ég myndi kalla kaffihúsavæð-
ingu miðbæjarins. Það er tíma-
bært að menn fari að spyrja sig
að því um hvað miðborg eigi að
snúast,“ segir formaður Dómara-
félags Íslands.
ibs@frettabladid.is
Ótækt að dómstóll sé
á reit hjá lögreglunni
Formaður dómstólaráðs segir ekki ganga að setja lögreglu og dómstóla aftur á
sama stað. Dómstólaráð og formaður Dómarafélags Íslands mótmæla að ekki skuli
hafa verið haft samráð um mögulegan flutning starfsemi Héraðsdóms Reykjavíkur.
UMHVERFISMÁL Sundabraut er á
ný komin inn á samgönguáætl-
un. Drög að samgönguáætlun til
næstu fjögurra ára voru sam-
þykkt í ríkisstjórn í gær og verður
áætlunin lögð fyrir Alþingi innan
skamms sem þingsályktunartil-
laga.
Samkvæmt samgönguáætlun-
inni á að huga að mögulegri fjár-
mögnun Sundabrautar með þátt-
töku einkaaðila. Stefnt er að því
að hefja samstarf einkaaðila og
ríkisins vegna fjármögnunar
hennar á næstu fjórum árum.
Hanna Birna Kristjánsdóttir
innanríkisráðherra hefur sagt að
Sundabraut uppfylli þau skilyrði
sem hún setji varðandi einka-
framkvæmdir, það er að vegfar-
endur hafi kost á annarri leið
samhliða einkaframkvæmdinni.
Meðal stærstu framlaga á
næsta ári til vegaverkefna má
nefna þriggja milljarða króna
framlag til Norðfjarðarganga,
um 800 milljóna króna framlag
til breikkunar á Hellisheiðarvegi
og framkvæmdir við Arnarnesveg
fyrir um 500 milljónir króna. - jme
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að setja Sundabraut á nýja samgönguáætlun:
Sundabraut í einkaframkvæmd
LÖGREGLUSTÖÐ-
IN HVERFISGÖTU
Hingað vill formað-
ur dómstólaráðs
ekki flytja Héraðs-
dóm Reykjavíkur
eins og formaður
borgarráðs hefur
stungið upp á.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SÍMON SIG-
VALDASON
SKÚLI
MAGNÚSSON
SUNDABRAUT Hanna Birna Kristjáns-
dóttir innanríkisráðherra ætlar að
kanna möguleika á því að fjármagna
nýja Sundabraut með samstarfi einka-
aðila og ríkisins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SKÓLAMÁL Stíf fundarhöld voru í
gær í kjaradeilu framhaldsskóla-
kennara og ríkisins. Takist ekki að
semja um helgina hefst verkfall
kennara á mánudaginn.
„Við höldum áfram á morgun,“
segir Gunnar Björnsson, for-
maður samninganefndar ríkis-
ins. Hann segir enga sérstaka
bjartsýni hafa ríkt á fundunum í
gær, en öllum dyrum sé þó haldið
opnum.
Mikil óvissa var meðal nem-
enda í framhaldsskólum í gær og
lagðist hugsanlegt verkfall misjafn-
lega í þá nemendur, sem rætt var
við í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld.
„Ef verkfallið verður stutt verð-
ur þetta kannski í lagi, en það má
ekki verða of langt,“ sagði Baldvin
Snær Finnsson, nemandi á fyrsta
ári við Menntaskólann við Hamra-
hlíð. - gbv
Takist ekki samningar fyrir mánudag var síðasti kennsludagurinn í gær:
Reynt til þrautar um helgina
ÓVISSA Í MH Nemendur framhalds-
skólanna eru farnir að hafa áhyggjur af
komandi verkfalli.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN