Fréttablaðið - 05.04.2014, Page 19
LAUGARDAGUR 5. apríl 2014 | SKOÐUN | 19
Deilur um makrílveiðar og síld-
veiðar eru lýsandi dæmi þess að
umgjörð skortir á fiskveiðistjórn-
un í norðaustanverðu Atlantshafi.
Þróttmikið samkomulag
Við þurfum samkomulag til lengri
tíma um sameiginlega fiskveiði-
stjórnun á ákveðnum fiskistofn-
um. Samkomulag sem nær til allra
strandríkja og þar sem samstarf
og sjálfbærni er í öndvegi.
Skipting kvótans má ekki ráðast
af öflugri markaðsstöðu ákveðinna
aðila og áhrifamætti refsiaðgerða
sem þeir beita aðra. Hún má held-
ur ekki ráðast af pólitískum afl-
smunum. Þá er ástæða til að ein-
blína minna á aflatölur en tíðkast
hefur fram að þessu.
Sjálfbær lausn felst ekki í kyrr-
stöðu heldur er hún þróttmikil og
sveigjanleg og getur því tekið mið
af ástandi vistkerfanna hverju
sinni.
Aðgerða er þörf til þess að deilu-
aðilar leiti nýrra leiða.
Þeir eru Grænlendingar, Íslend-
ingar, Færeyingar, Norðmenn og
ESB (Danir).
Norræna ráðherranefndin verð-
ur því að láta til sín taka.
➜ Við þurfum samkomulag
til lengri tíma um sam-
eiginlega fi skveiðistjórnun
á ákveðnum fi skistofnum.
Samkomulag sem nær til
allra strandríkja og þar sem
samstarf og sjálfbærni er í
öndvegi. Skipting kvótans
má ekki ráðast af öfl ugri
markaðsstöðu ákveðinna
aðila og áhrifamætti refsi-
aðgerða sem þeir beita aðra.
ESB, Norðmenn og Færeyingar
undirrituðu 13. mars 2014 samn-
ing um makrílveiðar til fimm ára.
Það er ámælisvert að samkomu-
lagið skuli ekki ná til allra sem
málið varðar. Deilur norrænna
þjóða eru því óleystar samtímis
því að ókleift er að standa saman
að fiskveiðistjórnun þegar ekkert
sameiginlegt samkomulag liggur
fyrir. Norræna ráðherranefndin
verður að leggja sitt af mörkum
til lausnar á sífelldum fiskveiði-
deilum Norðurlandaþjóða á milli.
Eftir fjögurra ára ágreining
náðu ESB, Norðmenn og Færey-
ingar samkomulagi 13. mars 2014
um makrílveiðar til fimm ára.
Samningurinn hefur sína kosti:
Hann greiddi fyrir lausn á ýmsum
tvíhliða deilum undanfarinna ára
um veiðar í Norður-Atlantshafi;
milli ESB og Norðmanna, milli
Færeyinga og Norðmanna og
milli Færeyinga og ESB. Þann-
ig gæti hann einnig rutt brautina
fyrir lausn á síldardeilunni. Sam-
komulagið kveður einnig á um að
frá árinu 2015 virði samningsað-
ilar veiðiráðgjöf Alþjóðahafrann-
sóknaráðsins (ICES) um leyfðan
heildarafla (TAC).
Þá má nefna svonefnt „opt-
in“-ákvæði í samkomulaginu
sem gerir öðrum aðilum – það er
Íslendingum og Grænlendingum –
kleift að gangast undir samkomu-
lagið síðar og er verulegur hluti
kvótans einmitt eyrnamerktur í
þeim tilgangi.
Almennt er samkomulagið þó
ekki viðunandi út frá norrænu
sjónarhorni.
Með samkomulaginu hafa ráða-
menn ákveðið að afli ársins 2014
verði langt umfram þau mörk sem
Alþjóðahafrannsóknaráðið mælir
með.
En það sem er einkum gagnrýn-
isvert er sú staðreynd að samning-
urinn nær ekki til allra málsaðila.
Enn eru óleystar veiðideilur á milli
Norðurlandaþjóða og ókleift er að
standa að sameiginlegri fiskveiði-
stjórnun ef ekkert samkomulag
liggur fyrir.
Leiðbeiningar skortir
Norðurlandasamstarfið er til fyr-
irmyndar á flestum sviðum en
þegar kemur að skiptingu auð-
linda og verðmæta fer að reyna á
samstarfsviljann. Á síðari árum
hafa þjóðirnar ekki staðið sig of
vel í þeim efnum. Í stað þess að
semja um skiptingu fiskveiðikvót-
ans mætast stálin stinn þegar nor-
rænar frændþjóðir beita hver aðra
viðskiptaþvingunum og refsiað-
gerðum.
Slíkt er okkur ekki sæmandi.
Lausnin felst ekki í samkomulagi
sem sum löndin koma að en önnur
ekki.
Ríki sem lúta Alþjóðasamningi
SÞ um úthafsveiðar hafa skuld-
bundið sig til samstarfs um að
tryggja sjálfbærar veiðar. Samn-
ingurinn kveður þó ekki skýrt á
um hvernig skipta eigi fiskveiði-
kvótum milli strandríkja.
Fiskveiðideilur sæma ekki Norðurlöndum
Christina Gestrin
formaður umhverfi s-
og auðlindanefndar
Norðurlandaráðs
Sjúrður Skaale
varaformaður
umhverfi s- og
auðlindanefndar
Norðurlandaráðs
SJÁVARÚTVEGUR
UMMÆLI VIKUNNAR
29.03.2014 ➜ 04.04.2014
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
62
19
5
„Og Ísland var
eitt af þessum
átta löndum
framtíðar-
innar. Bent er
á að það séu
augljóslega að
opnast mjög
mikil tækifæri á Norður-
slóðum varðandi sigl-
ingaleiðir, varðandi olíu
og gasvinnslu og önnur
hráefni og ekki hvað síst
til matvælaframleiðslu.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra sagði að þótt fregnir
af loft slagsbreytingum væru alvarlegar
sköpuðu þær tækifæri fyrir Íslendinga
og vitnaði í bók eft ir Laurence C. Smith.