Fréttablaðið - 20.03.2014, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 20.03.2014, Blaðsíða 66
20. mars 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 54 Andy Johnston getur orðið fyrsti erlendi þjálfarinn í 24 ár til þess að gera lið að Íslandsmeisturum eða síðan Ungverjinn Lazlo Nemeth vann með KR-liðið árið 1990. Geof Kotila komst næst því þegar hann fór með Snæfellsliðið í lokaúrslitin árið 2008. KR og Snæfell hafa mæst fjórum sinnum áður og í öll skiptin hefur einvígið unnist í oddaleik. KR vann oddaleikinn í undan- úrslitum 2007 og átta liða úrslitunum 2005 en Snæfell vann oddaleikinn í undanúrslitunum 2010 og átta liða úrslitunum 2006. Óskar Ófeigur Jónsson ooj@frettabladid.is Aðrir spá Pálmi Þór Sævarsson, þjálfari Skallagríms STJARNAN VINNUR 3-2 Birgir Örn Birgisson, þjálfari KFÍ KEFLAVÍK VINNUR 3-2 Ágúst Björgvinsson, þjálfari Vals KEFLAVÍK VINNUR 3-1 Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Fjölnis KEFLAVÍK VINNUR 3-1 ➜ Vissir þú að ... Keflvíkingar, sem enduðu í 2. sæti í deildinni, mæta góðkunningjum sínum úr Stjörnunni en Garðbæingar urðu í 7. sæti. Stjarnan hefur tvisvar komist í lokaúrslitin á síðustu þremur árum en fengið silfur í bæði skiptin og Keflvíkingar hafa ekki orðið Íslandsmeistarar síðan 2008. Keflvíkingar töpuðu þremur af síðustu fimm deildar- leikjum sínum en héldu samt öðru sætinu á meðan Stjörnumenn tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni með þremur sigrum í röð á lokasprettinum. Keflavík og Stjarnan eru að mætast í fyrstu umferð úr- slitakeppninnar þriðja árið í röð en Stjörnumenn unnu bæði hin skiptin í oddaleik í Garðabænum þar af fyrra árið í framlengingu. KLUKKAN 19.15 í Ásgarði Mætast í fyrsta leik á morgun Aðrir spá Pálmi Þór Sævarsson, þjálfari Skallagríms NJARÐVÍK VINNUR 3-1 Birgir Örn Birgisson, þjálfari KFÍ NJARÐVÍK VINNUR 3-2 Ágúst Björgvinsson, þjálfari Vals NJARÐVÍK VINNUR 3-1 Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Fjölnis NJARÐVÍK VINNUR 3-2 ➜ Vissir þú að ... Njarðvíkingar urðu í 4. sæti og hafa heimavallarréttinn á móti Haukum en nýliðarnir úr Hafnarfirði enduðu í 5. sætinu sem er einn besti árangur nýliða á síðustu árum. Njarðvík, sigursælasta lið í sögu úrslitakeppninnar, hefur ekki komist í gegnum átta liða úrslitin þrjú undanfarin tímabil og ekki verið í lokaúrslitunum í sjö ár. Haukarnir eru aftur á móti aðeins að taka þátt í sinni annarri úrslitakeppni á síðustu tíu árum en liðið varð Íslands- meistari í fyrsta og eina skiptið fyrir 26 árum. Það var gríðarlegur munur á innbyrðis- leikjum liðanna. Njarðvíkingar unnu fyrri leikinn í Ljónagryfjunni með 22 stigum, 105-83, en Haukarnir unnu seinni leikinn á Ásvöllum með 11 stigum, 86-75. Logi Gunn- arsson skoraði 41 stig í leiknum í Njarðvík og Emil Barja var með þrennu í þeim síðari. KLUKKAN 19.15 í Njarðvík Mætast í fyrsta leik á morgun KEFLAVÍK VINNUR 3-1 Þetta verður forvitnileg sería og ég veit að Teitur hefur fulla trú á að Stjarnan geti unnið. En Keflavík er með frábæran sjö manna kjarna og mér finnst það betra liðið. Stjarnan hefur verið að hiksta og rétt slefar inn í úrslitakeppnina þrátt fyrir að vera með ágætis lið. Svo á það engan mann á Craion frekar en aðrir. Keflavík fer líka langt á því að vilja hefna fyrir seríuna í fyrra. Ef það verða óvænt úrslit í 8 liða úrslitum verður það þarna. Örvar Þór Kristjánsson NJARÐVÍK VINNUR 3-1 Fyrirfram á þetta að vera jafnasta serían. Ég er hrifinn af Haukaliðinu sem gefur orðinu seigla nýja merkingu. Þeir eru ekkert „fansí“ en þeir eru rólegir og ótrúlega flottir. Njarðvík er sterkara liðið. Það hefur farið upp og niður í vetur en ég hef trú á að menn þar séu hungraðir í meira og vilji kveðja Einar Árna á góðum nótum. Það sem ræður úrslitum er einvígi bakvarðanna: Logi Gunnars og Elvar Már á móti Emil Barja og Hauki Óskars. Örvar Þór Kristjánsson Úrslitakeppni Dominos-deildar karla hefst í kvöld og mun eiga sviðsljósið á íslenska íþróttasviðinu næstu sex vikurnar. Fréttablaðið fer yfi r einvígin í átta liða úrslitun um og fékk Örvar Þór Kristjánsson, þjálfara ÍR, til að spá í hvernig þetta spil ast. Á MÁNUDAGINN KL 19.15 FÖSTUDAGINN 28. MARS KL 19.15 Aðrir spá Pálmi Þór Sævarsson, þjálfari Skallagríms KR VINNUR 3-1 Birgir Örn Birgisson, þjálfari KFÍ KR VINNUR 3-0 Ágúst Björgvinsson, þjálfari Vals KR VINNUR 3-0 Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Fjölnis KR VINNUR 3-0 ➜ Vissir þú að ... KR VINNUR 3-1 Deildarmeistarar KR taka á móti Snæfelli sem endaði í áttunda sæti deildarinnar og hefur ekki endað neðar í ellefu ár. Þessi tvö lið hafa bæði unnið Íslandsmeistara- titilinn á síðustu fjórum árum, Snæfell árið 2010 og KR árið 2011. KR vann tíu síðustu leiki sína í deildinni og tapaði bara einum deildarleik allt tímabilið. Snæfell tapaði hins vegar fjórum síðustu leikjum sínum á móti liðum í úrslita keppninni. Pavel Ermolinski var með þrefalda tvennu í báðum leikjunum á móti Snæfelli í vetur og meðaltal hans í leikjun um tveimur gegn Snæfelli var 24,0 stig, 17,0 fráköst og 12,5 stoðsendingar í leik. Aðrir spá Pálmi Þór Sævarsson, þjálfari Skallagríms GRINDAVÍK VINNUR 3-2 Birgir Örn Birgisson, þjálfari KFÍ GRINDAVÍK VINNUR 3-1 Ágúst Björgvinsson, þjálfari Vals GRINDAVÍK VINNUR 3-1 Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Fjölnis GRINDAVÍK VINNUR 3-0 ➜ Vissir þú að ... GRINDAVÍK VINNUR 3-1 Grindvíkingar hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn tvö ár í röð, bæði árin sem deildarmeistarar. Þeir enduðu nú í þriðja sætinu og mæta Þór sem varð í sjötta sæti. Grind- víkingar eru eina liðið sem hefur unnið KR á þessu ári og liðið kemur inn í úrslitakeppnina á níu leikja sigurgöngu í deild og bikar. Þórsliðið tapaði tveimur síðustu deildar- leikjum sínum en eru ásamt KR eina liðið sem hefur unnið í Röstinni í Grindavík í vetur. Grindvíkingar hafa unnið sex seríur í röð í úrslitakeppni eða allar síðan þeir töpuðu fyrir Stjörnunni í átta liða úrslitunum 2011. Grindavík hefur komist í 1-0 í öllum seríunum og í 2-0 í fjórum af sex. Ein seríanna var á móti Þór úr Þorlákshöfn en liðin mættust í lokaúrslitunum árið 2012. KLUKKAN 19.15 í Grindavík Mætast í fyrsta leik í kvöld Getumunurinn á liðunum er einfaldlega of mikill. Snæfell er með flottan mannskap en liðið hefur ekki verið að spila nógu vel. Það mun selja sig dýrt á móti KR en það er ekki nóg til að sigra KR sem er besta liðið á Íslandi í dag. Jón Ólafur hefur verið meiddur og ekki verið nema skugginn af sjálfum sér. Sigurður Þorvaldsson spilar frábærlega og Snæfell mun veita KR alvöru keppni og vinna eina í Hólminum. En KR er langsterkasta liðið í dag. Taflan lýgur ekki. Örvar Þór Kristjánsson Rimma liðanna í 3. og 6. sæti ætti að vera jafnari en mér finnst Grindavík hafa verið besta liðið eftir áramót. Það hefur aðeins tapað einum leik og unnið bikarinn. Samt hefur það siglt undir radar. Þetta er rosalega flott og vel þjálfað lið sem er meistari síðustu tveggja ára. Það skyldi enginn vanmeta hjarta meistarans. Þórsarar mega vera sáttir við sitt. Þeir eru með minni hóp og minni reynslu en hafa staðið sig vel á tímabilinu. Örvar Þór Kristjánsson Þessi tími ársins ÁSKRIFT Í GRINDAVÍK? Þorleifur Ólafsson lyftir hér Íslandsbikarnum síðasta vor en hann hefur verið í Grindavík í tvö ár. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL KLUKKAN 19.15 DHL-höllinni Mætast í fyrsta leik í kvöld Í KVÖLD KL. 19.15 Örvar Þór Kristjánsson er aðalspámaður Fréttablaðsins fyrir átta liða úrslitin í karlakörfunni. DOMINOS-DEILD KARLA Ragnar Nathanaelsson tók 25 fráköst í sigri Þórs í Grindavík en engum tókst að taka fleiri fráköst í einum leik í vetur. Ragnar var með 18,0 stig og 18,5 fráköst að meðal- tali í leikjunum á móti Grindavík. Haukarnir hafa ekki unnið seríu í úr- slitakeppni síðan Ívar Ásgrímsson þjálf- aði þá síðast og fór með liðið í undanúrslitin vorið 2000. Frá þeim tíma hafa Haukarnir tapað fimm seríum í röð. Njarðvíkingar hafa tapað fjórum seríum í röð þannig að eitthvað verður undan að láta núna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.