Fréttablaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 12
15. mars 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 12
úr Þróunarsjóði framhaldsfræðslu
Styrkir
Þróunarsjóður framhaldsfræðslu auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna nýsköpunar-
og þróunarverkefna í framhaldsfræðslu, sbr. lög um framhaldsfræðslu nr. 27/2010.
Forgangssvið við úthlutun árið 2014 eru:
Samstarf fræðsluaðila og fyrirtækis/fyrirtækja að skipulagi
starfsþjálfunar og þróunar starfsnáms á vinnustöðum.
Áhersla á nýsköpun, þróun náms og tilraunakennslu fyrir verk- og
tæknimenntun í samstarfi við atvinnulífið.
Hönnun á nýju námi fyrir hópa, þar sem skort hefur á framboð og
tækifæri til náms.
Viðmiðin sem Þróunarsjóðurinn gengur út frá við val á
verkefnum eru m.a. að þau:
Nái til þeirra sem falla undir ramma laganna um framhaldsfræðslu
Mæti sýnilegri þörf fyrir menntunarúrræði í framhaldsfræðslu
Inniberi nýjungar í kennsluháttum í framhaldsfræðslu
Inniberi samstarf
Umsóknarfrestur er til 9. apríl 2014
Eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi. Umsóknareyðublaðið,
lög um framhaldsfræðslu nr. 27/2010 og nánari skilyrði má nálgast inn á vef
Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, www.frae.is
ÞAÐ GETA EKKI ALLIR
VERIÐ GORDJÖSS
Það er mikið í mig lagt
Þú veist það um leið og þú sérð hann. Það er eitthvað einstakt við Range Rover Evoque. Hönnunin grípur þig
samstundis. Útlitið er loforð um ævintýri, þægindi og óbeislaða upplifun. Búnaðurinn er á heimsmælikvarða,
hvort sem um ræðir aksturseiginleika, fjöðrunarbúnað, drifkerfi eða afl.
Reynsluaktu Evoque og leyfðu honum að heilla þig. Hafðu samband í síma 525 8000 eða komdu í heimsókn.
www.landrover.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
11
4
5
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
v
ið
m
ið
un
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
RANGE ROVER EVOQUE – VERÐ FRÁ 8.770.000 KR.
4x4 - TD4 2,2 dísil, 9 þrepa sjálfskipting. Eyðsla 6,5 l/100 km.*
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
VIÐSKIPTI Þrátt fyrir að tekjur
tölvuleikjaframleiðandans CCP
hafi aukist um 17 prósent nam
bókfært tap 21,3 milljónum Banda-
ríkjadala á síðasta ári, eða um 2,4
milljörðum króna. Þetta er í fyrsta
sinn frá árinu 2003 sem bókfært
tap hefur verið á rekstrinum.
Hilmar Veigar Pétursson fram-
kvæmdastjóri segir þetta bókfærða
tap skýrast fyrst og fremst af þró-
unarkostnaði, sem hafi upphaf-
lega verið eignfærður en í kjölfar
áherslubreytinga hjá fyrirtækinu
á síðasta ári hafi verið ákveðið að
afskrifa hluta hans.
„Þetta er fyrst og fremst þróun-
arkostnaður sem við höfðum eign-
fært yfir síðustu ár,“ segir Hilm-
ar. „Við erum að gera upp fortíðina
og taka tillit til breyttra forsenda
og áherslubreytinga.“ Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins fór hluti
af þessum kostnaði í að þróa tölvu-
leikinn Dust 514, sem settur var á
markað fyrir Playstation 3 á síð-
asta ári, en sá leikur fékk blendn-
ari viðtökur en CCP hafði vonast
til. Aðspurður sagðist Hilmar hins
vegar ekkert vilja sundurgreina
nánar þetta bókfærða tap.
Á síðasta ári hafi EVE Online
fagnað tíu ára afmæli og áskrifend-
ur leiksins fóru í fyrsta sinn yfir
500 þúsund. Stjórnendur fyrirtæk-
isins hafi því metið það svo að þetta
væri rétti tíminn til að fara í djúpa
skoðun á rekstrinum.
„Við grófum svolítið djúpt eins
og sjá má á þessum tölum,“ segir
Hilmar. „En aðalatriðið er að við
erum mjög ánægðir með þennan
17 prósenta vöxt á tekjum. Ég er
sannfærðari en nokkru sinni fyrr
um að okkar bestu verk og stærstu
tækifæri eru fram undan.“
Tekjur CCP námu 76,7 milljónum
Bandaríkjadala á síðasta ári. Fram-
legðin nam 69,8 milljónum dala, og
hafði aukist um 15,5 prósent frá
2012. Þá skilaði CCP 19,8 milljón-
um dala í EBITDA, eða hagnað án
tillits til vaxta, skatta og afskrifta.
- gb
Bókfært tap CCP nam 2,4 milljörðum króna:
CCP fór í gagngert
uppgjör við fortíðina
HILMAR
VEIGAR
PÉTURS-
SON Fram-
kvæmda-
stjóri
tölvuleikja-
framleið-
ands CCP.
MYND/CCP