Fréttablaðið - 10.04.2014, Síða 32

Fréttablaðið - 10.04.2014, Síða 32
10. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 32 Tólf þúsund Íslendingar hafa farið í Hörpu og séð óperuna Ragnheiði eftir Gunnar Þórðarson. Móttökurnar minna á gulldaga Íslensku óper- unnar og vísa til mikils áhuga Íslendinga á list- forminu. Í ljósi vinsælda Ragnheiðar var málþingið um framtíð óperuflutnings á Íslandi á dögunum fylli- lega tímabært. ÍÓ hefur verið gagnrýnd fyrir staðnað verkefnaval en það má rekja til flutnings í Hörpu og niðurskurðar sem þykir aðeins leyfa sýningar markaðsvænna verka og hindra tilraunir. Þeim mun ánægjulegra er að Ragnheiður sló í gegn. Í Þýskalandi, þar sem ópera á sér miklu lengri hefð en hér, eru menn óhræddir við nýbreytni. Bayreuth-hátíðin leitaði t.d. sam- starfs við umdeilda listamenn eins og Lars von Trier og Jona- than Meese. ÍÓ ætti ekki að ein- skorða sig við slíkt en heldur ekki óttast listrænar áskoranir á borð við þær sem við sáum í nýjustu uppfærslunni á Englum alheims- ins. Oft þarf að fara út fyrir þæg- indahringinn til að tengjast nýjum áhorfendum. Grunnstoð allra lista Nýsköpun er grunnstoð allra lista. Treysta má sambandið við vana óperugesti með hefðunum og ögra lítillega í túlkun sígildra verka en laða nýja áhorfendur að með fjöl- breytni og nýsköpun. Óperulistformið krefst þess að við sýnum djörf- ung þótt við virðum um leið fjögur hundruð ára hefð þess. Frjótt íslenskt tónlistarum- hverfi gæti stutt við sköpun aðgengilegra óperuverka eins og Ragnheiðar og samtímis greitt götu ögrandi tónlistarleikhúss með tónsköpun í ætt við þá sem þekkist á Myrkum músíkdögum. Slíkt opnar fyrir alþjóðasamstarf og erlenda styrki eins og í kvik- myndaiðnaði. Með góðu skipulagi og samstarfi við ferðaþjónustuna má einnig stækka áhorfenda- hópinn og fjölga viðburðum sem ferðamenn vilja kynnast. Á málþinginu var nýsköpun talin mikilvæg við framtíðar- stefnumótun óperunnar. En það er um tómt mál að tala nema við- horf stjórnvalda gagnvart list- forminu breytist, stuðningur við ÍÓ aukist og verkefnasjóðir styrki sjálfstæðar óperuuppfærslur. Án fullnægjandi opinbers stuðnings verður Ragnheiður ekki sú lyfti- stöng sem hún ella getur orðið. Heilsubrestur getur vald- ið því að fólki finnist það minna virði en áður eða minna virði en aðrir. Margir kannast við að geta ekki gert það sama og áður, líða öðruvísi, líta öðruvísi út og hugs- anir geta komið upp um að hafa brugðist og vera byrði. Margt af því sem fjallað er um hér á bæði við um þann veika og aðstandendur og flest á það erindi hvort sem um krabbamein eða annan heilsubrest er að ræða. Veikindum fylgja oft verkir sem hægja á hugsun, hreyfingum, við- bragði, trufla einbeitingu, minni og svefn. Þreyta og verkir geta valdið því að fólk hefur minni samskipti og tækifærum til að tjá sig, skemmta sér, upplifa nýja hluti og fá viðurkenningu fækkar. Viðbrögð og viðhorf annarra hafa áhrif á sjálfsmyndina, ekki síður hjá þeim sem bera ekki veikindi utan á sér. Allt þetta getur aukið óöryggi og líkur á einangrun. Vítahringir Með minni virkni, lækkuðu sjálfs- mati, verkjum og fleiru getur depurð orðið hluti af einkenn- amyndinni. Fólk getur fundið fyrir viðkvæmni, pirringi, óstöð- ugleika í tilfinningum og erfið- leikum með að taka ákvarðanir. Náin samskipti geta orðið flókn- ari, breytt hlutverk haft áhrif auk minnkaðrar getu til að njóta kyn- lífs og fleira. Vítahringir vanlíð- unar geta myndast og mikilvægt er að leita lausna sem henta hverj- um og einum. Fagfólk veitir upp- lýsingar, ráð og meðferð og hjá Embætti landlæknis má finna klínískar leiðbein- ingar sem taka mið af bestu þekkingu á hverj- um tíma. Ýmis félaga- samtök styðja auk þess við sjúklinga og aðstand- endur. Ef um krabbamein er að ræða veitir Ráðgjaf- arþjónusta Krabbameins- félags Íslands ráðgjöf, fræðslu og stuðning. Brey t i nga r veg na heilsubrests gerast oftast á mun styttri tíma en það tekur væntingar og við- horf að breytast. Þetta á bæði við um þann veika og aðstandendur. Það er eðlilegt að upplifa áfall og sorg í þessu tilliti og mikilvægt að meðtaka og vinna úr erfiðum til- finningum. Jafningjastuðningur Að sama skapi er mikilvægt að huga vel að þeim þáttum sem gera mann að þeirri manneskju sem maður er og leggja áherslu á það sem maður getur, hefur gagn af, dreymir um og þykir skemmti- legt. Sjálfsmynd sem dregur fram margþætta eiginleika hefur auk- inn sveigjanleika og styrk til að standa af sér mótlæti. Það er hollt fyrir sjálfsmyndina að rækta styrkleika sína og meðtaka veik- leika. Það eykur líkurnar á að fólk geri raunhæfar kröfur til sín og annarra. Það er erfitt að sætta sig við að ná ekki þeim markmiðum sem maður hefur sett sér og ærið verkefni að laga markmið sín að breyttum aðstæðum. Það er einn- ig eðlilegt að þarfir fólks aukist undir álagi. Það er því nauðsyn- legt að ígrunda nýjar leiðir og nálgun til að rækta það sem hverj- um og einum er mikilvægt. Undirrituð sér um jafningja- stuðning Krafts, sem er stuðn- ingsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Það hefur reynst mörgum vel, bæði sjúklingum og aðstandendum, að eiga sam- skipti við jafningja, einstakling sem hefur reynt svipað og maður stendur sjálfur frammi fyrir. Það er oft léttir að finna þann skiln- ing sem einungis næst með sam- eiginlegri reynslu og jafningja- stuðningur getur spornað gegn einangrun og veitt nýja sýn. Jafn- ingjastuðningur á vegum Krafts er veittur af stuðningsfulltrúum sem hafa setið sérstakt stuðn- ingsfulltrúanámskeið og hljóta reglulega endurmenntun og sinna þessu sjálfboðastarfi undir hand- leiðslu sálfræðings. Sálfræðing- urinn tekur á móti öllum beiðnum um stuðning, finnur stuðnings- fulltrúa sem hentar og hefur eft- irfylgni með því að hafa samband að stuðningi loknum. Jafningja- stuðningurinn er að kostnaðar- lausu og farið er með öll samtöl sem trúnaðarmál. Sjálfsmynd og veikindiStjórnvöld, sýnið djörfung! ➜ Með góðu skipu- lagi og samstarfi við ferðaþjónustuna má einnig stækka áhorfendahópinn og fjölga viðburðum sem ferðamenn vilja kynnast. ➜ Veikindum fylgja oft verkir sem hægja á hugsun, hreyfi ngum, viðbragði, trufl a einbeitingu, minni og svefn. Þreyta og verkir geta valdið því að fólk hefur minni sam- skipti og tækifærum til að tjá sig, skemmta sér, upplifa nýja hluti og fá viðurkenn- ingu fækkar. HEILBRIGÐIS- MÁL Anna Sigríður Jökulsdóttir sálfræðingur, félagi í Sálfræðingafélagi Íslands MENNING Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari og formaður Félags íslenskra tónlistar- manna– klassískrar deildar FÍH Lægri vextir á bílalánum Lánshlutfall allt að 75% Engin stimpilgjöld Allt að 7 ára lánstími Landsbankinn býður betri kjör í apríl. Lægri vextir á nýjum bílalánum og afsláttur af lántökugjöldum. Kynntu þér málið á landsbankinn.is/istuttumali.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.