Fréttablaðið - 10.04.2014, Síða 58
10. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 46
Divergent
Ævintýrahasar
AÐALHLUTVERK: Shailene Woodley,
Theo James, Kate Winslet, Miles
Teller, Jay Courtney, Zoë Kravitz,
Ashley Judd og Tony Goldwyn.
Bönnuð innan 12 ára
7,6/10 48/100
Leikarinn Steven Seagal er 62 ára
í dag
Helstu kvikmyndir: Under Siege, Hard to Kill,
Above the Law, Into the Sun
AFMÆLISBARN DAGSINS FRUMSÝNING
40/100
„Ég gegni hlutverki sögumanns-
ins. Það var reyndar stærra í
útvarpsþáttunum þar sem þurfti
að teikna myndina hljóðrænt. Nú
sýnum við hvað er að gerast sjón-
rænt. Ég lék líka Díönu Klein en í
þetta sinn þurfti ég að lúta í gras
fyrir kvenlegri fegurð þar sem
ég hljómaði mjög kynþokkafullur
en svo þegar fólk sá mig á tjald-
inu var það ekki falleg sjón,“ segir
leikarinn Örn Árnason en leikkon-
an Svandís Dóra Einarsdóttir sér
um Díönu Klein í kvikmyndinni
Harrý og Heimir sem frumsýnd
er á föstudag.
„Ég sleppti hlutverkinu glaður
en Svandís er gríðarlega þokka-
full pía.“
Myndin fjallar um einkaspæj-
arana Harrý og Heimi sem hjálpa
þokkadísinni Díönu Klein í leit
hennar að föður sínum, veður-
athugunarmanni á Reginnípu.
Harrý og Heimir leggja í leið-
angur upp á hálendið og tekst
að stöðva svívirðilegt samsæri
danskra skíðaáhugamanna um að
stela íslenska hálendinu og flytja
það úr landi. Örn leikur einmitt
líka illmennið í myndinni.
„Ég leik illmennið sem ætlar að
ræna íslenska hálendinu og færa
það til Danmerkur,“ segir Örn
glaður í bragði en myndin var
tekin upp á mjög stuttum tíma.
„Við höfðum skamman tíma
enda ekki með hundruð milljóna
króna úr að spila. Við nýttum
tímann vel og þá aura sem höfðu
safnast í þetta verkefni og tókum
myndina á átján dögum. Við erum
vanir því að vinna mjög hratt og
skipuleggja dagana vel þannig að
við komum því mun betur undir-
búnir að verkefninu. Leikstjórinn
Bragi Hinriksson hefur líka góð
tök á ævintýramyndum og vorum
við ofboðslega glaðir með hans
þátt í þessu.“
Það eru þeir Karl Ágúst Úlfs-
son og Sigurður Sigurjónsson sem
leika einkaspæjarana tvo og segir
Örn að stemningin hafi verið mjög
góð á settinu.
„Það ríkti mikil gleði á settinu
og ég held að hún skíni í gegn í
myndinni. Að mínu mati er þetta
gríðarskemmtileg grínmynd.
Þetta er ekki gamanmynd og ekki
farsi. Ég get ekki útskýrt það öðru-
vísi en að við brjótum aðeins upp
rammann og gerum græskulaust
grín. Við erum náttúrulega lit-
aðir af myndum sem við sáum í
æsku eins og Blazing Saddles, Air-
plane-myndirnar og Top Secret,“
bætir Örn við. En er ekki byrjað
að leggja línurnar að næstu mynd?
„Ekki alvarlega. Þetta tekur allt
sinn tíma.“
liljakatrin@frettabladid.is
Þurft i að lúta í gras fyrir
kvenlegri fegurð Svandísar
Íslenska kvikmyndin Harrý og Heimir verður frumsýnd á föstudaginn. Spaugarinn Örn Árnason leikur sögu-
mann og illmenni en þurft i að sleppa hlutverki þokkapíunnar Díönu Klein á hvíta tjaldinu.
Harrý og Heimir komu fyrst fram á sjónarsviðið í útvarpsleikritum á Bylgj-
unni seint á níunda áratug síðustu aldar. Ellefu útvarpsþættir voru fram-
leiddir sem voru 25 mínútur að lengd hver og ein saga í hverjum þætti.
Bíómyndin er byggð á einni af þeim sögum. Árið 2009 var síðan leikritið
um Harrý og Heimi sett upp í Borgarleikhúsinu og sýnt 150 sinnum.
BYRJAÐI ALLT Í ÚTVARPINU
VONDUR Í GEGN Örn leikur illmenni
sem vill stela hálendinu.
INNILEGIR Harrý og heimir eru óborganlegir.
ÞOKKADÍS Svandís Dóra leikur díönu
Klein.
Sony hefur gert samning við leik-
stjórann Breck Eisner um að leikstýra
framhaldi af The Karate Kid sem
sýnd var í kvikmyndahúsum árið
2010 með Jaden Smith og Jackie
Chan í aðalhlutverkum. Myndin var
endurgerð samnefndrar myndar frá
árinu 1984 og halaði inn 343 millj-
ónir dollara á heimsvísu, 38 milljarða
króna. Breck hefur leikstýrt myndum
á borð við Sahara og The Crazies.
LEIKSTÝRIR KARATE KID
Golden Globe-kynnarnir Tina Fey
og Amy Poehler leika systur í nýrri
grínmynd frá Universal sem heitir
The Nest. Tina og Amy hafa leikið
mikið saman, í kvikmyndinni Mean
Girls árið 2004, í Baby Mama árið
2008 og í þáttunum Saturday Night
Live á árunum 2001 til 2006. Tine
framleiðir The Nest í nafni fyrirtækis
síns Little Stranger ásamt Jay Roach.
Amy verður meðframleiðandi.
LEIKA SAMAN Í GRÍNMYND
Indversk kvikmyndahátíð hófst í
Bíó Paradís á þriðjudag og stend-
ur til 13. apríl. Þetta er í annað
sinn sem hátíðin er haldin en hún
var haldin í fyrsta sinn árið 2012.
Á hátíðinni í ár eru kynntar
til leiks sex nýlegar kvikmynd-
ir og ein klassísk kvikmynd í
nýútkominni þrívíddarútgáfu,
karrívestrinn Sholay sem er af
mörgum talinn meðal bestu ind-
versku kvikmyndanna á tuttug-
ustu öldinni.
Meðal kvikmynda sem sýndar
eru á hátíðinni er English Ving-
lish eða Enskunámið eins og hún
heitir á íslensku. Hún fjallar um
unga húsmóður sem er mjög fær
í að gera indverska eftirréttinni
„laddoo“. Henni finnst hún ekki
vera metin að verðleikum heima
hjá sér vegna þess að hana skort-
ir enskukunnáttu. Þegar hún
er beðin að koma til New York
til þess að undirbúa brúðkaup
frænku sinnar fær hún óvænt
tækifæri til þess að bæta sig í
enskunni og styrkja sjálfsálitið í
leiðinni. Hún fer að endurskoða
líf sitt í framhaldi af því og sam-
bandið við fjölskylduna. Myndin
er byggð á ævi móður leikstjór-
ans, Sanjay Leela Bhansali, og
lýsir vel erfiðleikum og skondn-
um uppákomum sem nýbúi í
ókunnri stórborg má búast við.
Nýtt og gamalt
í Bíó Paradís
… að stórleikarinn Christopher
Walken hóf feril sinn í skemmtibrans-
anum sem ljónatemjari í sirkus. Síðar
skráði hann sig í Hofstra-
háskólann í New York
en hætti eftir eitt ár
eftir að hann fékk
hlutverk í Off-Broad-
way-söngleiknum Best
Foot Forward með Lizu
Minnelli. Christopher
lærði síðan dans
hjá Washington
Dance Studio en
áður en varði
átti leiklistin
hug og hjarta
hans.
VISSIR ÞÚ…
Meðallestur á Fréttablaðinu hvern dag er meiri en
uppsafnaður lestur á Morgunblaðinu í heila viku*
Það þýðir að birting auglýsingar í Fréttablaðinu einhvern einn dag vikunnar,
nær til fleiri lesenda en auglýsing í öllum Morgunblöðum vikunnar.
Allt sem þú þarft ...
* Skv. fjölmiðlakönnun Capacent Gallup, júl–sept 2013.