Fréttablaðið - 20.03.2014, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 20.03.2014, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 20. mars 2014 | FRÉTTIR | 11 SJÁVARÚTVEGUR Loðnuafli skipa HB Granda á nýafstaðinni vertíð var alls tæp- lega 24.000 tonn, miðað við 86.000 tonn á vertíðinni í fyrra. Loðnuvertíðin fjar- aði út frá og með 10. mars og lítið hefur veiðst eftir þann tíma. Vonir voru bundnar við vestangöngu loðnu, sem fyrst varð vart við út af Ísa- fjarðardjúpi undir lok vertíðarinnar, en þær urðu að engu eftir mælingar Haf- rannsóknastofnunar. Að sögn Garðars Svavarssonar, deildar- stjóra hjá HB Granda, í frétt á heimasíðu fyrirtækisins, var áhersla lögð á að nýta aflann sem best til manneldis. Heilfryst var fyrir Rússlands- og Japansmarkað auk þess sem unnin voru loðnuhrogn fyrir kaupendur í A-Evrópu og Asíu. Albert Sveinsson, skipstjóri á Faxa RE, segir að vertíðin hafi verið óvenju erfið, kvótinn lítill og slæmt tíðarfar. Komið hafi á óvart hvað loðnan gekk dreift með landinu og hver hraðinn var á göngunni. Útgerðir huga nú að kolmunnaveiðum. Aflabrögð hafa verið ágæt síðustu vikur á miðunum um 250 sjómílur vestur af Írlandi. - shá Útgerðir uppsjávarveiðiskipa að gera sig klárar á kolmunnaveiðar eftir litla loðnuveiði í erfiðu tíðarfari: Vonir um vestangöngu loðnu brugðust FAXI RE Vertíðin hefur einkennst af stöðugum brælum og öðrum leiðindum. MYND/HBGRANDI VINNUMARKAÐUR Starfsgreina- sambandið hefur skrifað undir nýjan kjarasamning við Bænda- samtök Íslands fyrir hönd starfs- fólks sem vinnur almenn land- búnaðarstörf á bændabýlum. Auk þess falla ráðskonur og matráðar á bændabýlum undir samninginn. Helstu atriði hins nýja samn- ings eru að byrjunarlaun eru nú 216.500 krónur og hækka eftir því sem starfsfólk vinnur lengur. Þá hækka laun um allt að tvo launaflokka ef starfsmaður hefur lokið námi sem nýtist í starfi. - jme Almenn landbúnaðarstörf: Byrjunarlaun 216 þúsund SAMNINGUR Starfsgreina sambandið hefur samið fyrir hönd lanbúnaðar- verkamanna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VIÐSKIPTI Nýtt breskt pund er væntanlegt árið 2017 og á þessi nýja mynt að vera sú mynt sem erfiðast verður að falsa. Peningurinn á að hafa tólf horn og skarta vangamynd Elísabetar Bretlandsdrottningarinnar. Efnt verður til samkeppni um hönnun á bakhlið peningsins. Gamla pundið þykir of auðvelt í fölsun en áætlað er að 45 millj- ónir falsaðra punda af gömlu gerðinni séu í umferð. Nýja pund- ið verður tæknilega fullkomnasta mynt sem slegin hefur verið. - ssb Bretar hanna nýja mynt: Nær ömögulegt að falsa pundið EITT PUND Svona mun framhlið punds- ins líta út. NORDICPHOTOS/AFP KÓPAVOGUR Í sumar verður starf- ræktur ferðamannavagn á vegum Kópavogsbæjar, ferðamönnum að kostnaðarlausu. Ferðamannavagninn fer fjórar ferðir daglega frá upplýsingamið- stöð ferðamanna í Aðalstræti og stoppar í Hamraborg og Smára- lind. Ferðirnar hefjast föstudag- inn 15. maí en síðasta ferð verður farin sunnudaginn 31. ágúst. Það eru Hópbílar Teits Jónas- sonar sem sjá munu um akstur- inn. - ssb Ferðaþjónusta sumarsins: Ferðamenn fá far í Kópavogi SÆTAFERÐIR Samningur um ferða- mannavagninn var undirritaður í gær. Nánari upplýsingar á rsk.is 442 1000 Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is Fljótlegt að skila framtali Skilafrestur er til 21. mars Opna framtalið Yfirfara upplýsingar Breyta ef þarf Auðkenning Unnt er að auðkenna sig með þrenns konar hætti, þ.e. með rafrænum skilríkjum á debetkorti, rafrænum skilríkjum í gsm síma og með veflykli RSK. Veflykla má fá senda í heimabanka eða með bréfapósti. Símaþjónusta í 442-1414 Í mars verður veitt aðstoð í síma 442-1414 alla virka daga frá kl. 9:30 til 15:30. Dagana 21. mars, 31. mars og 1. apríl verður þjónustan í boði til kl. 19:00. Skilafrestur Almennur skilafrestur fyrir launamenn og einstaklinga með eigin atvinnurekstur er til 21. mars. Unnt er að sækja um lengri frest á skattur.is og getur hann lengstur orðið til 1. apríl. Framtal barns skal fylgja framtali framfæranda. Upplýsingar á framtali Áríðandi er að framteljandi athugi hvort áritaðar fjárhæðir og aðrar upplýsingar séu í samræmi við gögn og upplýsingar sem hann hefur sjálfur undir höndum. skattur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.