Fréttablaðið - 10.04.2014, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 10.04.2014, Blaðsíða 26
10. apríl 2014 FIMMTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Það er erfitt hjá mörgum barnafjölskyldum að láta enda ná saman og eiga fyrir fjöl- breyttum frístundum fyrir krakkana og öðrum útgjöldum. Tónlist, íþróttir og aðrar skipulagðar frístundir eru engu að síður ómetanlegur undirbúningur fyrir framtíð- ina. Það er prinsipp að efnahagur foreldra ráði ekki úrslitum um þátttöku í frístunda- starfi. Samfylkingin kynnti því tillögur um hækkun frístundakorts úr 30.000 í 50.000 á hvert barn á stefnuþingi um helgina. Þetta verður innleitt í áföngum og útfært í sam- ráði við frístundageirann. Hækkun frístundakortsins er hluti af „barnapakka“ Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Borg sem er góð fyrir börn hlúir að framtíðinni. Þannig borg er góð fyrir alla. Barnapakkinn er í fjórum liðum • Í fyrsta lagi. Reykjavík er og verði áfram hagstæðust fyrir fjölskyldur. Þetta þýðir að samanlagðir skattar, fasteignaskatt- ar, gjöld og gjaldskrár verði áfram hag- stæðust í Reykjavík í samanburði við önnur sveitarfélög. • Í öðru lagi. Systkinaafsláttur verði veitt- ur þvert á skólastig. Reykjavík býður ríkulega systkinaafslætti fyrir barna- fjölskyldur. Þessi nýjung þýðir að fjöl- skyldur fái afslátt vegna systkina þó að að annað þeirra sé á leikskóla en hitt í grunnskóla. Þetta teljum við vera sann- gjarna kjarabót sem nýtist barnmörgum fjölskyldum. • Í þriðja lagi. Frístundakort verði hækkuð úr 30.000 kr. í 50.000 kr. á hvert barn á kjörtímabilinu, skv. útfærslu sem unnin verði í samstarfi við íþróttafélög, tónlist- arskóla og æskulýðssamtök. Við höfum áhyggjur af því að sum börn fari á mis við skipulagt tómstundastarf vegna fjár- hagsaðstæðna. Með því að hækka frí- stundakortið vinnum við gegn því. • Í fjórða lagi. Bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla verði brúað með fjölbreyttum aðferðum í áföngum. Þetta er risastórt samfélagslegt verkefni sem mun taka tíma en er ekki að hægt skilja eftir til úrlausnar fyrir foreldra ungra barna. Fæðingarorlof þarf að lengja. Síðan þarf að tryggja öryggi og auðveldara aðgengi að þjónustu eftir að orlofi lýkur í sam- vinnu við dagforeldra, ungbarnaleikskóla en síðast en ekki síst að krakkar komist yngri inn á venjulega leikskóla. Barnapakkinn er eitt af aðalstefnu- málum Samfylkingarinnar fyrir borgar- stjórnarkosningarnar. Öll stefnumál okkar taka mið af fimm ára áætlun um fjárhag Reykjavíkurborgar og ábyrgri stefnu í fjármálum borgarinnar. Barnapakkinn SAMFÉLAG Dagur B. Eggertsson borgarstjóraefni Samfylkingarinnar í Reykjavík Aðalfundur Geðverndarfélags Íslands Aðalfundur Geðverndarfélags Íslands verður haldinn laugardaginn 12. apríl nk. að Hátúni 10, 9. hæð, kl. 10. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Að loknum aðalfundi heldur Tytti Solantaus, barna- og unglingageðlæknir frá Finnlandi, erindi: Working with parents with mental health issues in different settings – experiences and research. Stjórnin Lítt hrifinn stjórnarþingmaður Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, segir á Facebook- síðu sinni að hann hafi aldrei farið í launkofa með litla hrifningu sína á skuldaniðurfellingarleið á verðtryggð- um skuldum. Hann segist hins vegar hafa lýst yfir stuðningi sínum á að fara blandaða leið stjórnarflokkanna, sem verði aldrei fullkomlega réttlát frekar en aðrar aðgerðir stjórnvalda í efna- hagsmálum. Brynjar bætir síðan við að þessi leið sé í samræmi við kosningaloforð stjórnarflokkanna og því lýðræðisleg. Það er ávallt gaman að heyra þegar þingmenn segja hreinskilnislega frá afstöðu sinni til mála þrátt fyrir að hún sé að einhverju leyti í andstöðu við verk stjórnarinnar. Ólýðræði ríkisstjórnarinnar Það vekur hins vegar athygli að Brynjar segir leiðina í samræmi við kosningaloforð stjórnarflokkanna og því lýðræðislega. Það er nefnilega þannig að önnur kosningaloforð þeirra hafa verið illa svikin. Skýr loforð sem gefin voru ítrekað af flestum þeim sem nú mynda ríkis- stjórn. Það er leið þeirra við umsókn Íslands í ESB. Sú leið sem fara á er í fullkomnu ósamræmi við kosningaloforð og því liggur beinast við að spyrja þingmanninn: Er hún ólýðræðisleg? Ekki hugmynd Hún var nokkuð dökk myndin sem Seðlabanki Íslands málaði vegna uppgjöra slitabúa föllnu bankanna og áhrifa þeirra á þjóðarbúið. Seðlabankinn væri engu nær um það núna en fyrir nokkrum árum hvernig ætti að leysa út krónueignir í eigu kröfuhafa bankanna. Þjóðarbúið hafi ekki efni á að leysa þær út og fara þurfi aðrar leiðir en í gegnum viðskiptajöfnuð. Aðspurð um hvaða leiðir það séu sagði Sigríður Benediktsdóttir, hag- fræðingur hjá bankanum, að menn hefðu enga hugmynd. Það er nefnilega það. fanney@frettabladid.is Á kvörðun útgerðarfyrirtækisins Vísis hf. um að loka fiskvinnslu sinni á Húsavík, Djúpavogi og Þingeyri og flytja störfin til Grindavíkur hefur valdið fjaðrafoki. Á Alþingi í síðustu viku voru eigendur fyrir- tækisins útmálaðir með klisjukenndum hætti sem kaldrifjaðir kvótakóngar, meðal annars með tilvísun til þess að Vísir hefði fengið úthlutað byggðakvóta á stöðunum. Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, sakaði Vísi um skort á samfélagsábyrgð. „Líta þessir aðilar í Grindavík á þetta fólk sem hefur byggt upp þessi fyrirtæki sem einhverja þræla í vinnubúð- um sem þeir geta tekið með sér á þann stað sem þeir kjósa hverju sinni? Eða er þetta fólk sem á rétt til að stunda vinnu á þeim stöðum sem það býr á, þar sem það hefur byggt upp heimili sín?“ Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra sagði ákvörðunina mikil vonbrigði og hann og ríkisstjórnina ætla að „skoða öll þessi mál til grunna“. Það er skiljanlega uggur á litlum stöðum yfir missi margra starfa. Látum vera að bæjaryfirvöld og verkalýðsfélög á hverjum stað horfi þröngt á sína byggðarhagsmuni. Það er hins vegar alveg fráleitt ef ráðherra ætlar að fara að skipta sér af ákvörðun einka- fyrirtækis um að hagræða í rekstri sínum. Hér er ekki um það að ræða að burgeisar sem fengu kvótann gefins selji hann, stingi ágóðanum í vasann og skilji fólkið eftir atvinnulaust eins og í ljótu sögunum frá fyrstu árum kvótakerfis- ins. Hér er fyrirtæki í fullum en þungum rekstri, sem greiðir þjóðinni drjúgt gjald fyrir afnot sín af auðlindinni og þarf að taka erfiðar ákvarðanir um hvernig er bezt að bregðast við breyting- um í umhverfinu. Það er heldur ekki boðlegt að saka Vísismenn um skort á sam- félagsábyrgð. Þeir hafa boðið öllu starfsfólkinu störf í Grindavík og aðstoð við flutninga og húsnæðisleit. Þeir hafa líka boðizt til að útvega þeim sem ekki vilja flytja störf við nýja starfsemi á stöðunum þremur. Það er hins vegar rangt að fólk eigi einhvern „rétt“ á að stunda vinnu á staðnum þar sem það býr. Ef sá réttur væri til staðar væri í dag rekin alls konar óhagkvæm og þá væntanlega ríkisstyrkt starfsemi á stöðum sem fóru í eyði fyrir löngu. Hvað rökin um byggðakvótann varðar benda Vísismenn á að á móti samanlagt 623 tonna byggðakvóta sem fyrirtækinu hefur verið úthlutað undanfarin fimm ár, hafi það unnið tæplega 50 þúsund tonn af fiski í byggðarlögunum þremur. Byggðakvótinn skiptir því í rauninni engu máli í þessu samhengi. Í þessu máli er þeim sjónarmiðum enn og aftur haldið á lofti að það sé réttlætanlegt út frá sérhagsmunum einstakra byggðar- laga að reka óhagkvæman sjávarútveg, þar sem veiðiheimildir eru bundnar við sjávarplássin og fyrirtæki skikkuð til að hafa starfsemi á ákveðnum stöðum. Heildarhagsmunir greinarinnar og íslenzks efnahagslífs eru hins vegar þeir að rekinn sé öflugur og hagkvæmur sjávarútvegur, þar sem stjórnvöld virða það að eigendur fyrirtækja eru bezt til þess fallnir að ákveða hvernig starfsemi þeirra sé háttað. Kjarni málsins er það sem Pétur Hafsteinn Pálsson, fram- kvæmdastjóri Vísis, sagði í fréttum okkar á Stöð 2: „Það er engin samfélagsleg ábyrgð fólgin í því að halda áfram einhverju sem ekki gengur. Samfélagslega ábyrgðin felst í því að gera breytingar sem nauðsynlegar eru.“ Bindur byggðakvótinn útgerð við byggðarlag? Ábyrgur taprekstur Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.