Fréttablaðið - 10.04.2014, Blaðsíða 22
10. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTANDINN | 22
Bestu kaup Álfrúnar Örnólfsdóttur leikkonu eru skór
sem hún pantaði af netinu. „Ég var búin að bíta
það í mig að fjárfesta í skóm frá Chie Mihara, sem
kosta alveg annan handlegginn og rúmlega það.
Vandamálið var að mig langaði jafnmikið í svona 30
pör. Ég eyddi miklum tíma í að skoða skó á netinu
af og til í þrjá mánuði og tókst svo með herkjum að
velja eitt par úr og pantaði það. Ég var búin að byggja
upp svo miklar væntingar um hina fullkomnu skó að
ég var dauðstressuð um að skórnir yrðu vonbrigði líf
míns. Daginn sem þeir komu frestaði ég því að taka
þá úr kassanum og máta. En svo skellti ég bara upp
kæruleysisgrímunni og skellti mér í skóna. Þeir voru
æðislegir, þvílíkur léttir!“
Álfrún kveðst ekki hafa verið jafnheppin með kaup
á bílnum sínum. Hún segir hann hafa litið vel út
við kaupin en svo fóru bilanir að gera vart við sig.
„Hann lúkkar mjög vel og lokkaði okkur hjónin
til sín á bílasölunni fyrir nokkrum árum. En það
leið ekki á löngu þar til hans innri bíll kom í
ljós og bilanir fóru að gera vart við sig. Síðasta
sumar gerði hann okkur mikinn grikk þegar
hann stoppaði í miðri brekku á Vestfjörðum og
svo lét hann draga sig alla leið til Reykjavíkur
þar sem við tók margra vikna leit að meininu.
Ég er búin að eyða svo miklum peningum í
þennan blessaða bíl að nú er ekki með nokkru
móti hægt að réttlæta það að losa sig við
hann og því sitjum við uppi hvort með
annað.“
NEYTANDINN Álfrún Örnólfsdóttir
Æðislegir Chie Mihara-skór bestu kaupin
Lífeyrisgáttin er tæki fyrir alla sjóð-
félaga í lífeyrissjóðum til að afla upp-
lýsinga um áunnin lífeyrisréttindi sín í
öllum samtryggingarsjóðum landsins.
Upplýsingar um réttindi koma fram
á yfirlitum en margir eiga réttindi mun
víðar en þar kemur fram. Þau réttindi
geta verið vegna sumarvinnu á náms-
árum eða að viðkomandi hafi skipt oft
um vinnu á starfsferlinum. Þá kemur Líf-
eyrisgáttin að góðu gagni. Hana er að
finna á heimasíðum allra lífeyrissjóða og
hægt að finna á lifeyrisgattin.is. Notuð
eru sömu aðgangsorð og gilda fyrir sjóð-
félagavefi. - fbj
Lífeyrisgáttin sýnir
öll áunnin réttindi
Nokkrar óformlegar fyrirspurn-
ir frá flugfarþegum hafa borist
Samgöngustofu vegna verkfalls-
aðgerða Isavia á Keflavíkurflug-
velli á þriðjudag.
Formlegar kvartanir hafa ekki
borist en þær er hægt að leggja
fram ef farþegi telur sig ekki
hafa fengið lögboðna úrlausn
sinna mála hjá flugfélaginu sem
hann ferðast með. „Flugfarþegar
geta skotið máli sínu til okkar og
við förum yfir það í framhald-
inu og skerum úr um það,“ segir
Þórhildur Elín Elínardóttir, upp-
lýsingafulltrúi Samgöngustofu,
aðspurð.
Samræmdar alþjóðlegar reglur
frá Evrópusambandinu gilda um
réttindi flugfarþega hér á landi.
Reglugerð um skaðabætur og
aðstoð til handa farþegum sem
er neitað um far og þegar flugi er
aflýst eða mikil seinkun verð-
ur var innleidd á Íslandi fyrir
tveimur árum. Flugmálastjórn
Íslands [nú Samgöngustofa] ber
ábyrgð á framkvæmd reglugerð-
arinnar.
Allt fer það eftir aðstæðum
hvort flugfarþegar eiga mögu-
lega rétt á bótum. „Bætur eru
ekki endilega borðleggjandi. Ef
manneskja á pantað flug héðan
og til dæmis til Mílanó með við-
komu í London fer það eftir því
hvort hún hefur pantað allt á
einum miða eða sjálf í gegnum
netið,“ segir Þórhildur Elín. „Ef
þú pantar miða alla leið með við-
komu einhvers staðar hjá sama
flugfélagi ber það ábyrgð á þér
en ef um mismunandi flugfélög
er að ræða ber flugfélagið ekki
ábyrgð á þér.“
Aðrar aðstæður sem geta
komið upp eru að þeir farþegar
sem eiga bókað far á þeim tíma
sem verkfall stendur yfir eiga
ekki rétt á bótum. Þeir farþegar
sem eiga flug seinna um daginn
sem seinkar vegna áhrifa verk-
falls eiga aftur á móti hugsanlega
rétt á bótum frá því flugfélagi
sem þeir áttu bókað flug með.
Þau réttindi sem farþegarnir
eiga hugsanlega eru máltíðir og
hressing í samræmi við lengd
þeirrar tafar sem verður á flug-
ferðum. Þeir farþegar sem neyð-
ast til þess að bíða í eina eða
fleiri nætur eftir flugfari eða ef
þeir neyðast til að bíða lengur en
þeir gerðu ráð fyrir eiga rétt á
hótelgistingu án endurgjalds.
Fari svo að flugfélagið sem
farþeginn flýgur með eða Sam-
göngustofa samþykki bætur
koma nokkrar upphæðir til
greina. Bæturnar miðast við
lengd flugsins og nema frá tæp-
lega 39 þúsund krónum til rúm-
lega 93 þúsund króna fyrir far-
þegann. freyr@frettabladid.is
Bætur eru 40 til
90 þúsund krónur
Óformlegar fyrirspurnir frá flugfarþegum hafa borist Samgöngustofu vegna verk-
fallsaðgerða Isavia á Keflavíkurflugvelli. Bætur fyrir að missa af flugi geta numið
93 þúsund krónum. Allt fer það eftir aðstæðum hvort farþegar geta fengið bætur.
Ef einstaklingur missir af flugi
getur hann hugsanlega fengið
bætur. Upphæðirnar eru þrjár
og eru miðaðar við lengd
flugsins:
A 250 evrur
eða um 39 þúsund krónur
fyrir öll flug sem eru 1.500 km
eða styttri.
B 400 evrur
eða um 62 þúsund krónur
fyrir öll flug innan EES sem
eru lengri en 1.500 km og fyrir
öll önnur flug á milli 1.500 og
3.500 km.
C 600 evrur
eða um 93 þúsund krónur
fyrir öll flug sem falla ekki undir
a- og b-lið.
➜ Bætur miðast við
lengd flugsins
BÍÐA Í RÖÐ Flugfarþegar bíða í röð í stiga á Keflavíkurflugvelli í miðjum verkfallsaðgerðum á þriðjudag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Flugfarþegar geta
skotið máli sínu til okkar
og við förum yfir það í
framhaldinu og skerum úr
um það.
Þórhildur Elín Elínardóttir,
upplýsingafulltrúi Samgöngustofu