Fréttablaðið - 15.03.2014, Síða 30

Fréttablaðið - 15.03.2014, Síða 30
15. mars 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30 Farþegaskráin í Malasíuflugi MH370 Freyr Bjarnason freyr@frettabladid.is Misvísandi upplýsingar um dularfullt hvarf farþegaflugvélar Þegar flug MH370 frá Malaysia Airlines hvarf af ratsjá í góðu veðri síðastliðið laugardagskvöld gat enginn útskýrt hvernig þessi Boeing 777-farþegaflugvél gat horfið, að því er virtist upp úr þurru. Síðan þá hafa misvísandi upplýsingar og alls kyns kenningar verið í gangi um hvarfið án þess að nein sönnunargögn hafi komið fram. Hvað sem því líður, þá er þessi þota með 239 manneskjur um borð enn ófundin. FIMM DULARFULL FLUGVÉLARHVÖRF 2009 Fimm dagar liðu þangað til flak Air France frá Rio de Janeiro til Parísar 2009 fannst í Atlants- hafi. Tæp tvö ár liðu þangað til flugritinn fannst á 4.000 metra dýpi. Engin hinna 228 um borð komst lífs af. Talið var að sjálfs- stýring hefði farið úr sam- bandi og að flugmennirn- ir hefðu misst stjórn á vélinni. 1957 Boeing 377-vél Pan Am með 44 um borð tók af stað frá San Francisco til Honolulu 1957. Þegar flugið var hálfnað hvarf hún af ratsjá yfir Kyrrahafinu án þess að neyðarkall heyrðist frá flug- mönnunum. Sex dögum síðar fundust lík úr vélinni og hluti af flakinu. Ekki er vitað fyrir víst hvað olli slysinu. 2007 Steve Fossett flaug af stað á einka- flugvél sinni frá Nevada í Bandaríkjunum 2007 en ekkert spurðist til hans eftir það. Um- fangsmikil leit að vélinni stóð yfir allt þar til rúmu ári síðar þegar flakið fannst í fjallgarði í Kali- forníu. Talið var að sterkur vindur hefði líklega valdið slysinu. Laugardagur 8. mars Nokkrum klukkustundum eftir að far- þegaflugvél Malaysia Airlines hvarf af ratsjá sagði framkvæmdastjóri Mala- ysia Airlines, Ahmad Jauhari Yahya, að hún hefði enn verið í sambandi við flugumferðarstjórn um tveimur klukkustund- um eftir að hún tók á loft. Síðustu samskiptin hefðu verið klukkan 2.40 um nóttina, 120 sjómílur austur af strönd Malasíu. En flugumferðarvefsíðan FlightAware sýndi vélina klifra í 35 þúsund feta hæð áður en hún hvarf af ratsjá klukkan 1 um nóttina, um tuttugu mínútum eftir flugtak. Þá átti vélin að fara inn í víetnamska lofthelgi en gerði það ekki. Flugmenn- irnir sendu ekki út neyðarkall. Tólf klukkustundum eftir að vélin hvarf hófu leitarflokkar frá Malasíu, Singapúr og Víetnam leit að flaki hennar undan ströndum Víetnams. Kínverjar og Filippseyingar komu fljótlega til liðs við þá. Víetnamskur sjóðliðsforingi sagði að vélin hefði hugsanlega brotlent skammt frá víetnamskri eyju og fréttir bárust af mikilli olíubrák og reyk á svæðinu. Hugmyndum um að hryðjuverk hafi verið framið var varpað fram eftir að Ítali og Austurríkismaður sögðust ekki hafa verið um borð í vélinni þrátt fyrir að þeir hefðu verið á farþegalistanum. Sunnudagur 9. mars Bandaríkjamenn hófu þátttöku í leitinni. Najib Ra- zak, forsætisráðherra Malasíu, sagði að hryðjuverk væri möguleg orsök eftir að fregnir bárust af því að allt að fjórir farþegar vélarinnar hefðu hugsanlega verið með stolin vegabréf. Víetnamar sögðust hafa fundið flak úr vélinni á meðan Hishamuddin Hussein, samgönguráð- herra Malasíu, sagði að hún hefði mögulega snúið aftur til baka til Malasíu. Síðar um daginn kom í ljós að vegabréfum Ítalans og Austurríkis- mannsins hafði verið stolið í Taílandi. Óttast var að þeir sem notuðu vegabréf þeirra hefðu verið hryðjuverkamenn. Mánudagur 10. mars Aharuddin Abdul Rahman, flugmálastjóri Malasíu, sagði að fimm farþegar hefðu skráð sig í flug 370 en ekki farið um borð. Ótti um að hryðjuverk hefði verið framið fékk byr undir báða vængi. Yfirvöld vísuðu á bug fregnum Víetnama um að flak vélarinnar hefði fundist. Olíubrákin var sögð hafa komið frá skipi. „Björgunarbátur“ átti að hafa sést undan ströndum Víetnams en þar reyndist vera á ferðinni togvinda þakin þara. Eftirlitsmyndir af tveimur mönnum á leið í flug- vélina með stolnu vegabréfin tvö voru birtar. Þriðjudagur 11. mars Fulltrúar Malaysia Airlines sögðu að flug- mennirnir hefðu hugsanlega reynt að snúa vélinni við til Malasíu. Leitarsvæðið var stækkað og fleiri leitarflokkar voru sendir á vettvang. Tan Sir Rodzali Daud, yfirmaður malasíska flughersins, sagði að vart hefði orðið við flugvélina klukkan 2.40 skammt frá eyjunni Pulau Perak á Malakkasundi, sem benti til þess að hún hefði snúið við eins og vangaveltur höfðu verið uppi um. Síðar bar hann þessi ummæli sín til baka. Hugmyndir um að hryðjuverk hefði verið framið fjöruðu að mestu út eftir að Interpol birti upplýsingar um þá sem höfðu stolnu vegabréfin í fórum sínum. Talið var að þeir hefðu verið hælisleitendur en ekki hryðju- verkamenn. Miðvikudagur 12. mars Daud sagði að síðasta ratsjármerki týndu flug- vélarinnar hefði borist 200 mílum norðvestur af malasíska strandríkinu Penang klukkan 2.15 á laugardeginum. Þetta var þriðja útgáfan af mögulegri staðsetningu vélarinnar áður en hún hvarf. Þetta átti að hafa gerst 45 mínútum eftir að yfirvöld sögðust upphaflega hafa misst samband við vélina. Daud sagði síðar að ratsjármerkið hefði hugsanlega komið frá annarri flugvél. Óstaðfestar fregnir bárust um að malasískir sjómenn hefðu séð eitthvað sem leit út eins og björgunarbátur fljótandi í sjónum við austurströnd Malasíu. Peking News sagði frá því að lík hefði fundist á Malakkasundi í björgunarvesti en það reyndist ekki rétt. Fimmtudagur 13. mars Í ljós kom að kínverskar gervihnattamyndir sem áttu að sýna flak vélarinnar voru birtar fyrir mistök. Ekki var um brak úr henni að ræða að sögn samgöngumálaráðherrans Hishammuddins Hussein. Hann sagði það rangt að vélinni hefði verið flogið í fjórar klukkustundir eftir að samband rofnaði við flugturninn, eins og fjölmiðlar höfðu haldið fram. Bandaríkjamenn sögðu að nýjar upp- lýsingar hefðu leitt til þess að leitað verði að vélinni á nýju leitarsvæði í Indlandshafi. Föstudagur 14. mars Bandarísk rannsóknarnefnd sagðist hafa upplýsingar um að slokknað hefði á samskiptabúnaði vélarinnar með fjórtán mínútna millibili. Þetta þýddi að vélin hafi ekki lækkað flug sitt vegna bilunar heldur benti samskiptarofið til þess að slökkt hafi verið á búnað- inum handvirkt. Nefndin sagðist fullviss um að hvarf vélarinnar hafi verið meðvituð ákvörðun annars, ef ekki beggja flugmanna flugs 370. Leitin að vélinni beindist í auknum mæli í átt að Indlandshafi. 57 skip, 48 flugvélar og þrettán lönd tóku þátt. Kínverjar hvöttu yfirvöld í Malasíu til að birta allar mögulegar upplýsingar sem gætu tengst hvarfi vélarinnar í von um að þrengja leitarsvæðið. Þeir voru orðnir langþreyttir á misvísandi upplýsingum undanfarinnar viku. 153 Kínverjar 38 Malasíubúar 7 Indónesíumenn 6 Ástralar 5 Indverjar 4 Frakkar 3 Bandaríkjamenn 2 frá hverju um sig, Nýja-Sjálandi, Úkraínu og Kanada. 1 frá hverju um sig, Rússlandi, Taívan og Hol- landi. 2 menn, annar frá Íran, ferðuðust með stolin ítölsk og áströlsk vegabréf. Heimild: Malaysia Airlines 2007 Boeing 737-þota Adam Air með 102 um borð hvarf í flugi á milli tveggja indónesískra borga 2007. Allir um borð fórust og tók það rúma viku að finna flakið. Úrskurðað var að þotan hefði brotlent í sjónum eftir að flugmennirnir hefðu lent í vanda með leiðarkerfið og misst stjórn á vélinni. 1937 Frægasta flug- vélarhvarf allra tíma átti sér stað árið þegar vél Ameliu Earhart hvarf á leið sinni í kringum hnöttinn. Ear- hart var á flugi yfir Kyrrahafinu þegar slysið varð. Eftir mikla leit að vélinni, án árangurs, var hún úrskurðuð látin tveimur árum síðar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.