Fréttablaðið - 15.03.2014, Page 90
„Ég ætla að taka lagið. Það er í
fyrsta sinn sem ég kem fram opin-
berlega eftir að ég flutti heim,“
segir Sigrún Pálmadóttir sópran-
söngkona glaðlega, nýkomin úr
flugi frá Ísafirði til að syngja með
kvennakórnum Vox feminae í Saln-
um klukkan 16 í dag.
Sigrún hefur búið í fimmtán ár
í Þýskalandi og var fastráðin við
óperuna í Bonn í áratug en flutti
nýlega á æskuslóðir sínar í Bol-
ungarvík og kennir nú við Tón-
listarskóla Ísafjarðar. „Þetta var
stórt stökk,“ viðurkennir hún. „En
við hjónin erum bæði að vestan og
ákváðum að prófa að setjast þar
að.“ Hún upplýsir að eiginmaður-
inn, Birgir Örn Birgisson, sé að
vinna hjá Orkubúi Vestfjarða og
einnig að þjálfa úrvalsdeildarlið
í körfubolta. Synirnir tveir, Ólaf-
ur Pálmi, þriggja ára, og Magnús
Baldvin, átta ára, séu í leikskóla og
skóla í Bolungarvík.
Magga Pálma örlagavaldur
Það er vorbragur á tónleikum Vox
feminae. Kórinn mun flytja þar
mörg af sínum uppáhaldslögum,
íslensk sönglög í bland við alþekkt
Vínarljóð eftir Brahms, Schubert
og fleiri þekkt tónskáld. Yfir-
skriftin er Ljóð og leikur. Kristján
Karl Bragason leikur með á píanó
og Hafdís Vigfúsdóttir á flautu.
Þau hafa leikið saman sem dúó
um árabil.
Listrænn stjórnandi tónleikanna
er Margrét Pálmadóttir en hún er
viss örlagavaldur í lífi Sigrúnar.
„Ég flutti frá Bolungarvík sext-
án ára og fór í Flensborg í Hafn-
arfirði. Þar kynntist ég Möggu
Pálma sem stjórnaði kór skólans
og hún á mikinn þátt í því að ég
fór í minn fyrsta söngtíma,“ lýsir
Sigrún og kveðst líka hafa fyrst
sungið opinberlega sóló með Vox
feminae. „Fyrsta kórmappan sem
ég keypti mér er með í för núna.
Magga sagði mér að taka hana
með!“ segir Sigrún hlæjandi.
Bæði í skóla og vinnu
Eftir eitt ár í Tónlistarskólanum
á Akureyri og þrjú ár í Söngskól-
anum í Reykjavík hjá Ólöfu Kol-
brúnu Harðardóttur lá leið Sigrún-
ar í tónlistarháskólann í Stuttgart.
Þar fór hún í ljóðadeild og óperu-
deild og var að ljúka masterspróf-
inu þar samhliða því að byrja að
vinna í Óperunni í Bonn árið 2001.
„Þýskaland er náttúrlega mekka
óperunnar og fyrir klassískan
söngvara er algerlega toppurinn
að búa þar. Þar eru líka svo góðar
samgöngur og auðvelt að hoppa
upp í lest eða flugvél þegar maður
þarf að skreppa í söngferðir,“
segir hún. Hún kveðst hafa sung-
ið á tónleikum í Bandaríkjunum
og í Stokkhólmi og einnig víða í
Þýskalandi. „Ég var mest í Bonn
en hef sungið í öðrum óperuhúsum
líka. Einu sinni söng ég í Dresden.
Þar var ég í hlutverki Serbinettu
í óperunni Ariadne auf Naxos.
Óperuhúsið í Dresden er mikil-
fengleg bygging. Eitt þeirra húsa
sem voru eyðilögð í stríðinu en svo
var það byggt upp aftur, stein fyrir
stein.“
Hingað til Íslands skrapp Sig-
rún líka að utan og söng á sínum
heimaslóðum fyrir vestan, með
Sinfóníunni á nýárstónleikum
og hlutverk Violettu í La Travi-
ata hjá Íslensku óperunni 2008.
„Mér fannst afar skemmtilegt að
taka þátt í óperuuppfærslu hér á
Íslandi,“ segir hún brosandi.
Tekur tíma að aðlagast
Stundum er talað um að söngur
og fjölskyldulíf samræmist illa
en Sigrún segir mann sinn ávallt
hafa stutt hana vel í hennar námi
og starfi. Hann hafi getað hliðrað
til svo hún gæti sungið jafn mikið
og hún gerði en hann vann í Þýska-
landi sem körfuboltaspilari, körfu-
boltaþjálfari og rafvirki. „Við höfð-
um auðvitað enga ættingja til að
passa eina og eina helgi,“ segir
hún. En nú er það breytt því dreng-
irnir eiga ömmu og afa í Bolungar-
vík og Sigrún segir þá njóta þess.
Sá eldri sé þó með mikla heimþrá
til Þýskalands. „Magnús Baldvin
er Þjóðverji inn að beini og hlakk-
ar mikið til að fara í frí til Þýska-
lands. En Ólafur Pálmi finnur
minna fyrir því. Það tekur samt
auðvitað sinn tíma fyrir alla að
aðlagast nýjum aðstæðum.“
gun@frettabladid.is
Þýskaland er nátt-
úrlega mekka óperunnar
og fyrir klassískan
söngvara er algerlega
toppurinn að búa þar.
Flutti frá Bonn heim
til Bolungarvíkur
Sigrún Pálmadóttir sópran sem er nýfl utt til Íslands eft ir 15 ára búsetu í Þýska-
landi syngur einsöng með kórnum Vox feminae í Salnum í Kópavogi í dag.
SÖNGKONAN
„Fyrsta
kórmappan
sem ég keypti
mér er með
í för núna,“
segir Sigrún
sem ætlar
að syngja
einsöng með
Vox feminae í
Salnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VOX FEMINAE Kórinn ætlar að flytja mörg af sínum uppáhaldslögum á tónleikunum Ljóð og leikur í dag klukkan 16.
MENNING
15. mars 2014 LAUGARDAGUR