Fréttablaðið - 20.03.2014, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 20.03.2014, Blaðsíða 10
20. mars 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 ALÞINGI Með því að taka þátt í sér- stakri umræðu um stöðu aðildar- viðræðnanna við Evrópusam- bandið um miðjan janúar hefur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra brugðist við 16,7 prósentum beiðna þingmanna sem beint hefur verið til hans um þátttöku í sérstökum umræðum á þinginu á yfirstandandi kjör- tímabili. Lægra svarhlutfall er bara að finna hjá Gunnari Braga Sveinssyni utanríkisráðherra, núll prósent, en hann hefur ekki orðið við einu beiðninni sem beint var til hans. Langhæst svarhlutfall er hjá Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigð- isráðherra, 87,5 prósent, en hann hefur verið til svara í sjö umræðum af þeim átta sem hann hefur verið beðinn um að vera viðstaddur. Athygli vakti í fyrradag þegar Guðmundur Steingrímsson, þing- maður og formaður Bjartrar fram- tíðar, kvaðst ekki bíða lengur eftir að forsætisráðherra brygðist við beiðni um umræðu frá honum og beindi erindi sínu frekar til fjár- málaráðherra. „Árni Páll fékk hann til að mæta í sérstaka umræðu um stöðu aðildar viðræðna við ESB 16. janúar. Hann bíður hins vegar enn eftir að Sigmundur svari hvort hann ætli að mæta í umræðu um kjarasamninga, sem Árni Páll bað um fyrir margt löngu,“ segir Guð- mundur. Sjálfur segist hann hafa beðið í fimm mánuði eftir að for- sætisráðherra mætti í umræðu um fullveldishugtakið áður en hann gafst upp. Þingmenn geta bara lagt fram eina beiðni í einu um sér- staka umræðu. Guðmundur lagði í framhaldinu fram beiðni um sérstaka umræðu um gjaldeyris- höftin, en beindi henni svo til Bjarna Benediktssonar í staðinn. Að auki bíður Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, sérstakrar umræðu um menningarminjar í tengslum við styrki til húsverndar og Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, umræðu um hleranir. Annars segist Guðmundur telja að það ætti að vera Sigmundi Davíð áhyggjuefni hversu fáar fyrir spurnir hann fái, til dæmis borið saman við fjármálaráðherra. „En þar sem þær eru ekki fleiri hefði maður haldið að hann hefði tíma til að svara.“ olikr@frettabladid.is Hefur brugðist við 16,7% beiðna Heilbrigðisráðherra hefur brugðist við sjö af átta beiðnum sem á kjörtímabilinu hefur verið til hans beint um sérstakar umræður á Alþingi. Fjármálaráðherra hefur brugðist við 11 af 17 beiðnum. Forsætisráðherra er gagnrýndur harðlega fyrir að bregðast seint við beiðnum. Ráðherra Fjöldi beiðna Sinnt Hlutfall Kristján Þór Júlíusson 8 7 87,5% Sigurður Ingi Jóhannsson 10 7 70,0% Bjarni Benediktsson 17 11 64,7% Hanna Birna Kristjánsdóttir 13 7 53,8% Eygló Harðardóttir 6 3 50% Ragnheiður Elín Árnadóttir 6 3 50% Illugi Gunnarsson 15 7 46,7% Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 6 1 16,7% Gunnar Bragi Sveinsson 1 0 0,0% Alls: 82 46 56,1% Heimild: Málaskrá Alþingis SÉRSTAKAR UMRÆÐUR Á KJÖRTÍMABILINU Sigurður Már Jónsson, upplýsinga fulltrúi ríkisstjórnar- innar, bendir á að Björt framtíð hafi beðið um 12 sérstakar umræður við ráðherra, fengið átta og þrjár hafa verið kallaðar aftur. „Það er því aðeins ein beiðni BF um sérstakar umræður við ráðherra sem bíður. Beiðnum BF um sérstakar umræður við ráðherra hefur því í heild verið mjög vel sinnt,“ segir hann. Í almennu samhengi sé einnig mjög eðlilegt að forsætisráðherra fái fæstar beiðnir um sérstakar umræður þar sem hann fari með fæsta málaflokka. Í því ljósi geti tæplega talist sanngjarnt að setja mál fram með þeim hætti að forsætisráðherra hafi bara tekið þátt í einni af 46 sérstökum umræðum sem farið hafi fram á kjörtímabilinu. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Alþingis hafi nú bara beðið forsætisráðherra beiðni Guðmundar Steingrímssonar um umræðu um afnám gjaldeyris- hafta og samninga við erlenda kröfuhafa gömlu bankanna. „Hún hefur nú verið afturkölluð og færð á fjármálaráðherra enda hefði málshefjandi mátt vita að hún væri betur vistuð þar, eða vissi hann ekki að forræði afnáms gjaldeyrishafta er hjá fjármálaráð- herra?“ segir Sigurður Már. ➜ Forsætisráðherra fær síður beiðnir ➜ Þátttaka í sérstökum umræðum á þingi 20 13 - 2 01 4 20 13 20 12 - 2 01 3 20 11 - 2 01 2 20 10 -20 11 20 09 - 2 01 0 20 09 20 08 - 2 00 9 20 07 - 2 00 8 20 07 20 06 - 2 00 7 20 05 - 2 00 6 20 04 -20 05 1 0 4 2 3 5 1 6 12 0 3 10 6 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Jóhanna Sigurðardóttir Geir H. Haarde Halldór Ásgrímsson 2 0 6 4 8 12 10 NÆST LÆGSTUR Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur tekið þátt í einni sérstakri umræðu á kjörtímabilinu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is NISSAN LEAF VAR FYRSTI RAFBÍLLINN Í HEIMINUM sem hlaut 5 stjörnur í Euro NCAP árekstrarprófunum árið 2012. Öllum Nissan Leaf sem BL selur fylgir 5 ára ábyrgð á rafhlöðu og tengdum háspennuhlutum. E N N E M M / S ÍA / N M 6 19 8 1 Nissan EURO LEAF VERÐ 4.690 ÞÚS. KR. • Tvær hraðhleðslustöðvar komnar í gagnið: BL Sævarhöfða og höfuðstöðvar ON Bæjarhálsi • 80% hleðsla á 20 mínútum • Hraðhleðslustöðvar á 10 stöðum á næstunni • Frí hleðsla í boði ON og Nissan Europe NÝJAR HRAÐHLEÐSLUSTÖÐVAR ON OG NISSAN ON, í samstarfi við BL ehf. og Nissan Europe, setur upp 10 hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla á næstu mánuðum. Þær fyrstu hafa verið opnaðar við BL ehf. Sævarhöfða og höfuðstöðvar ON á Bæjarhálsi. Þetta er sannkölluð bylting fyrir rafbílaeigendur því það tekur ekki nema um 20 mínútur að hlaða geyminn upp í 80%. Það sem meira er: fyrst um sinn þurfa rafbílaeigendur ekki að greiða fyrir hleðsluna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.