Fréttablaðið - 20.03.2014, Blaðsíða 34
FÓLK|TÍSKA
Árshátíðatíminn stendur sem hæst. Síðkjóla er sjálfsagt að nota þegar boðið er til glæsi-
legrar veislu. Sjaldan hefur verið
meira um litríka, fallega síðkjóla en
núna. Hægt er að láta sauma á sig eftir
ákveðnum fyrirmyndum, kaupa þá hér-
lendis eða panta á netinu frá útlöndum.
Smekkur kvenna er misjafn, sumar vilja
frekar vera í stuttum kjól á árs hátíðinni
og það er að sjálfsögðu leyfilegt. Hver
sem smekkurinn er þá verður ekki
annað sagt en að síðkjóll geri hverja
konu afar glæsilega.
Þegar kjóllinn er valinn þarf að huga
að því hvort sniðið henti líkamanum
og hvort liturinn passi. Eðlilegast er
að velja liti út frá hár- og húðlit. Það
geta því miður ekki allar konur gengið
í sterkum appelsínugulum eða skær-
grænum lit. Nauðsynlegt er að máta
nokkra liti til að finna út hvað fer húð-
inni best. Best er máta kjólinn í dags-
birtu frá glugga verslunarinnar til að sjá
rétta litinn.
Ekki vera feimin við að fara í liti, þeir
gætu komið á óvart. Oft er sniðugt ráð
að taka mynd af sér í kjólnum og skoða
þegar heim er komið. Einnig er sjálf-
sagt að taka einhvern með í verslunar-
leiðangur til að hafa stuðning.
Svartur kjóll hentar öllum og er alltaf
klassískur, hvort sem hann er stuttur
eða síður. Einfaldan, svartan kjól er
hægt að skreyta með fallegum skart-
gripum, sjali eða belti. Hvítur kjóll er
tákn brúðarinnar, hreinleika og sak-
leysis. Betra er að velja ljósan kjól, ekki
skjannahvítan.
Við svartan kjól er fallegt að vera í
rauðum skóm og með rauða handtösku.
Ef skórnir eru opnir er rétt að fara í
fótsnyrtingu svo glæsileikinn nái alveg
fram í tær. Hávaxnar, grannar konur
geta gengið í flestöllum gerðum af síð-
kjólum, til dæmis hafmeyjarkjólum,
sem annars fara ekki öllum. Þéttvaxin
kona ætti hins vegar að velja sér kjól
úr þunnu og léttu blúnduefni og forð-
ast flókna hluti í mitti, hálsmáli og yfir
brjóst. Lágvaxin kona ætti að forðast
víð pils og ýktar axlir.
HUGMYNDIR FYRIR
ÁRSHÁTÍÐINA
GLÆSILEIKI Nú er tími árshátíðanna og margar konur velta fyrir sér hvert sé
rétta dressið. Því ekki að velja fallegan síðkjól? Það getur verið spennandi að
leita að þeim eina rétta.
GRÆNBLÁR Þessi glæsilegi kjóll
er í vinsælum túrkislit og er sérlega
klæðilegur. Hann var sýndur á
tískusýningu í Mexíkóborg fyrr í
mánuðinum. Grænblár litur, túrkis,
er vinsæll um þessar mundir og
sömuleiðis alls kyns bláir litir. Sumir
kjólar eru svo fallegir að óþarfi er
að bera skartgripi við þá. Falleg, lítil
handtaska er þó alltaf nauðsynleg og
hana ætti að velja af kostgæfni í stíl
við kjólinn og skóna.
RAUÐUR OG ELEGANT Síður,
rauður kjóll er glæsilegur. Þessi er
hvorki fleginn né ber í bakið, eins
og margir kjólar um þessar mundir.
Rauðir kjólar þykja ákaflega kynþokka-
fullir en fara ekki öllum. Það er um að
gera að prófa rauðan kjól því margar
konur eru glæsilegar í þeim lit. Ekki
vera hrædd við litrík mynstur, þau
geta breytt þreytulegu útliti í frísklegt
á svipstundu. Sérstaklega yfir sumar-
tímann þegar sól er hátt á lofti. Litir
geta gert mikið fyrir útlitið svo það er
þess virði að máta.
Í FÖLBLEIKUM LIT Ákaflega fallegur kjóll
með gullskreytingum. Kjóllinn var sýndur á
hátískusýningu í París.
MEÐ SKRAUT Á ÖXLUM Þessi glæsilegi
kjóll var sýndur í París og þykir einstaklega
glæsilegur. Skrautið er á öxlunum.
Í RÓM Þessi kjóll er afar sérstakur en
hann er bæði stuttur og síður. Kjóllinn var
sýndur á tískusýningu í Róm.
Flottar gallabuxur
kr. 14.900.-
7/8 lengd
háar í mit tið
Str. 34-46/48
Litir:
gallablát t, svart,
dökkblát t
Nýt t kortatímabil
Bæjarlind 6 • S. 554 7030
www.rita.is
Við erum á Facebook
Skipholti 29b • S. 551 0770
NÝ SENDING!
AF VINSÆLU KULDASKÓNUM
MEÐ MANNBRODDUNUM
FYRI
R DÖ
MUR
OG H
ERRA
Verð
:24.0
00.-
Yoek dagar!
Veglegur kaupauki
fylgir öllum keyptum vörum frá Yoek
Á meðan birgðir endast.
Vertu vinur okkar á Facebook