Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.04.2014, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 10.04.2014, Qupperneq 52
10. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40 Myndlistarmaðurinn Guðjón Ketils son opnar sýningu í Hverfis- galleríi í dag klukkan 17. „Sýningin heitir Ný verk og er nákvæmlega það. Ný verk,“ segir Guðjón, en sýningin stendur yfir til 17. maí. „Þetta er í raun og veru mjög lógískt framhald af fyrri sýning- um. Hlutir hafa tilhneigingu til að skarast svolítið og það er oft eitthvað í einu verki sem kveik- ir hugmynd að öðru,“ segir Guð- jón. Síðasta sýning hans á Íslandi, Samræmi, var samsýning með Hildi Bjarnadóttur í Hafnarborg í október 2011. Guðjón er ef til vill hvað þekkt- astur fyrir að draga fram feg- urðina í hversdagslegum hlutum, á borð við spýtukubbum eða göml- um húsgögnum. „Á sýningunni Ný verk eru skúlptúrar og blýantsteikningar. Skúlptúrarnir eru unnir út frá fundnum húsgögnum og mynda innsetningu í Hverfisgalleríi. Teikningarnar eru svo annað verk. Þetta eru eiginlega húsgögn með gluggum og teikningar af húsform- um sem eru gluggalaus. Þannig að það er ákveðið samtal þarna á milli,“ segir Guðjón að lokum og hlær. - ósk Fegurðin úr hversdagsleikanum Guðjón Ketilsson opnar einkasýningu í Hverfi sgalleríi klukkan 17 í dag. „Mér líst stórvel á þetta. Það er gaman að vera með svona flott- um hljóðfæraleikurum sem spila á upprunaleg hljóðfæri og alltaf er unun að hlýða á,“ segir Benedikt Kristjánsson tenór, sem syngur hlutverk guðspjallamannsins í Jóhannesarpassíunni í Grafar- vogskirkju á laugardaginn klukk- an 17. Þar á hann við félaga úr Bach-sveitinni í Skálholti sem sér- hæfa sig í að leika á hljóðfæri bar- okktímans. Benedikt hefur verið búsettur í Berlín í sex ár og hefur unnið til verðlauna í alþjóðlegum Bach- keppnum í Þýskalandi. Hann tafðist á leiðinni hingað til lands vegna verkfalls á Keflavíkurflug- velli og lenti klukkan kortér yfir tvö í fyrrinótt. Var samt mættur í Grafar vogskirkju á æfingu eld- snemma í gærmorgun. Auk Benedikts syngja einsöng í Jóhannesarpassíunni þau Ágúst Ólafsson bassi, sem syngur hlut- verk Jesú, Jóhanna Ósk Valsdótt- ir alt og Þóra Björnsdóttir sópran. Þær eru félagar í Kammer- kór Grafarvogskirkju sem tólf atvinnusöngvarar skipa og verð- ur í stóru hlutverki. Safnaðar- kór Grafarvogskirkju og nokkr- ir félagar úr öðrum kórum verða með í sálmahluta verksins og tón- leikagestum gefst kostur á að taka þátt. Hákon Leifsson, tónlistar- stjóri kirkjunnar, stjórnar svo öllu saman. Til að heiðra 400 ára minningu sálmaskáldsins Hallgríms Pét- urssonar verður sköpuð lágvær passíu stemning í upphafi tón- leikanna með því að syngja nokkra af sálmum Hallgríms einradda. Benedikt kveðst koma hingað heim af og til að sinna misstórum verkefnum og hitta fjölskylduna. Í þetta sinn hefur hann hratt á hæli því hann er í krefjandi verk- efnum í Berlín í næstu viku. „Ég er einmitt líka að syngja hlutverk Jóhannesar guðspjallamanns með ballettdönsurum í dómkirkjunni í Berlín og þarf að vera kominn þangað á mánudag,“ lýsir hann. „Svo er ég að syngja Mattheusar- passíuna í Berlínar-Fílharmóní- unni á föstudaginn langa.“ gun@frettabladid.is Alltaf unun að hlýða á upprunaleg hljóðfæri Jóhannesarpassía Bachs verður fl utt í Grafarvogskirkju 12. apríl klukkan 17 af Kammerkór Grafarvogskirkju, félögum úr Bach-sveitinni í Skálholti og ein- söngvurum. Benedikt Kristjánsson tenór er langt að kominn til að taka þátt. SÖNGVARINN „Það er gaman að vera með svona flottum hljóðfæraleikurum,“ segir Benedikt sem er líka að syngja hlutverk guðspjallamannsins í Berlín um þessar mundir, en þar með ballettdönsurum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA NÝ VERK Sýningin hefur einfaldan titil. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ég er einmitt líka að syngja hlutverk Jóhann- esar guðspjallamanns með ballettdönsurum í dómkirkjunni í Berlín og þarf að vera kominn þangað á mánudag. Valur Freyr Einarsson sló í gegn í sýningunni Tengdó, Grímusýningu ársins 2012. Nú teflir hann fram nýju verki, Dagbók jazzsöngvar- ans, sem frumsýnt verður í Borg- arleikhúsinu annað kvöld á vegum CommonNonsense. „Þetta eru eig- inlega systkinasýningar, Tengdó og þessi, því vinnsluaðferðin er svipuð. Ég tók viðtöl og vann út frá þeim,“ byrjar Valur Freyr lýsingu sína á nýja verkinu. Hann kveðst hafa byrjað fyrir tveimur árum á að taka viðtal við mann sem var langt genginn með krabbamein. „Ég var ekki viss hvort hann mundi lifa sumarið af og dreif mig í að spjalla við hann. Svo er hann enn sprækur tveim- ur árum seinna, Guði sé lof. Hann trúði mér fyrir alls konar hlutum, fór í smá uppgjör við fortíðina, meðal annars samskipti sín við föður sinn og árin í djassinum. Það varð upphafið að þessu ferli hjá mér. Ég fór að skoða tengsl feðra við börnin sín eða tengslaleysi og hvernig það lekur ómeðvitað milli kynslóða. Það er undirliggjandi þema í þessu verki.“ Valur Freyr segir þennan umrædda mann hafa komið á rennsli um daginn og kannast við ýmislegt í sögunni. „Hann var þakklátur og fannst gott að þetta efni væri dregið fram í dagsljósið. Eitthvað sem hann hefur setið með í fanginu í mörg ár.“ Auk Vals Freys leikur 12 ára sonur hans, Grettir Valsson, í Dagbók jazzsöngvarans, auk hinnar þekktu Kristbjargar Kjeld. Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfs- son, um leikmynd og búninga sér Ilmur Stefánsdóttir og tónlist og hljóðmynd er Davíðs Þórs Jóns- sonar. gun@frettabladid.is Fór að skoða tengsl feðra við börnin sín Leikverkið Dagbók jazzsöngvarans verður frumsýnt á Nýja sviði Borarleikhússins annað kvöld. Valur Freyr Einarsson er höfundur og leikur aðalhlutverkið. FEÐGAR „Þessir feðgar virðast í góðu sambandi. Valur Freyr sem faðir og sonur hans Grettir í hlutverki sonar. MYND/ILMUR „Ég lærði óperusöng á Ítalíu og ítalski stíllinn hentar mér afskap- lega vel, þó ég syngi raunverulega allt,“ segir Kristín R. Sigurðar- dóttir sópransöngkona. Hún held- ur tónleika í kvöld klukkan 20 í Háteigskirkju ásamt Julian Hew- lett píanóleikara. Efnisskráin er blönduð en með ítölsku ívafi og samanstendur af tónverkum eftir eldri sem yngri tónskáld, allt frá barokki, klassík og rómantík til dagsins í dag. Sönghópurinn Boudoir og Ian Wilkinson básúnuleikari verða sérstakir gestir á tónleikunum, að sögn Kristínar sem hefur líka samið ljóð á ítölsku sem Juli- an samdi lög við í rómantískum Bocelli-anda. „Það hefur lengi blundað í okkur að halda þessa tónleika,“ segir Kristín og hlakk- ar til. Miðar verða seldir við inngang- inn. - gun Með ítölsku ívafi Kristín R. Sigurðardóttir sópran og Julian Hewlett píanóleikari fl ytja blandaða tónlist með ítölsku ívafi í Háteigskirkju í kvöld klukkan 20. Á ÆFINGU Kristín Sigurðar og Julian Hewlett flytja meðal annars eigið efni á tón- leikunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MENNING
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.