Fréttablaðið - 15.03.2014, Page 18
15. mars 2014 LAUGARDAGURSKOÐUN
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is
DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000
eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
SPOTTIÐ
AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR
MUNDO - ferðaskrifstofa þar sem
menntun, skemmtun, menning og þjálfun
fara saman, boðar til almenns kynningar-
fundar í Hannesarholti Grundarstíg 10,
miðvikudaginn 19. mars klukkan 17:00.
Allir velkomnir!
Ertu að leita að
innihaldsríku fríi?
Utanríkisráðherra kynnti Alþingi í vikunni nýja Evrópustefnu ríkisstjórn-arinnar í snöggu and-
svari við umræðu um þá tillögu
hans að slíta aðildarviðræðum við
Evrópusambandið. Þessi háttur á
kynningu málsins fyrir löggjafar-
þinginu segir allt sem segja þarf
um mat ráðherrans sjálfs á mikil-
vægi nýju stefnunnar.
Hún felur aðallega í sér áform
um að bregðast vel við ýmsum
athugasemdum sem fram hafa
komið á síðustu árum um fram-
kvæmd samningsins um Evrópska
efnahagssvæðið. Ætlunin er til að
mynda að hraða sjálfvirkri innleið-
ingu á reglum sameiginlega innri
markaðarins.
Allt sem sett
hefur verið á
blað um þetta
efni er til bóta
og ástæðulaust
að gera lítið úr
því. Ríkisstjórn-
in á þvert á móti
hrós skilið fyrir
góð áform um bætt vinnulag. Það
sem gerir málið broslegt er að
upptalning á framkvæmdaatrið-
um, sem sinna má betur, hljóti svo
hástemmda yfirskrift að hún telj-
ist vera ný Evrópustefna.
Þó að þessi minnisatriði hafi
verið í umræðunni um tíma
er augljóst að þeim er breytt í
stefnu yfirlýsingu í einhverju fáti
og algerlega úr samhengi við allt
annað. Það dregur athyglina að
þeirri miklu breytingu sem orðið
hefur í utanríkismálum. Í stað ára-
tuga stefnufestu koma yfirlýsingar
út og suður eftir því hvernig vind-
arnir blása frá einum tíma til ann-
ars.
Alþýðubandalagið og síðar VG
hafa átt aðild að fimm ríkisstjórn-
um án þess að losnað hafi um
þessa stefnufestu. Nú er utan-
ríkispólitíkin hins vegar komin á
flot þannig að erfitt er um vik að
glöggva sig á markmiðum og leið-
um. Og það hlýtur síðan að vera
enn erfiðara fyrir þá sem horfa til
landsins utan frá.
Fljótandi utanríkispólitík
Á síðasta kjörtímabili flutti núverandi utanríkisráð-herra ásamt fleiri samherj-
um sínum tillögu til þingsályktun-
ar um fríverslun við Bandaríkin.
Í henni var sérstök áhersla lögð á
viðskipti með landbúnaðarafurð-
ir. Málinu hefur ekki verið hreyft
eftir að tillögumennirnir komust
í ríkisstjórn.
Flutningsmenn skýrðu aldrei
út hvers vegna þeir voru hlynntir
frjálsum innflutningi á landbún-
aðarvörum frá Bandaríkjunum
en andvígir kæmu þær frá Evr-
ópu. Reyndar vissu allir að þeir
meintu ekkert með tillögunni og
treystu því að hún yrði ekki sam-
þykkt.
Hún var aðeins hugsuð sem svar
við þeirri gagnrýni að andstaða
við frekara Evrópusamstarf fæli
í sér hættu á einangrun. Tillagan
var augljóslega sett fram í fáti til
að aka seglum undan mótvindi.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn-
arinnar þótti ekki ástæða til að
minnast á grundvallarþættina í
utanríkispólitík landsins eins og
aðildina að Atlantshafsbandalag-
inu og að innri markaði Evrópu-
sambandsins. Þess í stað komu
óljósar setningar um leit að nýjum
bandamönnum. Af orðalaginu
mátti þó ráða að þar var átt við
Kína, Rússland og Indland. Þetta
var eftir forskrift forseta Íslands
sem lengi hefur barist fyrir því að
sveigja utanríkisstefnuna frá Evr-
ópu og Ameríku til þessara landa.
Utanríkisráðherra komst fljótt
í vörn með þessa stefnu. Eftir það
hefur hann kappkostað að halda
því fram að ekki eigi að veikja
það samstarf sem staðið hefur
um langa hríð. Ástæðulaust er að
rengja það. En eftir stendur að ný
skref má aðeins stíga í aðrar áttir.
Það er erfitt að fá heila brú í þá
hugsun sem að baki býr. Kannski
er hún engin.
Býr engin hugsun að baki?
Ríkisstjórnin fékk á sig brotsjó þegar hún ætlaði að láta Alþingi slíta aðild-
arviðræðunum við Evrópusam-
bandið á dögunum. Ofan í þau
kaup komu svo aðgerðir Rússa til
að innlima Krímskagann. Þegar
þannig var komið þótti utanríkis-
ráðherra rétt að beina athyglinni
frá áformum um nýja bandamenn.
Gömlum minnislista um bætta
framkvæmd samningsins um
Evrópska efnahagssvæðið var þá
í einhverju óðagoti breytt í nýja
Evrópustefnu.
Hún veitir aftur á móti engin
svör við þeim áskorunum sem við
blasa og kalla á stjórnarskrár-
breytingar til að halda megi sam-
starfinu um Evrópska efnahags-
svæðið áfram. Það á til dæmis við
um nýjar reglur um eftirlit með
fjármálastofnunum. Klípa ríkis-
stjórnarinnar er sú að um leið
og hún innleiðir þær falla veiga-
mestu rökin, sem hún hefur notað
gegn aðild, um koll. Hvaða gildi
hefur ný stefna sem ekki geymir
leiðarvísi um lausn á málum sem
þegar eru komin á eindaga?
Stundum segir utanríkisráð-
herra að norðurslóðasamstarf
eigi að koma í stað nýrra skrefa í
Evrópusamvinnu. Nú hafa Færey-
ingar og Norðmenn skilið Ísland
eftir einangrað í makríldeilunni.
Einnig á þessum slóðum hefur
ríkisstjórninni mistekist að afla
bandamanna. Þá er fokið í flest
skjól.
Þegar utanríkisstefnan er orðin
reikul eins og rótlaust þangið er
kominn tími til að ræða markmið-
in og leiðirnar í meiri alvöru en
gert hefur verið.
Líka einangraðir í norðrinu
S
tjórnarformaður þekkingarfyrirtækisins Össurar hf.,
Niels Jacobsen, var harðorður í garð íslenzkra stjórn-
valda í ræðu sinni á aðalfundi fyrirtækisins í gær. Þetta
er fjórði aðalfundurinn í röð þar sem Jacobsen gagn-
rýnir harðlega ráðstafanir ríkisstjórnar Íslands og það
viðskiptaumhverfi sem alþjóðlegum þekkingarfyrirtækjum er
búið.
Rauði þráðurinn í gagnrýni Jacobsens hefur annars vegar
verið að gjaldmiðillinn sé ónothæfur, hins vegar að lagasetning
sé „fljótfærnisleg, tíð og ófagleg“ og ríkur vilji til að búa til sér-
íslenzkar lausnir, sem ekki hafa
verið reyndar annars staðar.
Vinstri stjórnin tók ekki mark
á gagnrýni þessa þekkta áhrifa-
manns í evrópsku atvinnulífi,
ekki fremur en annarra sem
gagnrýndu það viðskipta- og
fjárfestingarumhverfi sem fyrirtækjum á Íslandi var búið í
hennar tíð. Jóhanna Sigurðardóttir, þáverandi forsætisráðherra,
talaði um „svartagallsraus“ og gaf ítrekað til kynna að fólkið sem
rekur fyrirtæki á Íslandi skildi bara alls ekki hvað það byggi í
rauninni við frábærar aðstæður og gengi vel hjá því.
Svo kom til valda ný ríkisstjórn, sem ætlaði að eyða pólitískri
óvissu, hverfa af braut fjandskapar við atvinnulífið og skapa
fyrirtækjum hagstætt rekstrarumhverfi. Af hverju ætli Niels
Jacobsen ítreki þá ádeilu sína? Getur það verið af því að þrátt
fyrir fallegu orðin hjá nýju ríkisstjórninni hafi ekkert breytzt?
Jacobsen bætti raunar heldur í gagnrýni sína í gær; sagði að
Ísland hefði sótt um aðild að Evrópusambandinu og það hefði
verið helzta von Össurar um að komast út úr erfiðum aðstæðum
óhagstæðs gjaldmiðils og ófyrirsjáanlegs lagaumhverfis. „Því
miður eru áhyggjur mínar enn gildar þar sem íslensk stjórnvöld
hafa í hyggju að binda enda á umsóknarferlið án þess að sagt hafi
verið frá neinni varaáætlun,“ sagði Jacobsen.
Með öðrum orðum væri ekkert plan um að aflétta gjaldeyris-
höftunum sem hefðu verið í gildi í á sjötta ár, fyrirtækið byggi
hvorki við opið né fyrirsjáanlegt umhverfi og það sem væri
verra; ekkert benti til að það myndi breytast. „Þetta gengur ekki
til lengri tíma. Á þessari stundu er Ísland ekki góður staður til
að reka alþjóðlegt fyrirtæki. Þetta er meiriháttar áhyggjuefni
og ég vona að það verði komið fram með lausn fljótlega,“ sagði
stjórnarformaður Össurar.
Og hver eru viðbrögð stjórnvalda að þessu sinni – ríkisstjórn-
arinnar sem er svo mikill vinur atvinnulífsins? Þau eru ósköp
svipuð og hjá fyrri stjórn; þetta er allt einhver misskilningur.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir í Fréttablaðinu í
dag að skilaboðin úr efnahagslífinu séu í hina áttina; hér gangi
allt svona líka ljómandi vel. Gjaldeyrishöftin séu reyndar vanda-
mál og mikilvægt að ná áfanga í að aflétta þeim. Planið um hafta-
lausan, stöðugan gjaldmiðil höfum við hins vegar ekki séð, enda
er það ekki til.
Þessi ríkisstjórn virðist álíka skeytingarlaus og sú síðasta um
rausið í atvinnulífinu. Talsverðar líkur virðast vera á að Ísland
verði áfram vondur staður fyrir framsæknustu vaxtarbrodda
atvinnulífsins og þeir endi með að skjóta rótum annars staðar.
Stjórnarformaður Össurar gagnrýnir ný stjórnvöld:
Áfram á
vondum stað
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is