Fréttablaðið - 20.03.2014, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 20.03.2014, Blaðsíða 50
20. mars 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38 „Við tökum öll þessi helstu karla- kórslög, Hrausta menn, Brennið þið vitar, Ísland, Ísland, eg vil syngja og Fóstbræðralag,“ segir Eygló Höskuldsdóttir Viborg, ein stúlknanna í Graduale Nobili, um tónleika kórsins í Langholtskirkju næsta sunnudag klukkan 20. Hún segir það rótgróið í þjóðina að fyrr- nefnd lög skuli einungis sungin af karlmönnum og viðurkennir líka að það sé krefjandi fyrir dömukór að takast á við þau. „Það þurfti að „kalla“ aðeins upp í okkur röddina, enda átak að byrja að syngja eins og fimmtíu manna karlakór eftir að hafa sungið eins og smástelpur í áratugi. En við hituðum okkur upp með því að fara á æfingar hjá Fóstbræðrum og Karlakór Reykja- víkur og taka lagið með þeim. Þeir stríddu okkur svolítið fyrst en svo held ég að við höfum fengið grænt ljós hjá þeim þegar við vorum búnar að syngja nokkur lög.“ Hvernig skyldi hugmyndin að tónleikunum hafa orðið til? „Þegar við vorum í barna-og unglingakór- unum hér í Langholtskirkju lærðum við bók með íslenskum lögum utan að. Ef við vorum að bíða eftir strætó á erlendri grundu sungum við Þú álfu vorrar yngsta land og fleiri karlakórslög – sem barnakór. Þetta er því búið að búa með okkur lengi,“ lýsir Eygló og heldur áfram. „Eitt sinn vantaði okkur aukalag á tónleikum og þá datt Jóni Stefáns- syni, stjórnanda okkar, í hug að láta okkur syngja Brennið þið vitar. Síðan er reyndar búin að vera svo- lítil barátta að fá hann til að æfa með okkur fleiri karlakórslög en það endaði með að lukkast svo nú eru heilir tónleikar með þeim. Það er líka gaman að tengja þá Mottu- mars sem við styðjum fullkomlega og höfum stofnað styrktarsíðu til að taka þetta alla leið.“ Almennt miðaverð á tónleikana á sunnudag er 2000 krónur en með- limir Listafélags Langholtskirkju auk allra félaga í karlakórum nær og fjær, að ógleymdu fátæku náms- fólki fá aðgögumiða á 1.500. gun@frettabladid.is Fórum á æfi ngu hjá Fóstbræðrum Dömukórinn Graduale Nobili tekst á við helstu karlrembulög íslenskra tónbók- mennta í Langholtskirkju á sunnudag klukkan 20. Hann styður líka Mottumars. GRADUALE NOBILI „Það er átak að byrja að syngja eins og fimmtíu manna karlakór eftir að hafa sungið eins og smástelpur í áratugi,“ segir Eygló Höskuldsdóttir, ein úr hópnum. Graduale Nobili er úrvalskór stúlkna sem hafa sungið með Gradualekórnum í Langholts- kirkju. Hann hefur verið starf- andi í fjórtán ár. Á þeim tíma hefur hann margoft glatt hjörtu tónleikagesta í Langholtinu og unnið til fjölda verðlauna. Einnig hefur hann gefið út geislaplötur og ferðast um heimsbyggðina, meðal annarra með Björk í tengslum við verkefnið Biophilia. Fjöldi kórfélaga er bundinn við tuttugu og fjóra. Stjórnandi kórsins er Jón Stefánsson. ➜ Um Graduale Nobili Brúðuleiksýningin Aladdín er aftur komin á Brúðuloft Þjóðleik- hússins og mætir Aladdín gal- vaskur til leiks á laugardaginn ásamt Salímu vinkonu sinni og fleiri furðufuglum til að skemmta fólki frá fimm ára upp í 105 ára. Hætta þurfti sýningum fyrir jól fyrir fullu húsi en Bernd Ogrodnik brúðulistamaður er nýkominn heim úr langri sýningarferð og hefur tækifæri til að sýna Aladdín í nokkur skipti áður en haldið verð- ur á ný út í hinn stóra heim. Sýningin um Aladdín hefur hlotið frábæra dóma leiklistar- gagnrýnenda og góðar viðtökur áhorfenda. Handrit, brúðugerð, leikmynd og tónlist eru eftir Bernd Ogrodnik og Ágústa Skúladóttir leikstýrir. Aladdín og félagar eru mættir aft ur Sýning Bernd Ogrodnik á Aladdín verður sýnd á Brúðuloft inu nokkrum sinnum á næstu vikum. ALADDÍN Nokkrar sýningar verða á Aladdín og sú fyrsta er á laugardaginn. MYND/EDDI Lystisemdir, Efasemdir, Heimsendir nefnist sýning sem opnuð verður í Kling og Bang galleríi á laugardaginn klukkan 17. Þar sýna Emma Heiðarsdóttir, Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Loji Höskulds son, Margrét Helga Sesseljudóttir og Sigurður Ámunda- son ný verk. Sýningarstjóri er Anna Hrund Másdóttir og það var hún sem valdi verkin á sýninguna. „Ég lét tilfinninguna algjörlega ráða valinu,“ segir hún. „Ég hef þekkt til þessara listamanna og fylgst með verkum þeirra í nokkur ár og þau gera alltaf eitthvað sem snertir mig mjög mikið. Þótt þau vinni ólík verk á ólíkan hátt og í ólíka miðla þá er í þeim öllum einhver neisti sem fær mann til þess að hugsa og skynja á nýjan hátt.“ Allir listamennirnir eru tiltölulega nýútskrifaðir úr myndlistar- námi en Anna Hrund segir þau öll hafa sterk höfundareinkenni. Á sýningunni kennir ýmissa grasa og verkin eru afar ólík. „Þar eru performans, innsetning, skúlptúrar og veggverk, allt verk sem eru sérstaklega unnin fyrir þessa sýningu og taka flest mið af rýminu í Kling & Bang,“ segir Anna Hrund. Ragnar Kjartansson myndlistarmaður fylgir sýningunni úr hlaði með nokkrum orðum í sýningarskrá og segir þar meðal annars: „Á þessum tímum vonleysis, máttleysis og laskaðrar réttlætis kenndar sjáum við verk sem vinna með fagurfæði á ein- hvern dularfullan hátt. Rýmiskennd, innri ólgu, endalausan ein- manaleika og þrá. Þessir listamenn skapa verk sem fylla okkur samtímis af von og vonleysi. Kynslóðin í tóminu.“ - fsb Lystisemdir, Efasemdir, Heimsendir Fimm ungir myndlistarmenn opna sýningu í Kling & Bang á laugardaginn. Öll verkin eru unnin sér- staklega fyrir sýninguna og taka mið af rýminu. LISTAMENNIRNIR „ Þessir listamenn skapa verk sem fylla okkur samtímis af von og vonleysi,“ Ragnar Kjartansson. MYND/GUÐRÚN MATTHILDUR Prins Polo 99 punktar Góu Lindubuff 79 punktar Pylsa með öllu 199 punktar Sérbakað vínarbrauð 199 punktar Partítilboð á punktaprís á völdum þjónustustöðvum: 10 pun ktar m eð hverjum lítra af bensín i og dís el ÍSLE N SK A /SIA .IS E N N 68315 03/14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.