Fréttablaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 30
15. mars 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30
Farþegaskráin í Malasíuflugi MH370
Freyr
Bjarnason
freyr@frettabladid.is
Misvísandi upplýsingar um
dularfullt hvarf farþegaflugvélar
Þegar flug MH370 frá Malaysia Airlines hvarf af ratsjá í góðu veðri síðastliðið laugardagskvöld gat enginn útskýrt hvernig
þessi Boeing 777-farþegaflugvél gat horfið, að því er virtist upp úr þurru. Síðan þá hafa misvísandi upplýsingar og alls kyns
kenningar verið í gangi um hvarfið án þess að nein sönnunargögn hafi komið fram. Hvað sem því líður, þá er þessi þota
með 239 manneskjur um borð enn ófundin.
FIMM DULARFULL FLUGVÉLARHVÖRF
2009
Fimm dagar
liðu þangað til flak Air
France frá Rio de Janeiro til
Parísar 2009 fannst í Atlants-
hafi. Tæp tvö ár liðu þangað til
flugritinn fannst á 4.000 metra
dýpi. Engin hinna 228 um borð
komst lífs af. Talið var að sjálfs-
stýring hefði farið úr sam-
bandi og að flugmennirn-
ir hefðu misst stjórn
á vélinni.
1957
Boeing 377-vél
Pan Am með 44 um borð
tók af stað frá San Francisco
til Honolulu 1957. Þegar flugið
var hálfnað hvarf hún af ratsjá
yfir Kyrrahafinu án þess að
neyðarkall heyrðist frá flug-
mönnunum. Sex dögum síðar
fundust lík úr vélinni og hluti
af flakinu. Ekki er vitað
fyrir víst hvað olli
slysinu.
2007
Steve Fossett
flaug af stað á einka-
flugvél sinni frá Nevada í
Bandaríkjunum 2007 en ekkert
spurðist til hans eftir það. Um-
fangsmikil leit að vélinni stóð yfir
allt þar til rúmu ári síðar þegar
flakið fannst í fjallgarði í Kali-
forníu. Talið var að sterkur
vindur hefði líklega valdið
slysinu.
Laugardagur 8. mars
Nokkrum klukkustundum eftir að far-
þegaflugvél Malaysia Airlines hvarf af
ratsjá sagði framkvæmdastjóri Mala-
ysia Airlines, Ahmad Jauhari Yahya,
að hún hefði enn verið í sambandi við
flugumferðarstjórn um tveimur klukkustund-
um eftir að hún tók á loft. Síðustu samskiptin
hefðu verið klukkan 2.40 um nóttina, 120
sjómílur austur af strönd Malasíu.
En flugumferðarvefsíðan FlightAware sýndi
vélina klifra í 35 þúsund feta hæð áður en hún
hvarf af ratsjá klukkan 1 um nóttina, um tuttugu
mínútum eftir flugtak. Þá átti vélin að fara inn í
víetnamska lofthelgi en gerði það ekki. Flugmenn-
irnir sendu ekki út neyðarkall.
Tólf klukkustundum eftir að vélin hvarf hófu
leitarflokkar frá Malasíu, Singapúr og Víetnam
leit að flaki hennar undan ströndum Víetnams.
Kínverjar og Filippseyingar komu fljótlega til liðs
við þá. Víetnamskur sjóðliðsforingi sagði að vélin
hefði hugsanlega brotlent skammt frá víetnamskri
eyju og fréttir bárust af mikilli olíubrák og reyk á
svæðinu.
Hugmyndum um að hryðjuverk hafi verið framið
var varpað fram eftir að Ítali og Austurríkismaður
sögðust ekki hafa verið um borð í vélinni þrátt fyrir
að þeir hefðu verið á farþegalistanum.
Sunnudagur 9. mars
Bandaríkjamenn hófu þátttöku í leitinni. Najib Ra-
zak, forsætisráðherra Malasíu, sagði að hryðjuverk
væri möguleg orsök eftir að fregnir bárust af því að
allt að fjórir farþegar vélarinnar hefðu hugsanlega
verið með stolin vegabréf.
Víetnamar sögðust hafa fundið flak úr vélinni
á meðan Hishamuddin Hussein, samgönguráð-
herra Malasíu, sagði að hún hefði mögulega
snúið aftur til baka til Malasíu. Síðar um daginn
kom í ljós að vegabréfum Ítalans og Austurríkis-
mannsins hafði verið stolið í Taílandi. Óttast var
að þeir sem notuðu vegabréf þeirra hefðu verið
hryðjuverkamenn.
Mánudagur 10. mars
Aharuddin Abdul Rahman, flugmálastjóri
Malasíu, sagði að fimm farþegar hefðu skráð
sig í flug 370 en ekki farið um borð. Ótti um að
hryðjuverk hefði verið framið fékk byr undir
báða vængi.
Yfirvöld vísuðu á bug fregnum Víetnama um
að flak vélarinnar hefði fundist. Olíubrákin var
sögð hafa komið frá skipi. „Björgunarbátur“ átti
að hafa sést undan ströndum Víetnams en þar
reyndist vera á ferðinni togvinda þakin þara.
Eftirlitsmyndir af tveimur mönnum á leið í flug-
vélina með stolnu vegabréfin tvö voru birtar.
Þriðjudagur 11. mars
Fulltrúar Malaysia Airlines sögðu að flug-
mennirnir hefðu hugsanlega reynt að snúa
vélinni við til Malasíu. Leitarsvæðið var
stækkað og fleiri leitarflokkar voru sendir á
vettvang. Tan Sir Rodzali Daud, yfirmaður
malasíska flughersins, sagði að vart hefði
orðið við flugvélina klukkan 2.40 skammt
frá eyjunni Pulau Perak á Malakkasundi, sem
benti til þess að hún hefði snúið við eins og
vangaveltur höfðu verið uppi um. Síðar bar
hann þessi ummæli sín til baka.
Hugmyndir um að hryðjuverk hefði verið
framið fjöruðu að mestu út eftir að Interpol
birti upplýsingar um þá sem höfðu stolnu
vegabréfin í fórum sínum. Talið var að þeir
hefðu verið hælisleitendur en ekki hryðju-
verkamenn.
Miðvikudagur
12. mars
Daud sagði að síðasta ratsjármerki týndu flug-
vélarinnar hefði borist 200 mílum norðvestur
af malasíska strandríkinu Penang klukkan
2.15 á laugardeginum. Þetta var þriðja útgáfan
af mögulegri staðsetningu vélarinnar áður
en hún hvarf. Þetta átti að hafa gerst 45
mínútum eftir að yfirvöld sögðust upphaflega
hafa misst samband við vélina. Daud sagði
síðar að ratsjármerkið hefði hugsanlega
komið frá annarri flugvél.
Óstaðfestar fregnir bárust um að malasískir
sjómenn hefðu séð eitthvað sem leit út eins
og björgunarbátur fljótandi í sjónum við
austurströnd Malasíu. Peking News sagði
frá því að lík hefði fundist á Malakkasundi í
björgunarvesti en það reyndist ekki rétt.
Fimmtudagur 13. mars
Í ljós kom að kínverskar gervihnattamyndir
sem áttu að sýna flak vélarinnar voru birtar
fyrir mistök. Ekki var um brak úr henni að
ræða að sögn samgöngumálaráðherrans
Hishammuddins Hussein. Hann sagði það
rangt að vélinni hefði verið flogið í fjórar
klukkustundir eftir að samband rofnaði við
flugturninn, eins og fjölmiðlar höfðu haldið
fram. Bandaríkjamenn sögðu að nýjar upp-
lýsingar hefðu leitt til þess að leitað verði að
vélinni á nýju leitarsvæði í Indlandshafi.
Föstudagur 14. mars
Bandarísk rannsóknarnefnd sagðist hafa upplýsingar
um að slokknað hefði á samskiptabúnaði vélarinnar
með fjórtán mínútna millibili. Þetta þýddi að vélin
hafi ekki lækkað flug sitt vegna bilunar heldur benti
samskiptarofið til þess að slökkt hafi verið á búnað-
inum handvirkt. Nefndin sagðist fullviss um að hvarf
vélarinnar hafi verið meðvituð ákvörðun annars, ef
ekki beggja flugmanna flugs 370. Leitin að vélinni
beindist í auknum mæli í átt að Indlandshafi. 57
skip, 48 flugvélar og þrettán lönd tóku þátt.
Kínverjar hvöttu yfirvöld í Malasíu til að birta
allar mögulegar upplýsingar sem gætu tengst hvarfi
vélarinnar í von um að þrengja leitarsvæðið. Þeir
voru orðnir langþreyttir á misvísandi upplýsingum
undanfarinnar viku.
153 Kínverjar
38 Malasíubúar
7 Indónesíumenn
6 Ástralar
5 Indverjar
4 Frakkar
3 Bandaríkjamenn
2 frá hverju um sig, Nýja-Sjálandi, Úkraínu og
Kanada.
1 frá hverju um sig, Rússlandi, Taívan og Hol-
landi.
2 menn, annar frá Íran, ferðuðust með stolin
ítölsk og áströlsk vegabréf.
Heimild: Malaysia Airlines
2007
Boeing 737-þota
Adam Air með 102 um
borð hvarf í flugi á milli
tveggja indónesískra borga
2007. Allir um borð fórust og tók
það rúma viku að finna flakið.
Úrskurðað var að þotan hefði
brotlent í sjónum eftir að
flugmennirnir hefðu lent í
vanda með leiðarkerfið
og misst stjórn á
vélinni.
1937
Frægasta flug-
vélarhvarf allra tíma
átti sér stað árið þegar vél
Ameliu Earhart hvarf á leið
sinni í kringum hnöttinn. Ear-
hart var á flugi yfir Kyrrahafinu
þegar slysið varð. Eftir mikla
leit að vélinni, án árangurs,
var hún úrskurðuð látin
tveimur árum síðar.