Fréttablaðið - 10.04.2014, Blaðsíða 28
10. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 28
Það var eins og gerst hefði
í gær. Við hjón keyptum
Fossatún í Borgarfirði í
lok árs 2001. Þá eins og nú
var litið vonaraugum til
framtíðar ferðaþjónustu
á Íslandi. Í sumarlok 2003
voru hugmyndir okkar
tilbúnar. Við sóttum um í
verkefni sem ríkisstjórnin
stóð fyrir til uppbygging-
ar á ferðaþjónustu. Útlist-
uðum hugmyndir og áætl-
anir á umhverfi, aðstöðu,
nýsköpun, afþreyingu og rekstri.
Svar kom frá Byggðastofnun í
formi þurr kuntulegrar höfnunar.
Við óskuðum eftir útskýringu á
hvað gerði okkur vanhæf að þeirra
mati. Í svari sérfræðingsins stóð:
„ … ástæðan er fyrst og fremst sú
að við greiningu umsóknar þinn-
ar kom berlega í ljós að stór hluti
starfsemi þinnar er í klárri sam-
keppni við aðila á Vesturlandi.“
Í mörg ár höfum við gengið með
það í maganum að byggja upp
tröllagarð í Fossatúni. Árið 2009
fengum við styrk, hálfgerð verð-
laun sem nýsköpunarverkefni.
iðnaðarráðuneytið og Ferðamála-
stofa höfðu markað stefnu um að
ýta úr vör stærri gerð verkefna og
fylgja þeim til loka. Stuðla að upp-
byggingu svokallaðra „segla“, þ.e.
áfangastaða með aðdráttarafl sem
jafnframt styrktu nærumhverf-
ið. Styrkurinn og mótframlagið,
margföld styrkjaupphæðin, leiddi
til þess að hægt var að ýta úr vör.
Forsendur ráðuneytisins: Eftir-
fylgni verkefnisins – gufuðu upp
og eftir stóð hálfköruð hugmynd.
Óvinveitt einkaaðilum
Áunnin reynsla á vettvangi styrkja
leiddi til þess að við ákváðum að
hætta umsóknum. Niðurstaðan:
Ferkantað kerfi, óvinveitt einka-
aðilum í ferðaþjónustu;
tímafrek vinna og útlagður
kostnaður; ólíklegir fengn-
ir styrkir aldrei nema hluti
upphaflegrar áætlunar og
því íþyngjandi.
Undantekningin sannar
regluna, hugsuðum við í
byrjun síðasta árs þegar
auglýsing frá Vaxtar-
samningi Vesturlands um
Öndvegisstyrk birtist. Þar
stóð: „Verkefnið þarf að
grundvallast á vel unn-
inni viðskiptaáætlun, hafa skír-
skotun til svæðisins, og nýsköp-
unar í atvinnulífi þess, ásamt því
að skapa störf. Einstaklingar og
starfandi fyrirtæki eða samstarf
fleiri fyrirtækja geta sótt um
styrki.“
Við slógum til. Lögðum inn
útfærða hugmynd um tröllagöngu.
Helli, gönguleið, styttur af tröll-
um, upplýsingar – upplifun tengda
þjóðsagnaarfinum, frítt fyrir
gesti. Til viðbótar við helmings
fjárframlag létum við það loforð
fylgja að kæmi til styrkveitingar
myndum við taka upp heilsársopn-
un í Fossatúni og styrkja þannig
ferðaþjónustuumhverfið á Vestur-
landi. Heilsárs opnun þýðir: Tap-
rekstur utan háannar í einhver
ár áður en svar fæst við því hvort
fyrirkomulagið standi undir sér.
Níu orða höfnun
Við fengum níu orða höfnun.
Aftur ákváðum við að fara fram
á útskýringu. Svarið kom: „ … að
engir formlegir samstarfsað-
ilar voru í verkefninu og verk-
efnið byggðist á verulegum fram-
kvæmdum vegna fjárfestinga eins
félags og þá gátu samkeppnissjón-
armið haft þar áhrif.“
Þetta kom tröllslega spánskt
fyrir sjónir. Í umsóknarferlinu
hringdum við í forsvarsmann
Vaxtarsamnings Vesturlands til
að fá staðfestan skilning á texta
auglýsingarinnar: „Einstaklingar
og starfandi fyrirtæki eða sam-
starf fleiri fyrirtækja geta sótt
um styrki.“ Forráðamaður sagði
að þetta þýddi nákvæmlega það
sem þarna stóð. Við skrifuðum til
baka og vísuðum til þessara sam-
skipta. Forstöðumaðurinn svaraði
að stjórn Vaxtarsamnings Vestur-
lands hefði eftir að umsóknir bár-
ust ákveðið að breyta auglýstum
forsendum og takmarka við sam-
starf aðila. Útiloka þannig ein-
staklinga og einstök fyrirtæki
sem lagt höfðu inn umsóknir. For-
stöðumaður frábað sér útskýr-
ingar á hvernig samkeppnissjón-
armið voru metin okkur til vansa
og kvaðst ekki mundu eiga frekari
samskipti um þetta mál!
Svona eru sem sagt dæmisög-
urnar úr raunveruleikanum. Er
alltumlykjandi styrkjakerfi á for-
ræði ríkisins rétta leiðin? Eitt er
að safna í sjóði, annað að útdeila.
Á hugmyndin ekki að vera verð-
ugri en umsækjandinn? Er rétt
aðferðafræði að nánast útiloka
einstaklinga í rekstri frá aðgengi?
Reynslan er ólygin og afleiðingin
sú að landeigendur hafa ákveðið
að styrkja sjálfa sig milliliðalaust.
Það eru nefnilega tvær hliðar á
peningnum og það þarf að ræða
þær báðar.
Ferðaþjónusta:
Tvær hliðar á peningnum
Oft er sagt að náttúra Íslands sé
hlaðin orku. Orka er auðlind sem
ekki má fara til spillis.
Sæstrengur?
Mikið er nú rætt um sæstreng sem
tengt geti landið við raforkukerfi
Evrópu. Sum vona að þessi leið til
útflutnings á orku valdi því að hér
verði ekki haldið áfram þeirri stór-
iðjustefnu sem fylgt hefur verið.
Önnur vona að hér sé komin leið
til að auka hlutfall „grænnar“ orku
í álfunni, vinna gegn mengun og
hægja á loftslagsvánni. Þá kunna
einhver að sjá í sæstreng leið til
skjótfengins gróða.
En hvernig mun íslensk þjóð
með sæstreng haga forgangsröð-
un sinni? Hagkvæmast hlýtur að
vera að flytja sem mesta orku um
strenginn og hætt er við að við
búum ekki yfir því siðferðisþreki
sem þarf til að nota slíka mjólk-
urkú af hógværð og stillingu. Um
það vitna þeir lífshættir sem þjóð-
in hefur tamið sér á undanförnum
áratugum. Líklegast er að okkar
mati að sæstrengur viðhaldi þeirri
stórvirkjanastefnu sem hér hefur
verið fylgt undanfarið.
Óbreytt ástand ekki í boði
Jafnframt dafnar draumsýnin
um olíuvinnslu á Drekasvæð-
inu. Draumurinn um sæstreng til
nálægra landa og olíupalla í Norð-
urhöfum vekur efasemdir um yfir-
lýsingar sumra um „græna“ orku.
Er hugsanlegt að tal um hana beri
of oft vitni um hræsni og yfir-
drepsskap?
Lífsgæðakröfur okkar eru mikl-
ar. Við eigum fleiri orkufreka bíla á
hvert mannsbarn en flestar þjóðir.
Kröfur okkar um húsnæði eru einn-
ig meiri í fermetrum talið. Neysla
okkar krefst aukins hagvaxtar og
að mati margra verður hann eink-
um sóttur í orkuauðlindirnar.
Eflaust er það von einhverra
að orkan muni gera okkur kleift
að viðhalda núverandi orkukrefj-
andi lífsstíl. Þá vill gleymast að
óbreytt ástand er ekki í boði. Í
náinni framtíð munu loftslags-
breytingarnar kalla okkur vest-
rænar þjóðir til ábyrgðar sem
aðeins verður öxluð með endur-
skoðuðu lífsmunstri.
Önnur leið
En til er önnur leið til að beisla
orkuna sem býr í náttúru lands-
ins en sæstrengur og olíuvinnsla.
Hún felst í að búa með og hvíla í
náttúru landsins og öðlast þannig
aukin lífsgæði og aukinn kraft.
Þetta er sú reynsla sem flestir
ferðamenn sækjast eftir. Þetta er
líka eina fullkomlega sjálfbæra
orkunýtingin. Hlutverk okkar
er að leitast við að varðveita og
viðhalda hinni náttúrulegu orku
landsins og skila henni til kom-
andi kynslóða. Til þess þurfum
við að endurskoða núverandi lífs-
stíl okkar. Við verðum að sönnu að
virkja áfram til að mæta brýnustu
þörfum samtímans. En það verð-
um við að gera með því að sýna í
verki umhyggju fyrir náttúrunni
og komandi kynslóðum.
Náttúra Íslands býr yfir orku
sem vekur undrun og eftir-
væntingu, virðingu og von. Með
því að beisla hana af ábyrgð og
umhyggju fyrir óbornum kyn-
slóðum, sýnum við henni þá virð-
ingu sem henni ber sem hluta af
hinum góðu gjöfum Guðs. Látum
ekki græðgi afbaka skilning
okkar á náttúrunni og valda því
að við tæmum þá fjársjóði nátt-
úrunnar sem okkur hefur verið
treyst fyrir.
Orkustöðin Ísland
Nú er að byrja sá tími
sem Reykjavíkurborg fer
að senda dagforeldrum í
borginni kaldar sumar-
kveðjur með því að til-
kynna foreldrum barna
sem eru með börnin sín
hjá dagforeldrum að það
sé að losna pláss á leik-
skólum 1. júní.
Síðustu ár hefur Reykja-
víkurborg herjað á dag-
foreldra með allskyns
breyttum reglum og yfir-
gangi, virðist sem stjórnendur
Reykjavíkur vilji bara ekki hafa
dagforeldra í borginni, þar má
nefna þessa 1. júní breytingu.
Áður var það venja að börn
voru hjá dagforeldrum fram að
sumarfríi og hófu svo aðlögun á
leikskóla að fríi loknu, samkomu-
lag sem kom öllu vel. Dagforeldr-
ar voru tekjulausir í júlí og tóku
sitt sumarfrí þá en með þessari
breytingu hjá Reykjavíkurborg
þá er það svo í dag að margir dag-
foreldrar eru nú tekjulausir í tvo
mánuði á ári, þ.e.a.s. júní og júlí,
vegna þess að börnum er troðið
inn í leikskóla án þess að það sé
pláss. Þetta er falið með svoköll-
uðum „útideildum“ fyrir elstu
börnin, að auki eykst álag á for-
eldra þar sem aðlögun hefst nú í
júní, svo tekur sumarfrí við og
stundum aftur hálfgerð aðlögun
með tilheyrandi fríum foreldra og
margföldu álagi á starfsfólk leik-
skólanna eftir sumarfrí.
Auðvitað ætti það að vera réttur
foreldra að velja á milli
þess að hafa barn hjá dag-
foreldri eða í leikskóla og
borga sama gjald en svo
er ekki, það er himinn og
haf milli þess jafnræðis
sem ætti að ríkja í vali fyrir for-
eldra.
Í dag er það svo að Reykjavíkur-
borg niðurgreiðir rúmlega tvöfalt
hærri upphæð með hverju barni í
leikskóla en barni sem er vistað
hjá dagforeldri auk þess sem for-
eldrar þurfa að greiða hærra með
barninu hjá dagforeldrinu.
Hvernig væri að foreldrar
myndu nú láta heyra í sér varð-
andi þessi mál eða er þeim alveg
sama? Leikskólastjórum ber að
virða óskir foreldra um hvenær
vistun hefst í leikskóla og ætti að
vera foreldranna val að klára vist-
un fram að sumarfríi hjá dagfor-
eldri til að minnka rót hjá börn-
unum.
Það verður að minnsta kosti
magurt sumar hjá mörgum dag-
foreldrum enn eitt árið þar sem
dagforeldrar eiga ekki einu sinni
rétt á atvinnuleysisbótum þrátt
fyrir að Reykjavíkurborg taki af
þeim vinnuna. Ætli það sé hægt að
komast að í mötuneyti Ráðhússins?
Árlegur skrípaleikur
leikskóla Reykjavíkur
FERÐAÞJÓN-
USTA
Steinar Berg
ferðaþjónustubóndi
í Fossatúni
➜ Svona eru sem sagt
dæmisögurnar úr raunveru-
leikanum. Er alltumlykjandi
styrkjakerfi á forræði
ríkisins rétta leiðin? Eitt er
að safna í sjóði, annað að
útdeila.
AUÐLINDIR
Arnfríður Guðmundsdóttir
Baldur Kristjánsson
Hjalti Hugason
Sigrún Óskarsdóttir
Sólveig Anna Bóasdóttir
guðfræðingar
➜ En til er önnur leið til að
beisla orkuna sem býr í nátt-
úru landsins en sæstrengur og
olíuvinnsla. Hún felst í að búa
með og hvíla í náttúru lands-
ins og öðlast þannig aukin
lífsgæði og aukinn kraft.
Þetta er sú reynsla sem fl estir
ferðamenn sækjast eftir.
DAGVISTUN
Þóra Björk
Friðriksdóttir
dagforeldri
➜ Hvernig væri að
foreldrar myndu nú
láta heyra í sér varð-
andi þessi mál eða er
þeim alveg sama?
TAKTU FRUMKVÆÐI AÐ EIGIN FRAMA
MEÐ MBA-NÁMI HÁSKÓLA ÍSLANDS
www.mba.is
JÓN ÓLAFUR HALLDÓRSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI OLÍS
MBA 2012
KATRÍN M. GUÐJÓNSDÓTTIR
MARKAÐSSTJÓRI INNNES
MBA 2015
MARGRÉT HAUKSDÓTTIR
FORSTJÓRI ÞJÓÐSKRÁR ÍSLANDS
MBA 2010
PI
PA
R
\T
BW
A
• S
ÍA
• 1
41
11
5
Kynningarfundur um námið fer fram
föstudaginn 11. apríl kl. 12–13
á Háskólatorgi.
Sæktu um á www.mba.is