Fréttablaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 8
15. mars 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Eldhús- og skolvaskar
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Bol-834 80x48x18cm þykkt 0,8mm
11.990
Bol-604 48x43x18cm
Þykkt stáls 0,8mm
7.490
(fleiri stærðir til)
Gua 539-1 með veggstál-
plötu, grind fylgir, 1mm stál
16.990
Botnventill og
vatnslásar fylgja
öllum vöskum
CR Plast skolvaskur
55x34x21cm með botn-
ventli og vatnslás
7.890
Gua-543-1 vegghengdur,
1mm stál, einnig fáanlegur
í borð kr. 17.990
19.900
Mikið úrval af
blöndunartækjum.
Á MÚRBÚÐARVERÐI
a blöndunartækiCis
4.990
Bekanntmachung
für Deutsche zur Wahl zum
Europäischen Parlament
Am 25. Mai 2014 findet die Wahl der
Abgeordneten des Europäischen Parlaments
aus der Bundesrepublik Deutschland stat t .
Deutsche, die außerhalb der Bundesrepub-
lik Deutschland leben und im Bundesgebiet
keine Wohnung mehr innehaben, können bei
Vorliegen der sonstigen wahlrechtlichen
Voraussetzungen an der Wahl teilnehmen.
Für ihre Wahlteilnahme ist u. a.
Voraussetzung, dass sie
1.1 am Wahltag seit mindestens drei
Monaten in den übrigen Mitgliedstaaten der
Europäischen Union eine Wohnung innehaben
oder sich mindestens seit dieser Zeit dor t
gewöhnlich aufhalten (auf die Dreimonats-
frist wird ein unmit telbar vorausgehender
Aufenthalt in der Bundesrepublik Deutsch-
land angerechnet)
oder
1.2 entweder nach Vollendung ihres 14.
Lebensjahres mindestens drei Monate
ununterbrochen in der Bundesrepublik
Deutschland1) eine Wohnung innegehabt oder
sich sonst gewöhnlich aufgehalten haben
und dieser Aufenthalt nicht länger als 25
Jahre zurück liegt , oder aus anderen Gründen
persönlich und unmit telbar Ver trautheit mit
den politischen Verhältnissen in der Bun-
desrepublik Deutschland erworben haben und
von ihnen betrof fen sind;
2. in ein Wählerverzeichnis in der Bundes-
republik Deutschland eingetragen sind.
Diese Eintragung erfolgt nur auf Antrag.
Der Antrag ist auf einem Formblatt zu stellen;
er soll bald nach dieser Bekanntmachung
abgesandt werden.
Einem Antrag, der erst am 5. Mai 2014 oder
später bei der zuständigen Gemeindebehörde
eingeht, kann nicht mehr entsprochen werden
(§ 17 Abs. 1 der Europawahlordnung).
Antragsvordrucke (Formblät ter) sowie
informierende Merkblät ter sind online auf der
Seite des Bundeswahlleiters
(www.bundeswahlleiter.de) erhältlich.
Sie können auch bei
- den diplomatischen und berufskonsular-
ischen Vertretungen der Bundesrepublik
Deutschland,
• dem Bundeswahlleiter, Statistisches
Bundesamt, Zweigstelle Bonn,
Post fach 17 03 77, 53029 BONN, GERMANY,
• den Kreis- und Stadtwahlleitern in der
Bundesrepublik Deutschland
angefordert werden.
Weitere Auskünf te er teilen die Botschaf ten
und berufskonsularischen Vertretungen der
Bundesrepublik Deutschland.
1) Zu berücksichtigen is t auch eine frühere Wohnung oder ein
früherer Aufenthalt in dem in Ar t ikel 3 des Einigungsver trages
genannten Gebiet (Brandenburg, Mecklenburg-Vorpommern,
Sachsen, Sachsen-Anhalt und Thüringen zuzüglich des Gebietes
des früheren Berlin (Ost)) .
HAUSANSCHRIF T:
Laufásvegur 31, 101 Reykjavik
POSTANSCHRIF T:
Pósthólf 400, 121 Reykjavík
Öffnungszeiten:
Mo – Fr 9 bis 12 Uhr
Geschäftszeiten:
Mo – Do 8 bis 16.30 Uhr,
Fr 8 – 13.30 Uhr
INTERNET:
www.reykjavik.diplo.de
E-Mail:
info@reykjavik.diplo.de
TEL: + 354 530 11 00
FA X: + 354 530 11 01
VIÐSKIPTI „Það er ekki hægt að reka
alþjóðlegt fyrirtæki með mynt sem
er nokkurn veginn ekki til,“ sagði
Niels Jacobsen stjórnarformaður
Össurar hf. í samtali við Frétta-
blaðið. Össur hélt aðalfund í gær
þar sem Jacobsen hélt ræðu og fór
ekki fögrum orðum um íslenskt við-
skipta- og lagaumhverfi.
Jacobsen sagði gjaldeyrishöftin
valda Össuri mestum vandræðum,
en félagið hefði talið vegferðina inn
í ESB góða leið til að komast undan
þeim. Hann sagðist mjög sorg-
mæddur að heyra að ríkisstjórnin
ætlaði núna að slíta aðildarviðræð-
unum, án þess að vera með nokk-
urt plan um hvernig aflétta ætti
höftunum. „Sem alþjóðlegt fyrir-
tæki er ómögulegt að vera í rekstri
með viðvarandi gjaldeyrishöftum
og sérstaklega þar sem við störfum
með undanþágum sem hægt er að
afnema hvenær sem er. Fyrir fyrir-
tæki sem starfa á heimsmarkaði er
aðgangur að alþjóðlegum gjaldeyri
og fyrirsjáanleiki í viðskipta- og
lagaumhverfinu mjög mikilvægur.“
Jón Sigurðsson forstjóri bætir við
að þrátt fyrir að höftunum yrði aflétt
ættu viðskipti sér aðeins stað í krón-
um á Íslandi. „Krónan er ekki mynt
sem er hægt að eiga viðskipti með
neins staðar annars staðar, jafnvel
þótt höftunum yrði aflétt,“ segir Jón.
Jacobsen segir Ísland verða af
talsverðum tekjum af því að Össur
sé með öll sín fjármál í gegnum
erlend dótturfélög. „Við gætum
verið að fá lán frá íslenskum bönk-
um og tekið frekari þátt í íslensk-
um efnahag. Í dag rekum við höfuð-
stöðvarnar og erum með verulegan
starfsmannafjölda hér en það er
eina framlagið sem við getum skil-
að til landsins eins og staðan er í
dag,“ segir Jacobsen og bætir við:
„Þetta gengur ekki til lengri tíma.
Á þessari stundu er Ísland ekki
góður staður til að reka alþjóðlegt
fyrirtæki. Þetta er meiriháttar
áhyggjuefni og ég vona að það verði
komið fram með lausn fljótlega.“
Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra segir aðspurður um
ummæli Jacobsens að vísbend-
ingar sem stjórnvöld fái innan úr
efnahagslífinu séu í hina áttina.
„Fjárfesting er að vaxa, atvinnu-
leysi er að minnka, hér er meiri
hagvöxtur en annars staðar á Evr-
ópska efnahagssvæðinu. Það er
hins vegar alveg rétt að á meðan
hér eru gjaldeyrishöft þá eru þau
svona eins og skuggi yfir efna-
hagslífinu. Þess vegna er svo mik-
ilvægt að það náist áfangi á næstu
misserum til þess að aflétta þeim,“
sagði Bjarni. fanney@frettabladid.is
Ísland hentar illa
alþjóðafyrirtækjum
Stjórnarformaður Össurar segir ekki hægt að reka alþjóðlegt fyrirtæki með krón-
una í gjaldeyrishöftum. Varð fyrir vonbrigðum með fyrirhuguð slit á viðræðum
við ESB. Skilaboðin úr efnahagslífinu eru í hina áttina, segir fjármálaráðherra.
Hinn danski stjórnarformaður Össurar hf., Niels Jacobsen, er
vel þekktur úr viðskiptalífinu í Danmörku og víðar. Hann er
fæddur árið 1957 og býr í Danmörku.
Jacobsen hefur setið í stjórn Össurar frá árinu 2005 og
verið formaður stjórnarinnar frá árinu 2006.
Jacobsen er þar að auki forstjóri Williamt Demant
Holding A/S sem er fjárfestingafélag á heilbrigðissviði
og situr í stjórnum fjölda annarra félaga á borð við
leikfangaframleiðandann LEGO þar sem hann er
stjórnarformaður, sem og iðnsamsteypunnar A.P.
Møller-Mærsk A/S og samskiptafyrirtækisins
Sennheiser Communications A/S.
HVER ER NIELS JACOBSEN?
ÁHYGGJUR
AF STÖÐUNNI
Forsvarsmenn
Össurar eru
ekki ánægðir
með íslenskt
viðskipta- og
lagaumhverfi.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
DÓMSMÁL Grundvöllur stórs
hluta ákæru sérstaks saksókn-
ara á hendur fjórmenningunum í
Aserta-málinu er hruninn. Fjögur
ár hafa farið í rannsókn málsins.
Þess hluta ákærunnar þar sem
krafist er refsingar fyrir brot á
gjaldeyrishöftum verður ekki
haldið til streitu samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins.
Ástæðan er sú að sérstakur sak-
sóknari getur ekki krafist refs-
ingar á grundvelli reglna um
gjaldeyrismál sem voru settar af
Seðlabankanum þann 15. desem-
ber 2008. Reglurnar voru í gildi
þegar meint brot fjórmenninganna
áttu sér stað frá 25. mars 2009 allt
til 31. október sama ár.
Ekki er hægt að refsa fyrir brot
á reglunum vegna þess að sam-
þykki þáverandi viðskipta- og
efnahagsráðherra fyrir reglun-
um skorti, en bráðabirgðaákvæði
í þágildandi lögum um gjaldeyris-
mál gerði ráð fyrir að slíkt sam-
þykki þyrfti að vera fyrir hendi.
„Ég kannast ekki við að Seðla-
bankinn hafi nokkurn tímann
aflað samþykkis fyrir þessum
reglum,“ segir fyrrverandi efna-
hags- og viðskiptaráðherra, Björg-
vin G. Sigurðsson.
Árið 2008 aflaði Seðlabankinn
samþykkis ráðherra fyrir breyt-
ingum á þágildandi reglum sínum,
en í stað þess að breyta reglunum
setti hann nýjar reglur, án þess
að hafa aflað sérstaks samþykkis
ráðherrans fyrir því, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins.
Það var ekki fyrr en á mánu-
daginn síðastliðinn sem í ljós hafi
komið að samþykkið skorti, löngu
eftir að málið hafði verið þingfest.
Í ljósi þessa er ekki hægt að
krefjast refsingar yfir fjórmenn-
ingunum fyrir brot á reglunum.
Málinu var vísað frá Héraðs-
dómi Reykjaness í gær vegna
óskýrleika ákærunnar, sem teng-
ist reglum Seðlabankans ekki með
beinum hætti.
Sérstakur saksóknari metur nú
hvert framhald málsins verður.
- js
Aserta-málið er í uppnámi vegna handvammar SÍ:
Seðlabankinn setti
reglur án samþykkis
BANKASTJÓRN SEÐLABANKANS Aserta-málið er í uppnámi vegna reglna sem
aldrei voru samþykktar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA