Fréttablaðið - 10.04.2014, Side 66
10. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 54
Súkkulaði-karamellusósa
75 g smjör
75 g ljós púðursykur
1 tsk. saltflögur (Maldonsalt), fínmuldar
150 g rjómi
150 g Pipp með karamellufyllingu
Bræðið smjörið í þykkbotna potti. Setjið
púðursykur saman við og hrærið í þar til
hann er bráðinn. Blandið salti og rjóma
saman við. Hrærið að lokum súkkulaðið
í litlum bitum saman við. Berið sósuna
fram heita eða kalda.
Gerðu vel við þig og þína um páskana með ljúffengri
Pipp ostaköku. Hún er gómsæt með ljúfum
piparmyntutónum sem koma þér í hæstu hæðir.
Til að gera hana enn girnilegri þá er gott að bera
hana fram með sætri súkkulaði-karamellusósu.
Hljómsveitin Imagine Dragons og
söngkonan Lorde eru með flestar
tilnefningar til Billboard-tónlistar-
verðlaunanna, alls tólf hvor.
Imagine Dragons og Lorde
keppa sín í milli í níu flokkum, þar
á meðal fyrir besta rokklistamann
og besta rokklag.
Justin Timberlake, Katy Perry
og Macklemore & Ryan Lewis eru
með ellefu, tíu og átta tilnefningar.
Justin gæti unnið sín fyrstu Bill-
board-verðlaun sem sólólistamað-
ur í ár en hann vann til fimm verð-
launa með strákasveitinni ´N Sync.
- lkg
Tilnefningarn-
ar tilkynntar
SÓLÓ FER HONUM VEL Justin gæti
hreppt hnossið á hátíðinni í ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Rihanna og Eminem syngja
dúett saman á MTV Movie-verð-
launahátíðinni á sunnudags-
kvöldið. Ætla þau að syngja lagið
Monster sem var á plötu Eminem,
The Marshall Mathers LP 2, sem
kom út í fyrra. Markar þetta viss
tímamót því þau hafa ekki komið
fram á hátíðinni í fimm ár.
Rihanna og Eminem ákváðu að
vinna saman við Monster eftir að
ástardúettinn þeirra, Love The
Way You Lie, vakti gríðarlega
lukku.
Þá ætlar tvíeykið einnig að fara
á tónleikaferðalag saman í ágúst
og spila til að mynda í New York
og Los Angeles. - lkg
Syngja dúett-
inn í beinni
SPENNT Rihanna syngur með Eminem
á sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Það hefur verið orðrómur á
kreiki um stund að Dylan Penn,
dóttir leikaranna Seans Penn og
Robin Wright, hafi gert samn-
ing um að sitja fyrir nakin hjá
Playboy-tímaritinu. Hin töfrandi
Penn hefur hins vegar afþakkað
tilboðið og valið að sitja fyrir hjá
tímaritinu Treats. Ljósmyndar-
anum Tony Duran hældi hún
fyrir listræna hæfileika. „Ég
hafði kynnt mér myndirnar hans
löngu áður en ég var beðin um að
sitja fyrir og ég hef alltaf elskað
svarthvítu nektarmyndirnar hans
sem eru mjög fágaðar,“ sagði hin
unga Penn í samtali við Treats.
Dylan Penn hefur augljóslega
fengið útlitið í vöggugjöf en hún
hefur áður setið fyrir hjá tímarit-
unum GQ, W Magazine og Elle.
Dylan Penn
situr fyrir nakin
ÓFEIMIN Dylan Penn situr fyrir í Playboy.
Khloé Kardashian virðist búin að
gleyma Lamar Odom en hún er
sögð vera komin með nýjan mann
upp á arminn. Samkvæmt tíma-
ritinu Life & Style hafa raunveru-
leikastjarnan og rapparinn French
Montana verið að draga sig saman.
Sjónarvottar sáu turtil dúfurnar í
faðmlögum og kossaflensi þegar
Montana var í upptökum á nýju
tónlistarmyndbandi í lok mars.
Þá sáust þau einnig ganga hönd í
hönd út úr nektarklúbbnum Pink
Rhino í Phoenix í Arizona. Að sögn
sjónarvotta létu þau vel hvort að
öðru inni á klúbbnum og hann hélt
meðal annars utan um hana. Mont-
ana er þó enn giftur en eiginkona
hans, Deen Kharbouch, er sögð
hafa beðið Kardashian að halda sig
fjarri manni hennar.
„Við höfum unnið í sameiningu
að frama hans,“ sagði Kharbouch í
samtali við Life & Style.
Sambandi Kardashian og körfu-
boltakappans Lamars Odom lauk á
seinni hluta síðasta árs. Stuttu áður
hafði Lamar horfið og sögusagnir
voru um að hann ætti við fíkni-
vanda að etja og voru slúðurmiðlar
vestanhafs duglegir að fjalla um
það. Til að bæta gráu ofan á svart
var körfuboltakappinn tekinn fyrir
að keyra undir áhrifum í Kali-
forníu, en stuttu síðar slitnaði end-
anlega upp úr sambandinu.
Khloé Kardashian með nýjan kærasta
FUNDU ÁSTINA Khloé Kardashian og rapparinn French Montana eru að stinga
saman nefjum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES