Fréttablaðið - 10.04.2014, Qupperneq 12
10. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
www.virk.is
MENNTAMÁL Ein virtasta keppnin í
samningatækni á heimsvísu verður
haldin í Reykjavík um næstu helgi.
Háskólinn í Reykjavík heldur
keppnina en lið háskólans sigraði í
keppninni á síðasta ári.
Lið HR hefur komist í aðal-
keppnina í öll þrjú skiptin sem
skólinn hefur tekið þátt en mjög
sterkir háskólar senda lið í keppn-
ina ár eftir ár, eins og Harvard
Law School, HHL Graduate School
of Management og UC Hastings.
- ebg
Keppt í samningatækni:
Íslenska liðið
sterkt á velli
NÁTTÚRA Það er mat Hafrann-
sóknastofnunar að niðurstöður
rannsóknar um stofnerfðafræði
makríls gefi ekki tilefni til að megi
álykta að svo stöddu að hluti mak-
rílsins sem veiðist við Ísland komi
frá Kanada.
Þetta
kemur
fram
í svari
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra við fyrirspurn frá Össuri
Skarphéðinssyni, þingmanni
Samfylkingarinnar, um mak-
rílgöngur í íslenskri lögsögu.
Tilefni fyrirspurnarinnar
byggist á fyrstu niðurstöð-
um rannsóknarverkefn-
is sem sérfræðingar
frá m.a. hafrann-
sóknastofnun-
unum í Bergen í
Noregi og Þórs-
höfn í Færeyjum
eru aðilar að, ásamt sérfræðing-
um frá Matís og Hafrann-
sóknastofnun. Í rannsókn-
inni var erfðabreytileiki
þriggja stofn eininga, þ.e.
við Kanada, út af vestur-
strönd Írlands (vesturstofn)
og á Biskajaflóa (suðurstofn)
kannaður og borinn saman
við makríl sem veiðist hér
við land. Munurinn var
mun minni en búist var
við, sérstaklega í sam-
anburði við aðrar uppsjávarteg-
undir, svo sem síld. Niðurstöðurn-
ar voru að um 85% fiskanna voru
líklegir til að vera af evrópskum
uppruna, 4% af óvissum uppruna
og 11% af kanadískum uppruna,
en ítrekað var að tölfræðilegur
grunnur rannsóknarinnar væri
veikur og ómögulegt að segja til
um uppruna makríls við Ísland
með einhverri vissu.
Næstu skref í rannsóknunum
eru að fá áreiðanlegri niðurstöður
um stofnerfðafræði og skyldleika
Fyrstu niðurstöður rannsóknar benda til að hluti makríls við Ísland geti verið af kanadískum uppruna:
Kanadískur uppruni makríls háður óvissu
ÖSSUR SKARPHÉÐINS-
EVRÓPUMÁL Sendinefnd ESB á
Íslandi býður tveimur fulltrúum
á ári að taka þátt í EUVP-áætlun
(European Union Visitors Pro-
gram) sambandsins í Brussel.
Árið 2011 voru fulltrúarnir þrír
enda var það mat ESB á þeim tíma
að áhugi Íslendinga á sambandinu
hefði aukist.
Ári síðar var fulltrúunum aftur
fækkað um einn. Síðan hafa tveir
farið á hverju ári til Brussel sam-
kvæmt EUVP-áætluninni.
Jón Bjarna-
son, fyrrverandi
þingmaður og
ráðherra, segir
í grein í Frétta-
blaðinu í gær að
sveitarstjórnar-
menn og fleiri
vilji komast frítt
til Brussel og fá
dagpeninga.
Jón segir að
„sendiráð“ Evr-
ópusambands-
ins á Íslandi hafi
milligöngu um
þessar heim-
sók nir sam-
kvæmt áætlun
EUVP. Ferðirn-
ar séu fjármagn-
aðar af Evrópuþinginu og fram-
kvæmdastjórn ESB. Jón telur að
fjöldi þeirra sveitarstjórnarmanna
sem hafa farið í slíkar ferðir geti
hlaupið á tugum ef ekki hundruðum.
„Það er ekki hægt að bjóða sveit-
arstjórnarfólki upp á málflutn-
ing af þessu tagi,“ segir Halldór
Halldórsson, formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga.
„Ég er mjög leiður yfir því að
maður af eldri kynslóð stjórn-
málamanna sé að draga mikil-
væga umræðu í þjóðfélaginu niður
á þetta plan í staðinn fyrir að tefla
fram rökum máli sínu til stuðn-
ings,“ segir Dagur B. Eggertsson,
borgarfulltrúi og oddviti Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík.
Það er ekkert nýtt að sendinefnd
ESB bjóði Íslendingum til Brussel í
EUVP-ferðir. Slíkar boðsferðir hafa
tíðkast að minnsta kosti frá 2003.
Fram til ársins 2011 var einum til
tveimur boðið á hverju ári.
Halldór segir að Samband
íslenskra sveitarfélaga reki skrif-
stofu með einum starfsmanni í
Brussel. Hann segir að eðlilega
eigi sveitarstjórnarmenn sem eru
í forsvari fyrir sitt sveitarfélag
erindi til Brussel til að gæta hags-
muna umbjóðenda sinna.
Sveitarstjórnarmenn eigi erindi
til Brussel vegna EES-samnings-
ins og EFTA. Aðrir vilji fara til
Brussel til að kynna sér starfsemi
og stofnanir ESB.
Langflestar ferðir sem sveitar-
stjórnarmenn fara til Brussel eru
greiddar af Sambandi íslenskra
sveitarfélaga eða sveitarfélögun-
um sjálfum, samkvæmt upplýsing-
um frá sambandinu.
Af öðrum ferðum sem menn
muna til að sveitarstjórnarmenn
hafi farið til Brussel má nefna
þrjár kynnisferðir sem Fasta-
nefnd Evrópusambandsins bauð
sveitarstjórnarfólki í til Brussel
árið 2012.
johanna@frettabladid.is
Segir mál-
flutning Jóns
óboðlegan
Sendinefnd ESB á Íslandi býður tveimur fulltrúum á
ári í EUVP-ferðir til Brussel en ekki tugum eða hund-
ruðum eins og fyrrverandi ráðherra lætur liggja að.
JÓN BJARNASON
FÁNAR Jón Bjarnason telur að margir sveitarstjórnarmenn vilji halda aðildarviðræðum
við ESB áfram svo þeir fái fríar ferðir, dagpeninga og styrki í gæluverkefni. AFP/ PHOTO
EUVP-áætlun Evrópusambands-
ins (European Union Visitors
Program) veitir einstaklingum á
aldrinum 25-45 ára í löndum utan
ESB tækifæri til að heimsækja
stofnanir ESB í Brussel og Strass-
borg. Markmiðið er að auka
tengsl og gagnkvæma þekkingu á
ESB og viðkomandi landi.
EUVP-áætlunin er fjár-
mögnuð af Evrópuþinginu og
framkvæmdastjórn ESB, sem í
sameiningu sjá um framkvæmd
heimsókna. Hver heimsókn stend-
ur yfir í 5 til 8 daga og er sniðin
að þörfum hvers og eins. ESB
greiðir fyrir ferðir og uppihald.
➜ EUVP-áætlun ESB
HALLDÓR
HALLDÓRSSON