Fréttablaðið - 10.04.2014, Page 36
FÓLK|TÍSKA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Í LEÐRI
„Það er ótrúleg
hitajöfnun í leður-
buxum. Ég hef
meira að segja
verið í þeim á
sólars trönd og það
var ekki eins óbæri-
legt og maður hefði
haldið.“
Jón Geir vakti athygli gagnrýnenda fyrir frækilega frammistöðu á sýningunni Baldri í Borgarleikhús-
inu þar sem hann barði húðirnar með
hljómsveitinni Skálmöld. Hann vakti
einnig athygli blaðamanns fyrir sér-
stæðan klæðaburð enda klæddist hann
aðeins pilsi og svörtum sokkum. „Þetta
pils er vinnuútgáfan af skotapilsi, svo-
kallað „utility kilt“, og er hvunndags-
útgáfan af fínu köflóttu pilsunum,“
segir Jón Geir sem dagsdaglega starfar
sem fagnörd í versluninni Nexus.
Pilsið fann hann og keypti á eBay
í þeim tilgangi að nota á tónleikum.
„Maður er á svo hrikalega mikilli hreyf-
ingu á tónleikum og valið stóð milli
þess að vera í pilsi eða hjólabuxum
sem eru ótignarlegasti klæðnaður í
heiminum,“ segir Jón Geir hlæjandi.
Valið var því ekki erfitt. Hann segir pils
af þessu tagi nokkuð algeng í folkmetal-
geiranum auk annarra þjóðbúninga-
pælinga.
KLIPIÐ UNDIR PILSIÐ
Menn klæðast skotapilsum oft einum
klæða, var það þannig í Borgarleikhús-
inu? „Nei, mér fannst betra að halda
lágmarkssiðsemi, en það hefur alveg
komið fyrir á tónleikum þar sem er
gríðarlega heitt. Til dæmis á Eistna-
flugi. Þá reynir maður að komast hjá
sem flestum fötum,“ svarar hann glett-
inn.
Eini ókostur pilsins er það áreiti
sem það leiðir til. „Ég hef komist að því
af fenginni reynslu að konur eru mun
verri í því að klípa upp undir pils.“
Jón Geir segist spá mun meira í
hagkvæmni en tísku. Þannig spilar
hann yfirleitt á sokkunum á tónleikum
enda finnst honum óþægilegt að spila
í skóm. „Raunar spilaði ég í skóm í
Borgarleikhúsinu því ég var dálítið
að ganga um og gólfið var óþægilegt.
Ég fann gamla flókainniskó sem eru
lunga mjúkir en alveg ægilega ljótir,“
segir Jón Geir og hlær. Hann telur sig
heppinn að vera í þungarokksbrans-
anum þar sem flestir eru svartklæddir.
„Samt brjótum við þá reglu iðulega og
mætum jafnvel í gulum bolum á þunga-
rokkstónleika. En það er í lagi því það
eru engir fordómar í þungarokkinu.“
ULL OG LEÐUR
Jón Geir kýs iðulega að ganga í náttúru-
legum efnum á borð við ull og leður.
Lopapeysur eru honum hugleiknar og
á hann allnokkrar slíkar. „Flestar eru
prjónaðar á mig af fyrrverandi tengda-
móður minni sem er einn mesti prjóna-
snillingur sem ég hef kynnst og virðist
prjóna ósjálfrátt. Uppáhaldspeysan
mín er þó eftir fyrrverandi konu mína.
Hún er grá með karlrún prjónaða fram-
an á hettuna og er ofboðslega flott.“
Að mati Jóns Geirs eru lopapeysur
þægilegasti klæðnaður við flestar að-
stæður. „Ég geri sérstaklega í því að
klæðast þeim þegar við erum að túra
úti, bæði af því að það er þægilegt og
svo er hún sér íslensk,“ segir Jón Geir
sem hefur fengið tilboð í peysurnar
sínar en hefur ekki viljað þiggja þau.
Jón Geir er ósjaldan í leðurbuxum.
„Það er ótrúleg hitajöfnun í leðurbux-
um. Ég hef meira að segja verið í þeim
á sólarströnd og það var ekki eins
óbærilegt og maður hefði haldið.“
■ solveig@365.is
ENGIR FORDÓMAR
Í ÞUNGAROKKINU
ÞUNGAROKKARI Jóni Geir Jóhannssyni, trommuleikara Skálmaldar, finnst
lopapeysur þægilegasti klæðnaður í heimi. Á tónleikum klæðist hann hins
vegar aðeins skosku vinnupilsi og sokkum.
PILS OG LOPAPEYSA
Jón Geir í uppáhalds-
lopapeysu sinni með
karlrún prjónaða í hett-
una. Pilsið er skoskt
vinnupils sem hann
keypti á eBay.
MYND/GVA
Skipholti 29b • S. 551 0770
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
my style
Nýjar vörur í hverri viku
Stærðir 38-52
Bæjarlind 6 • S. 554 7030
www.rita.is
Við erum á Facebook
Flottir sumarbolir
Fleiri gerðir-Fleiri litir-Margar stærðir