Fréttablaðið - 15.03.2014, Side 76

Fréttablaðið - 15.03.2014, Side 76
15. mars 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 44 búna manninn sem hann óttaðist að myndi murka lífið úr bróður sínum, ja, þá má vel halda því fram að Istanbúl héti nú aftur Konstantínópel eins og í árdaga og hún væri því ekkert endilega tilbúningur, sú auglýsing hér á síðunni um páskaferðina til höfuðborg- ar Grikklands við Hellusund (!) sem ég fékk umbrotsmanninn líka til að útbúa. En hver varð þá slíkur örlagavaldur í lífi þjóðanna í Anatolíu? Jú, svona leit hann út. Hann var apaköttur af makakí-tegund, nánar tiltekið er tegundin kennd við Gíbraltar. Hann og fáeinir Gíbraltarapar aðrir, þar á meðal sá sem ég leyfi mér alveg út í loftið að kalla bróður hans, höfðu verið fluttir í garð sumarhallar kóngsins yfir Grikklandi, en sá hét Alexander I um þær mundir, og þetta gerðist í október 1920. Alexander hafði verið úti að ganga í hallar garðinum með sinn stóra þýska fjárhund þegar hund- urinn réðst á einn Gíbraltar- apann og fór að tuska hann duglega til. Þá kom Alexander vissulega þjótandi en það var fjarri því að hann ætl- aði að hjálpa hund- inum sínum að sálga aparæflinum; þvert á móti ætlaði kóngur að bjarga lífi apans með því að reka hund- inn á brott. En hinn apinn, sá sem kom þjótandi bróður sínum til bjargar, hann skildi ekki aðstæður og réðst því af djörfung á Alexander og beit hann illilega nokkrum sinnum. Þjónar kóngsins komu þá með slætti miklum, og aparnir tveir voru snöggir að láta sig hverfa. Þrátt fyrir apabitið bar Alexander sig vel fyrst á eftir. En svo fór að versna í því, sýk- ing kom í sárið og blóðeitrun, og á þeim pens- illínlausu tímum var slíkt alvörumál. Þrem vikum seinna dó Grikkjakóngur. Og þá tóku örlögin að spinna sinn óvænta vef út frá apabitinu. Perlan rifin úr höndum Tyrkja Langafi Alexanders Grikkjakóngs var Kristján IX Danakóngur, sá er færði okkur Íslendingum „frelsisskrá úr föðurhendi“. Sonarsonur Kristjáns var Konstantín I sem varð Grikkjakóngur 1913. Hann var mennt- aður í Þýskalandi og mágur Vilhjálms II keisara. Er fyrri heimsstyrjöldin braust út vildi valdamikill forsætisráðherra Grikkja, Eleftheri os Venizelos, að landsmenn skip- uðu sér í lið með Bretum og Frökkum gegn Þjóðverjum og Tyrkjum sem voru saman í bandalagi. Fyrir Venizelosi vakti ekki síst að krækja í lönd af Tyrkjum, erkióvinum Grikkja frá gamalli tíð, en Tyrkjaveldi stóð þá höllum fæti. Konstantín I var enginn vinur Tyrkja en þeim mun hlynntari Þjóð- verjum. Hann beitti sér fyrir því að Grikk- landi yrði hlutlaust en reyndi að þoka land- inu nær Þýskalandi er leið á stríðið. Bretar beittu sér þá fyrir því að Konstantín var rutt úr hásætinu árið 1917 og fór hann í útlegð til Sviss, en til kóngs var dubbaður Alex- ander sonur hans. Hann var 23 ára, hafði litla hæfileika og litla menntun til að stýra landi, enda mála sannast að hann var aldrei annað en leppur Breta og Venizelosar. Það hlutskipti líkaði honum illa, en fékk ekki að gert, nánast innilokaður í Tatoi-höllinni skammt norður af Aþenu. Meðan Alexander I ríkti þannig að nafninu til lauk fyrri heimsstyrjöldinni með því að Þjóðverjar og bandamenn þeirra biðu lægri hlut. Mikil togstreita hófst um hvað verða skyldi um Tyrkjaveldi og í friðarsamningum sem Tyrkir voru neyddir til að samþykkja í ágúst 1920 var ríki þeirra skorið rækilega niður við trog. Það átti aðeins að ná yfir hluta af miðri Anatolíu og norðurströndinni við Svartahafið. Í austri áttu Armenar og Kúrdar að fá lönd af Tyrkjum, og nýtt Sýr- land líka, kringum tyrknesku borgina Izmir átti Grikkland að fá mikið svæði en þá borg kölluðu Grikkir frá fornu fari Smyrnu. Og Istanbúl og nágrenni átti að vera á ábyrgð alþjóðasamfélagsins, sú mikla perla hrifin úr höndum Tyrkja! En af því Alexander I dó, þá fór þetta allt út um þúfur. Um það leyti missti Venizelos tökin á land- stjórninni og Grikkir kusu að kalla Konstantín I aftur til konungs. Og þá fór í verra, því Konstantín taldi sig vera mik- inn herforingja og kjörið að láta kné fylgja kviði gagnvart Tyrkjum. Ný lota í stríði þjóð- anna hófst og þótt Tyrkir væru illa á sig komnir var oflátungs- háttur Konstantíns slíkur að hann klúðraði því stríði illilega. Grikkir misstu að lokum allar þær lendur í Anato líu sem samningurinn 1920 hafði tryggt þeim, mannfall varð ógurlegt í stríðinu, og þján- ingar fólks lítt bærilegar. Og Istanbúl, sem alþjóðasamfélagið hefði sjálfsagt afhent Grikkjum að lokum ef þeir hefðu ekki skotið sig svona illilega í fótinn, sú merkilega borg varð áfram tyrknesk og heitir ennþá Istan- búl. Og svo risu Tyrkir upp á afturlappirnar, eftir að sigrast á hinum fífldjarfa Konstan- tín I og mönnum hans, að þeir endurheimtu líka lönd sín í austri: Armenía og Sýrland fengu öngvar sneiðar af Tyrklandi, og Kúrd- istan varð auðvitað ekki til. Og allt þetta út af apakettinum sem beit kónginn! Þetta er auðvitað hjásaga í öllu sínu veldi – maður veit aldrei nákvæmlega hvað hefði gerst ef apinn hefði ekki bitið Alexander, en það er samt eitthvað töluvert til í þessu! Hvað varð um apann? Æjú, við vitum það. Eftir að kóngurinn var bitinn, þá fóru þjónar kóngsins á kreik, veiddu apana báða og lóg- uðu þeim. En þá var það orðið of seint. FLÆKJUSAGA Illugi Jökulsson rifjar vel þekkta hjásögu frá árinu 1920, en þá var framtíð Tyrklands mjög óráðin eftir fyrri heimsstyrj- öldina. Það munaði furðulega litlu að þetta stóra land yrði limað alveg sundur. Sér til skelfingar sá hann blika á næstum fagurrautt blóð bróður síns þegar hundströllið nánast fleygði honum til og frá. Og rakkinn var reyndar ekki einn á ferð, með honum var þungbúni ungi maður- inn sem hann hafði svo oft séð á vappi eftir stíg- unum milli trjánna eða bregða fyrir í gluggum konungs- hallarinnar. Konstantínópel Ankara Aþena Smyrna Antalya Trabzon Ezene Aleppo Yerevan Arbil S Ý R L A N D T Y R K L A N D G R I K K L A N D A R M E N Í A K Ú R D I S T A N S v a r t a h a f M i ð j a r ð a r h a f K ý p u rK r í t H e l l u s u n d Svona vildi það til: Hann sat í mestu rólegheitum að snæðingi um hádeg-isbil og átti ekki von á öðru en að þessi dagur yrði eins og flestir aðrir dagar, friðsæll og tíðindalítill. Sólin skein mildilega í garðinum við kon- ungshöllina; þótt það væri komið fram í októ- ber bólaði lítið á haustinu og ennþá heyrðist suðið í engisprettunum innan um vínviðar- runnana og ólífutrén. Hann ákvað að leggja sig eftir matinn. En þá heyrði hann allt í einu skerandi neyðaróp, hann leit snöggt í kringum sig, þessa rödd hefði hann þekkt hvar sem er. Ópið virtist koma úr skógarlundi þar skammt frá og hann brá við skjótt og hentist á staðinn eins og fljótt og fæt- urnir gátu borið hann. Heyrnin hafði ekki brugðist honum, það var enginn annar en bróðir hans sem hafði æpt og ekki að tilefnis- lausu. Á marmaralögðum stíg milli trjánna hafði ráðist að bróður hans risavax- inn hundur og náð í hnakkadrambið á honum, hundurinn urraði og beit og sér til skelfing- ar sá hann blika á næstum fagurrautt blóð bróður síns þegar hundströllið nánast fleygði honum til og frá. Og rakkinn var reyndar ekki einn á ferð, með honum var þungbúni ungi maðurinn sem hann hafði svo oft séð á vappi eftir stígunum milli trjánna eða bregða fyrir í gluggum konungshallarinnar, og þessi maður kom nú askvaðandi með blikandi silf- urstaf á lofti, og bjóst til að ljúka því verki sem hundurinn hafði hafið, sem sé að ganga endanlega frá bróður hans, varnarlausum, skelfingu lostnum og blóðugum. Í þessum hamagangi gat hann ekki orðað þá hugsun hvort hann ætti að gæta bróð- ur síns en þess þurfti ekki, eðlisávísunin tók völdin, á augabragði æddi hann bróður sínum til varnar, stökk upp að manninum með stafinn á lofti og beit hann eins fast og hann gat í lærið. „Láttu hann bróður minn vera, drullu- háleisturinn þinn!“ hefði hann æpt ef hann hefði kunnað að tala, en úr því hann kunni það ekki hélt hann bara áfram að bíta, tenn- urnar smugu gegnum klæði mannsins sem var farinn að æpa hástöfum á hjálp, svo óvænt var árásin, og þá komu fleiri menn hlaupandi með barefli á lofti og allt var komið í uppnám, hundurinn sem bar ábyrgð á þessu öllu lúskraðist burt en hann og bróðir hans sáu sér þá leik á borði að sleppa burt, bróðir hans alblóðugur en samt ennþá ekki dauður úr öllum æðum, og þeir tóku tilhlaup og stukku eins og eldibrandar upp í næsta tré þar sem hvorki hundar né menn gætu náð til þeirra. Þannig vildi það sem sagt til. Þannig réð- ust örlögin. Apakötturinn örlagavaldur Hvaða örlög? Jú, örlög milljóna manna. Það var ekki minni maður en Winston Churchill sem hélt því fram að þessi litli atburður í trjá- garðinum við konungshöllina nærri Aþenu hefði kostað milljón mannslíf, og margar milljónir lentu á vergangi og hröktust endan- lega frá heimilum sínum. Og það má líka færa fyrir því rök að þessi sami atburð- ur hafi orðið til þess að landamærin í Anatolíu (eða Litlu- Asíu öðru nafni eða Tyrklandi) eru nú um stundir eins og sést á litla kortinu hér á síðunni, en urðu ekki eins og umbrotsmaður hefur góðfúslega teiknað upp fyrir mig á stærra kortinu: Tyrkland pínu- lítið, Grikkland nær meðfram allri Eyjahafs- ströndinni og allt til Kýpur, Sýrland miklu stærra en nú er, Armenía heilmikið veldi við Svartahaf; hið ógæfusama Kúrd istan gæti jafnvel hafa orðið til! Og ef hundkvikindið hefði ekki gert þessa árás og söguhetja okkar ekki bitið unga þung- ÞEGAR TYRKLAND VAR AÐ HVERFA ANATÓLÍA Í ÖÐRUM HEIMI ANATÓLÍA Í ÞESSUM HEIMI ALEXANDER I KONSTANTÍN IGÍBRALTARAPI Ferðaskrifstofan Grikklandsferðir stendur fyrir frábærum ferðum til höfuðborgar Grikklands, Konstantínópel. Sérstök áhersla verður að þessu sinni lögð á að skoða slóðir Tyrkja sem réðu borginni þangað til fyrir tæpum 100 árum. Þá „prýddu“ íslamskar bænakallssúlur m.a.s. dómkirkjuna fögru, Hagia Sophia! Sími: þrjár langar, tvær stuttar. Páskaferðir 2014
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.