Fréttablaðið - 20.03.2014, Side 10
20. mars 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
ALÞINGI Með því að taka þátt í sér-
stakri umræðu um stöðu aðildar-
viðræðnanna við Evrópusam-
bandið um miðjan janúar hefur
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra brugðist við
16,7 prósentum beiðna þingmanna
sem beint hefur verið til hans um
þátttöku í sérstökum umræðum
á þinginu á yfirstandandi kjör-
tímabili. Lægra svarhlutfall er
bara að finna hjá Gunnari Braga
Sveinssyni utanríkisráðherra, núll
prósent, en hann hefur ekki orðið
við einu beiðninni sem beint var
til hans.
Langhæst svarhlutfall er hjá
Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigð-
isráðherra, 87,5 prósent, en hann
hefur verið til svara í sjö umræðum
af þeim átta sem hann hefur verið
beðinn um að vera viðstaddur.
Athygli vakti í fyrradag þegar
Guðmundur Steingrímsson, þing-
maður og formaður Bjartrar fram-
tíðar, kvaðst ekki bíða lengur eftir
að forsætisráðherra brygðist við
beiðni um umræðu frá honum og
beindi erindi sínu frekar til fjár-
málaráðherra.
„Árni Páll fékk hann til að
mæta í sérstaka umræðu um
stöðu aðildar viðræðna við ESB
16. janúar. Hann bíður hins vegar
enn eftir að Sigmundur svari hvort
hann ætli að mæta í umræðu um
kjarasamninga, sem Árni Páll bað
um fyrir margt löngu,“ segir Guð-
mundur. Sjálfur segist hann hafa
beðið í fimm mánuði eftir að for-
sætisráðherra mætti í umræðu um
fullveldishugtakið áður en hann
gafst upp. Þingmenn geta bara
lagt fram eina beiðni í einu um sér-
staka umræðu. Guðmundur lagði
í framhaldinu fram beiðni um
sérstaka umræðu um gjaldeyris-
höftin, en beindi henni svo til
Bjarna Benediktssonar í staðinn.
Að auki bíður Brynhildur
Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar
framtíðar, sérstakrar umræðu um
menningarminjar í tengslum við
styrki til húsverndar og Ögmundur
Jónasson, þingmaður VG, umræðu
um hleranir.
Annars segist Guðmundur telja
að það ætti að vera Sigmundi
Davíð áhyggjuefni hversu fáar
fyrir spurnir hann fái, til dæmis
borið saman við fjármálaráðherra.
„En þar sem þær eru ekki fleiri
hefði maður haldið að hann hefði
tíma til að svara.“ olikr@frettabladid.is
Hefur brugðist við 16,7% beiðna
Heilbrigðisráðherra hefur brugðist við sjö af átta beiðnum sem á kjörtímabilinu hefur verið til hans beint um sérstakar umræður á Alþingi.
Fjármálaráðherra hefur brugðist við 11 af 17 beiðnum. Forsætisráðherra er gagnrýndur harðlega fyrir að bregðast seint við beiðnum.
Ráðherra Fjöldi beiðna Sinnt Hlutfall
Kristján Þór Júlíusson 8 7 87,5%
Sigurður Ingi Jóhannsson 10 7 70,0%
Bjarni Benediktsson 17 11 64,7%
Hanna Birna Kristjánsdóttir 13 7 53,8%
Eygló Harðardóttir 6 3 50%
Ragnheiður Elín Árnadóttir 6 3 50%
Illugi Gunnarsson 15 7 46,7%
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 6 1 16,7%
Gunnar Bragi Sveinsson 1 0 0,0%
Alls: 82 46 56,1%
Heimild: Málaskrá Alþingis
SÉRSTAKAR UMRÆÐUR Á KJÖRTÍMABILINU
Sigurður Már Jónsson,
upplýsinga fulltrúi ríkisstjórnar-
innar, bendir á að Björt framtíð
hafi beðið um 12 sérstakar
umræður við ráðherra, fengið
átta og þrjár hafa verið kallaðar
aftur. „Það er því aðeins ein
beiðni BF um sérstakar umræður
við ráðherra sem bíður. Beiðnum
BF um sérstakar umræður við
ráðherra hefur því í heild verið
mjög vel sinnt,“ segir hann.
Í almennu samhengi sé einnig
mjög eðlilegt að forsætisráðherra
fái fæstar beiðnir um sérstakar
umræður þar sem hann fari með
fæsta málaflokka. Í því ljósi geti
tæplega talist sanngjarnt að
setja mál fram með þeim hætti
að forsætisráðherra hafi bara
tekið þátt í einni af 46 sérstökum
umræðum sem farið hafi fram á
kjörtímabilinu.
Samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu Alþingis hafi nú bara
beðið forsætisráðherra beiðni
Guðmundar Steingrímssonar um
umræðu um afnám gjaldeyris-
hafta og samninga við erlenda
kröfuhafa gömlu bankanna. „Hún
hefur nú verið afturkölluð og
færð á fjármálaráðherra enda
hefði málshefjandi mátt vita að
hún væri betur vistuð þar, eða
vissi hann ekki að forræði afnáms
gjaldeyrishafta er hjá fjármálaráð-
herra?“ segir Sigurður Már.
➜ Forsætisráðherra
fær síður beiðnir
➜ Þátttaka í sérstökum umræðum á þingi
20
13
- 2
01
4
20
13
20
12
- 2
01
3
20
11
- 2
01
2
20
10
-20
11
20
09
- 2
01
0
20
09
20
08
- 2
00
9
20
07
- 2
00
8
20
07
20
06
- 2
00
7
20
05
- 2
00
6
20
04
-20
05
1
0
4
2
3
5
1
6
12
0
3
10
6
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Jóhanna Sigurðardóttir
Geir H. Haarde
Halldór Ásgrímsson
2
0
6
4
8
12
10
NÆST LÆGSTUR Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur
tekið þátt í einni sérstakri umræðu á
kjörtímabilinu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
NISSAN LEAF VAR FYRSTI RAFBÍLLINN Í HEIMINUM
sem hlaut 5 stjörnur í Euro NCAP árekstrarprófunum árið 2012.
Öllum Nissan Leaf sem BL selur fylgir 5 ára
ábyrgð á rafhlöðu og tengdum háspennuhlutum.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
19
8
1
Nissan EURO LEAF
VERÐ 4.690 ÞÚS. KR.
• Tvær hraðhleðslustöðvar komnar í gagnið:
BL Sævarhöfða og höfuðstöðvar ON Bæjarhálsi
• 80% hleðsla á 20 mínútum
• Hraðhleðslustöðvar á 10 stöðum á næstunni
• Frí hleðsla í boði ON og Nissan Europe
NÝJAR HRAÐHLEÐSLUSTÖÐVAR ON OG NISSAN
ON, í samstarfi við BL ehf. og Nissan Europe, setur upp 10 hraðhleðslustöðvar fyrir
rafbíla á næstu mánuðum. Þær fyrstu hafa verið opnaðar við BL ehf. Sævarhöfða og
höfuðstöðvar ON á Bæjarhálsi. Þetta er sannkölluð bylting fyrir rafbílaeigendur því
það tekur ekki nema um 20 mínútur að hlaða geyminn upp í 80%. Það sem meira er:
fyrst um sinn þurfa rafbílaeigendur ekki að greiða fyrir hleðsluna.