Fréttablaðið - 15.03.2014, Qupperneq 74
15. mars 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42
SKEMMTILEGUR OG LITRÍKUR SKÓBÚNAÐUR FRÁ GÖTUTÍSKU PARÍSARBORGAR
1 Hvað halda margir um þig sem er alls ekki rétt? Ég hef ekki hug-
mynd um hvað fólk heldur um mig og
ég er ánægður með að vera laus við að
hafa áhyggjur af því.
2 Hvað kæmi fólki sem kynntist þér mest á óvart? Hvað ég er góður
ferðafélagi.
3 Hvað kemur út á þér tárunum?Hundurinn Roði í furðulegu hátta-
lagi hunds um nótt og myndir í anda
Broken Circle Breakdown.
4 Hvað gerir þig pirraðan? Þegar fólk snuðar sig um einlægni til
þess að þykjast vera siðmenntað.
5 Hvað er fyndnast í heimi? Oddur bekkjarbróðir og prump.
6 Er líf á öðrum hnöttum? Það hlýt-ur að vera, mig langar allavegana
ekki til þess að loka á möguleikann.
Mér er í raun alltaf illa við það þegar
fólk lokar á möguleika og þá sérstak-
lega þegar einhverjir gera það fyrir
þig.
7 Hvert er fallegasta hljóð sem þú hefur heyrt? Söngur Sigríðar.
8 Hvað gerirðu þegar allir aðrir eru sofnaðir? Horfi á heimildarmynd,
spila FIFA eða vafra á Vísindavefnum.
9 Hvaða frægu persónu ertu skotinn í? Ellen Page, hún er góð leikkona,
klár, ákveðin og veit hvað hún vill
ásamt því að segja úreldum gildum að
fokka sér.
10 Ef þú mættir taka eina bók, eina plötu og eina bíómynd með þér á
eyðieyjuna, hvað yrði fyrir valinu? Blái
Hnötturinn eftir Andra Snæ því ég á
eftir að lesa hana og langar til þess,
Spiegel im Spiegel eftir Arvo Pärt til
að halda geðheilsunni og Festen eftir
Thomas Vinterberg til þess að minna
mig á að það sé kannski bara fínt að
vera á eyðieyju.
11 Hver er fyrsta minning þín? Myndir og frásagnir annarra
trufla mig núna því ég man ekki hvort
ég man hlutina eins og þeir voru í
alvöru. Minningar mínar brenglast svo
auðveldlega en ætli það sé
ekki heimþrármanían sem
blossaði alltaf upp í mér
þegar ég gisti hjá félögum
mínum.
12 Hvað verður þú að gera eftir fimm
ár? Vonandi að halda
áfram að segja sögur
sem skipta máli hvort
sem það er í gegnum
leikhús eða bíó.
13 Shakespeare eða Tsjekov? Shake-
speare.
14 Hver var æsku-hetjan þín? Shaun
White, Benedikt Brynleifs-
son, Magga mom og Alexander
Popov.
15 Er ást í tunglinu? Já, hún er hvergi og alls staðar,
það er okkar að finna hana.
YFIRHEYRSLAN ARNAR DAN KRISTJÁNSSON LEIKARI
Skotinn í Ellen Page
Diyordie.elledecoration.se
Þessi sænska bloggsíða er undirsíða
sænska tímaritsins Elle Decoration.
Eins og nafnið gefur til kynna snýst
innihald bloggsíðunnar um hluti sem
hægt er að búa til sjálfur. Einnig er
vakin athygli á hönnun frá ungum og
upprennandi merkjum og innblástur
gefinn til að flikka upp á húsgögn
heimilisins. Góð síða fyrir handlagna
fagurkerann.
FYLGSTU MEÐ …
KRYDDHILLA Kjörin leið til að geyma
kryddjurtirnar og gefa tómum vegg líf
í leiðinni.
FLIKKAÐ UPP Á Gamalli kommóðu
gefið nýtt líf með málningu og pensli.
PRADA-SKÓR LITRÍKIR SOPHIE WEBSTER-HÆLAR MANOLO BLAHNIK-HÆLASKÓR ÁBERANDI BRIAN ATTWOOD-STÍGVÉLCHANEL-STÍGVÉL
Mér er í raun alltaf
illa við það þegar fólk
lokar á möguleika og
þá sérstaklega þegar
einhverjir gera það
fyrir þig.
Rain-X býður upp á fullkomna yfirborðsvörn
Rain-X verndar bílinn, eykur útsýni og öryggi
Hreinn bíll eyðir allt að 7% minna eldsneyti
Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu
www.lodur.is - Sími 544 4540
Aldrei
löng bið!
Löður er með
á allan bílinn
Opið allar helgar á Fiskislóð 29
8:00-19:00 virka daga og 10:00-18:00 um helgar
➜Góður ferðafélagi
Leikarinn Arnar Dan Kristjánsson leikur í
leikritinu Furðulegt háttalag hunds um nótt.
Hann útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands
vorið 2013. Aðrir leikarar í verkinu eru meðal
annarra Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Bryn-
hildur Guðjónsdóttir, Nína Dögg Filippus-
dóttir og Bergur Þór Ingólfsson.
Leikstjóri er Hilmar Jónsson.