Fréttablaðið - 10.04.2014, Page 20
10. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 20
Konur sem fara aldrei í sólbað eru í
tvöfalt meiri hættu á að deyja fyrr
en aðrar konur. Þetta er niðurstaða
nýrrar rannsóknar vísindamanna
við Karólínsku stofnunina í Stokk-
hólmi og Háskólann í Lundi.
Þeir hafa fylgst með 29 þúsund-
um kvenna á aldrinum 25 til 64 ára
í suðurhluta Svíþjóðar um 20 ára
skeið.
Konurnar voru spurðar að því
hvort þær sóluðu sig á sumrin,
á veturna, færu í ljós eða færu í
sólar landaferðir.
Vísindamennirnir mæla með því
að Svíar fari eftir þeim ráðlegg-
ingum sem gefnar eru um sólböð
í suðurhluta Ástralíu.
Það þýðir að margir geti með
góðri samvisku borðað hádegis-
nestið sitt úti í sólinni. Það fari
eftir því hversu sterkir sólargeisl-
arnir eru og hvernig húð viðkom-
andi hefur.
Þeir ráða fólki hins vegar frá
því að vera lengi í sólinni þar sem
það auki líkurnar á að fólk fái húð-
krabbamein. - ibs
Venja á ungbörn strax á neyslu ávaxta og
grænmetis þegar brjóstagjöf lýkur. Tím-
inn þegar verið er að venja barn á fasta
fæðu er afar mikilvægur varðandi fram-
tíðarmatarvenjur þess. Þetta kom fram á
þingi sérfræðinga í Dijon í Frakklandi um
síðustu mánaðamót.
Þar voru kynntar niðurstöður rann-
sókna sérstaks verkefnis, HabEat, á
vegum Evrópusambandsins. Meðal ann-
ars var kynnt fjögurra ára rannsókn á 18
þúsundum mæðra og barna og niðurstöð-
ur fjögurra stórra evrópskra lýðheilsu-
rannsókna.
Sérfræðingarnir rannsökuðu meðal
annars hvers vegna börn borða eins og
þau gera og hvernig matarvenjur verða
til.
Í fyrsta hluta verkefnisins var rannsak-
að hvernig börn á aldrinum sex mánaða
til þriggja ára læra að þykja grænmeti
gott og hvernig þau venjast því að þykja
það ekki gott. Niðurstöðurnar eru meðal
annars þessar:
1. Ef grænmetið er stappað fyrir ungbörn
verða þau hrifnari af fleiri tegundum
til skamms og langs tíma.
2. Sé barninu gefin ný tegund af grænmeti
mörgum sinnum venjast þau bragðinu
og fara að borða meira af grænmetinu.
Þannig venur þú barnið á grænmeti
Venja á ungbörn á neyslu grænmetis og ávaxta strax að lokinni brjóstagjöf. Í verkefni á vegum Evrópusambandsins var rannsakað hvernig
matarvenjur barna verða til. Breskir vísindamenn mæla með því að borðaðir séu sjö skammtar af grænmeti og ávöxtum á hverjum degi.
Breskir vísindamenn við UCL-háskólann í
London mæla með því að borðaðir séu sjö
skammtar af grænmeti og ávöxtum á dag
eða meira í stað fimm eins og ráðlagt hefur
verið frá árinu 1990.
Eftir að hafa rannsakað matarvenjur
65 þúsunda Breta hafa vísindamennirnir
komist að því að þeir sem borða mikið
af grænmeti og ávöxtum séu greinilega í
minni hættu á að deyja fyrir aldur fram en
aðrir.
Á heimasíðu háskólans segir jafnframt
að grænmeti hafi meiri heilsusamleg áhrif
en ávextir.
Það kom vísindamönnunum á óvart að
hættan á að deyja fyrir aldur fram jókst við
neyslu á frystum og niðursoðnum ávöxtum.
Bent er á að mikið magn sykurs sé algengt
í niðursoðnum ávöxtum auk þess sem síróp
sé í ódýrari tegundum af niðursoðnum
ávöxtum en ekki ávaxtasafi.
ÓÁNÆGÐUR Ráð til að fá börn á aldrinum 3 til 6 ára til að borða meira af grænmeti er að bjóða þeim að
velja á milli tveggja tegunda. NORDICPHOTOS/GETTY
Þetta á hins vegar ekki við um börn á
aldrinum þriggja til sex ára. Þau borða
ekki meira af grænmetistegund þótt
þau hafi fengið hana oft áður.
3. Ráð til að fá börn á aldrinum 3 til 6 ára
til að borða meira af grænmeti er að
bjóða þeim að velja á milli tveggja teg-
unda.
Næringarfræðingar hafa áður bent á að
þótt ungbarn gretti sig þegar það bragðar á
nýrri grænmetistegund þýði það ekki endi-
lega að því þyki hún vond. Svipbrigðin geta
verið vegna þess að bragðið kemur þeim á
óvart. Þess vegna sé skynsamlegt að bjóða
barninu sömu tegund fljótlega aftur. Þá
venjist það smátt og smátt bragðinu.
Ingibjörg Bára
Sveinsdóttir
ingibjorgbs@frettabladid.is
SKAMMTAR
Á DAG Í STAÐ FIMM7
Keppni er hafin í leiknum Fjár-
málahreysti milli nemenda í efstu
bekkjum grunnskólans. Um er að
ræða spurningaleik, sér-
staklega hannaðan
fyrir snjallsíma,
sem ætlað er að
efla fjármálalæsi
ungmenna.
Leikurinn var
hannaður og þró-
aður af starfs-
fólki Landsbank-
ans í samvinnu við
Ómar Örn Magnús-
son, aðstoðarskóla-
stjóra Hagaskóla,
sem var aðalhöfund-
ur Raunveruleiks-
ins. Sá leikur hlaut
á sínum tíma verð-
laun Norrænu ráð-
herranefndarinnar
sem besta námsefnið
í neytendamálum.
„Fjármálahreysti
er einfaldur spurn-
ingaleikur og er hægt
að taka þátt hvenær
sem er,“ segir Ómar
Örn. Hann bendir á að
kannanir hér á landi
hafi bent til þess að skortur sé á
fjármálalæsi ungs fólks og reynd-
ar einnig fullorðinna.
„Við höfum notað þær leiðir sem
við höfum til að ná til hópsins sem
við viljum ná til. Ég held að leikir
séu klárlega réttasta leið-
in. Við getum nýtt þá til
að vekja ungt fólk til
umhugsunar,“ tekur
hann fram.
Í Fjármálahreysti
leysa þátttakendur
64 fjölbreytt verk-
efni sem eru á fjór-
um mismunandi
efnissviðum. Þau
snerta fjóra þekk-
ingarflokka og eru
sett fram á jafn-
mörgum þyngdar-
stigum. Efnissviðin
fjögur taka mið af
markmiðum OECD
í fjármálafræðslu,
að því er segir í
upplýsingum frá
Landsbankanum.
Keppninni lýkur
8. maí og fá stiga-
hæstu nemendurn-
ir verðlaun. Einnig
fær sá skóli þar sem
hlutfallslega flestir
nemendur spreyta
sig á leiknum viðurkenningu.
Leikurinn er öllum opinn á vef-
slóðinni fjarmalahreysti.is.
Nýstárleg fjármálafræðsla fyrir ungmenni:
Fjármálahreysti er
nýr spurningaleikur
LEIKUR Spurningaleikurinn
er sérsaklega hannaður
fyrir snjallsíma.
Niðurstöður nýrrar rannsóknar vísindamanna í Svíþjóð sýna að sólböð geti verið heilsusamleg:
Konur sem fara aldrei í sólbað deyja fyrr
Alls taka 240 bekkir með nær
fimm þúsundum nemenda þátt í
verkefninu Tóbakslaus bekkur.
Keppnin er á vegum Embættis
landlæknis og er nú haldin hér á
landi í fimmtánda sinn.
Allir 7. og 8. bekkir á landinu
geta tekið þátt í verkefninu ef eng-
inn nemi í bekknum notar tóbak.
Lokaskil á verkefnum eru föstu-
daginn 25. apríl og er eingöngu
tekið við þeim á tölvutæku formi.
Æskilegt er að myndbrot séu ekki
lengri en 10 mínútur. - ibs
Keppnin Tóbakslaus bekkur:
Fimm þúsund
nemar eru með
Á SÓLARSTRÖND
Líkurnar á
húðkrabbameini
aukast sé dvalið
lengi í sól.
7.990 kr 8.990 kr 9.990 kr
3 verð á rúmfötum
Sendum frítt
úr vefverslun
lindesign.is