Fréttablaðið - 20.03.2014, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 20.03.2014, Blaðsíða 46
20. mars 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 34 ➜ Megan er þátttakandi í Fríyrkjunni, sem gaf út safnrit með ljóðum skálda á aldrinum 17 til 25 ára í fyrra. „Við vonumst til að þetta verði alvöruljóðaslamm með aktífum áhorfendum og vonandi verða mikil læti og mikið stuð,“ segir Megan Auður Grímsdóttir, einn skipuleggjanda Ljóðlympíuleika sem haldnir verða á Loft Hosteli í kvöld. Þar munu skáldsystur og skáldbræður Reykjavíkur keppa til sigurs og aðeins eitt þeirra standa uppi sem sigurvegari. Borgarbókasafnið hefur á undanförnum árum staðið fyrir ljóðaslammi en Megan segir meininguna að taka þetta lengra í kvöld. „Þetta á að vera öfgakennt og við hvetjum áhorfendur til að láta hressilega í sér heyra.“ Það eru forlagið Meðgönguljóð og ungskáldahópurinn Fríyrkjan sem standa fyrir slamminu. Megan er þátttakandi í Fríyrkj- unni, sem gaf út safnrit með ljóðum skálda á aldrinum 17 til 25 ára í fyrra, og hún segir hóp- inn hafa verið duglegan að koma fram og lesa ljóð, þá gjarnan með tónlistarívafi. Á því verður ekki breyting í kvöld því rapphópur- inn Reykjavíkurdætur mun spila í dómarahléi. Dómnefnd skipa skáldin Hall- grímur Helgason, Sigurbjörg Þrastardóttir, Bergrún Anna Hallsteinsdóttir, fyrir hönd Með- gönguljóða, og Stefán Ingvar Vig- fússon, fyrir hönd Fríyrkjunnar. Boðið verður upp á tíu atriði og er búið að velja þau. Megan segir meininguna að halda slík slömm oftar og hvetur áhugasama til að skrá sig í slömm framtíðarinnar á netfanginu friyrkjan@gmail. com. „Það er öllum velkomið að sækja um þátttöku og væri mjög gaman ef sem flestir skráðu sig.“ Hverjir munu keppa í kvöld er algjört leyndarmál og því eiga forvitnir ekki annan kost en að vera mættir á Loft Hostel klukkan 20 í kvöld og bíða spenntir eftir að fyrsta skáldið stígi á svið. - fsb Þetta verður vonandi öfgakennt Meðgönguljóð og Fríyrkjan standa fyrir ljóðaslammi á Loft i Hosteli í kvöld. Yfi rskrift in er Ljóðlympíuleikar 2014 og þar keppa skáld til sigurs fyrir besta slammið og áhorfendur eru hvattir til að láta hressilega í sér heyra. MEGAN AUÐUR „Vonandi verða mikil læti og mikið stuð.“ FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL „Hugmyndin með sýningunni Shop Show er sú að efla vitund um vist- væna hönnun fyrir framtíðina. Þar eru valdar vörur úr efniviði sem gjarnan er að finna í heimahögum hönnuðanna,“ segir Róshildur Jóns- dóttir. Hún er einn þeirra norrænu hönnuða sem eiga muni á sýningunni Shop Show sem opnuð verður á efri hæð Hafnarborgar í Hafnarfirði á laugardaginn. Hún segir sýninguna líka eiga að opna augun fyrir ábyrgð neytenda þegar þeir velja vörur. „Ef allir hefðu sömu neysluvenjur og Íslendingar núna þyrftum við sjö hnetti. Við Vesturlandabúar munum ekki geta haldið svona áfram,“ segir hún ákveðin. Róshildur er þekkt fyrir hönnun og vöruþróun leikfanga og skrautmuna úr fiskibeinum. „Ég nota fiskhausa sem ekki eru nýttir hér á landi í dag nema í mjöl og ég er að marg- falda virði þeirra,“ bendir hún á. Hún segir ótrúlega stutt síðan við virtum skepnuna mun meira en nú. Bara 50-100 ár. „Beinin voru leik- föng og smíðaefni, dýrmætur efni- viður af því við áttum ekki mikið, en nú eru öll bein grafin í jörð í þúsunda tonna vís. Við misstum tengingu við þetta efni í nærumhverfinu með til- komu fjöldaframleiðslu úr plasti,“ segir hún. Minnist líka á offram- leiðslu heimsins á fatnaði með ódýru vinnuafli við stórvarasamar aðstæð- ur. „Við erum komin út á ystu nöf og verðum að fara að breyta hugsunar- hættinum,“ segir Róshildur sem er með vefsíðuna hugdetta.com þar sem hún kynnir vörur sínar og heimssýn. Ásamt Róshildi sýnir hönnunar- teymið Vík Prjónsdóttir á Shop Show. Það hannar vörur úr íslenskri ull sem notið hafa mikilla vinsælda. Sýningin er unnin af Form Design Center í Malmö og ferðast um Norður löndin. Í Hafnarborg er henni fylgt úr hlaði með veglegri dagskrá þar sem viðfangsefni hennar eru krufin, meðal annars með samtölum við hönnuðina Petru Lilju, Brynhildi Pálsdóttur og Róshildi. Bæði Shop Show og Hnallþóra í sólinni eru hluti af HönnunarMars 2014, enda liggur líka áhugaverð hönnun eftir listamanninn svissneska Dieter Roth. gun@frettabladid.is Vilja efl a vitund um vistvæna hönnun Tvær sýningar verða opnaðar í Hafnarborg á laugardag klukkan 15. Annars vegar Hnallþóra í sólinni með úrvali prent- og bókverka eft ir Dieter Roth og hins vegar Shop Show, norræn samtímahönnun með áherslu á umhverfi smál og sjálfb ærni. RÓSHILDUR „Ég hef ekki fundið neinn í heiminum sem vinnur með beinin á sama hátt og ég, sem betur fer,“ segir hún. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR LISTAVERK Róshildur segir ekki aðeins um leikföng að ræða úr fiskbeinunum heldur höfði efnið til fólks á öllum aldri. VISTVÆN HÖNNUN Vörurnar á Shop Show eru gerðar úr vistvænum efniviði og gjarnan úr heimahögum hönnuðanna. MYND/HELGA STEPPAN OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR Í BAKKALÁR- OG MEISTARANÁM TIL 21. MARS MENNING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.