Fréttablaðið - 10.04.2014, Qupperneq 68
10. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 56
Athygli vekur að rithöfundurinn
Guðrún Eva Mínervudóttir semur
texta við tónverk Skúla Sverrisson-
ar í flutningi Ólafar Arnalds, sem
frumflutt verður á Tectonics-tón-
listarhátíð Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í kvöld, en hátíðin stend-
ur fram á helgi. Fjórtán ný verk
verða flutt á hátíðinni, þar af ellefu
íslensk. Guðrún Eva þreytti frum-
raun sína í textagerð við lag Trausta
Bjarnasonar, Til þín, sem keppti
í undankeppni Eurovision fyrr á
þessu ári. „Já, ég er allt í einu orðin
rosalega eftirsótt á þessu sviði,“
segir Guðrún Eva og hlær og segir
ekki á döfinni að færa sig meira í átt
til textasmíða í tónlist. „Ég er nátt-
úrulega dálítið gift skáldskapnum
og líður eiginlega eins og ég sé að
halda fram hjá í svona verkefnum,“
bætir hún við.
Guðrún Eva segir verkefnin tvö
gríðarlega ólík. „Þetta verkefni með
Ólöfu er nær því sem ég hef áður
gert. Þó ég skrifi lítið af ljóðum, þá
kom þetta þannig til að Ólöf hafði
samband við mig og við þekkjumst,
og hún er svo inspírerandi mann-
eskja að þetta var auðvelt því að
ljóðið er svo innblásið af henni. Hún
er svo mikill listamaður,“ útskýrir
Guðrún Eva og segist enn á fullu í
skáldskapnum. „Ég er rosa langt
komin með næstu bók og það lítur
allt út fyrir að bókin komi út á árinu.
Hún fjallar um unglingsstúlku sem
gerir allt vitlaust í heimabæ sínum,
Stykkishólmi.“ - ósk
Líður eins og í framhjáhaldi
Guðrún Eva Mínervudóttir semur texta við tónverk Skúla Sverrissonar sem frum-
fl utt verður af Ólöfu Arnalds á Tectonics-hátíð Sinfóníu Íslands í Hörpu í kvöld.
GIFT SKÁLDSKAPNUM Guðrún segir ekki á döfinni að færa sig meira í átt til texta-
smíða í tónlist. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
UMBÚÐIR
NÁTTÚRULEGA
BETRI
Það er lítið mál að endurvinna nýju Smjörva umbúðirnar.
Þú tekur bara pappann af plastöskjunni og setur í pappírstunnuna.
Gámar fyrir plastumbúðir eru á næstu grenndarstöð eða
endurvinnslustöð.
NÚ Í400gUMBÚÐUM
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
61
3
27
„Við hjá Möller Records munum
nota styrkinn til að taka túr um
landið og kynna hugljúfa raf- og
sveimtónlist fyrir landi og þjóð,“
segir Árni Grétar, betur þekktur
sem raftónlistarmaðurinn Future-
grapher, en útgáfufyrirtækið Möller
Records hlaut styrk úr tónlistarsjóði
Kraums upp á hálfa milljón króna í
verkefnið „Möller um landið“.
Nokkrir tónlistarmenn taka þátt
í verkefninu, en ásamt Futuregra-
pher eru það Steve Sampling, Bistro
Boy og plötusnúðurinn Árni Vec-
tor. „Fleiri raftónlistarmenn munu
svo koma til með að taka þátt. Við
munum fara hringinn – alvöru
hringinn, því við förum að sjálf-
sögðu á Vestfirði,“ segir Árni Grét-
ar, léttur í bragði.
Aðspurður segir Árni það mikil-
vægt fyrir komandi kynslóðir úti á
landi að kynnast raftónum og flæði.
„Þetta er sannkallaður heiladans og
fær líkama okkar og huga af stað.
Ég ólst upp á Tálknafirði og þar
voru ekki margir sem hlustuðu til
dæmis á sveimtónlist, eða ambient,
og það var kannski bara af því að
það var ekkert í boði. Maður þurfti
að leita að alvöru sveimi í bænum og
koma með heim vestur á firði. Svo
held ég að það sé bara gaman fyrir
fólk að kynnast þessu og upplifa. Og
dansa.“
Árna hefur lengi langað út á land
með raftónleikatúr, en aldrei látið
verða af því. „Við í Möller höfum
talað um það að gera svona Með-
allt-á-hreinu í raftónlist. Þetta verð-
ur eitthvað þannig ævintýri,“ bætir
hann við og segir raftónlist í uppá-
haldi hjá sér og sínu fólki. „Það er
ekkert betra en brotnir taktar, djúp-
ur bassi og vel sykruð melódía með
dassi af depurð og smá vonarneista.
Það má segja að raftónlist sé ég og
ég sé raftónlist. Þetta er mitt líf. Ég
lærði á gítar og saxófón, en þegar
ég áttaði mig á því að ég gæti spil-
að á öll hljóðfærin með hjálp tölv-
unnar, þá vissi ég að raftónlistin var
málið. Það var árið 1996. Ég tók þá
eitt stig á píanó, til að læra grunn-
inn, og keypti mér hljóðgervil fyrir
fermingarpeninginn og tónlistar-
forrit í heimilistölvuna. Mamma og
pabbi trúðu á mig og það hjálpaði til.
Þetta var gaman og spennandi og er
það enn, 17 árum síðar.“
Raft ónlistar-
ævintýri
Möller um landið er eitt verkefnanna sem hlutu
styrk frá tónlistarsjóði Kraums í gær.
Kraumur tónlistarsjóður úthlutaði í gær 7,3 milljónum til íslenskra lista-
manna, en hæsta styrk Kraums í ár hlaut hljómsveitin Mono Town.
Þessir hlutu styrki:
ÞESSI HLUTU STYRKI FRÁ KRAUMI
RAFTÓNLIST ER MÁLIÐ Árni Grétar, betur þekktur sem Futuregrapher, heldur utan
um verkefnið. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Mono Town
Kynning og markaðssetning
1.000.000 kr.
Ólafur Björn Ólafsson
Kynning og útgáfutónleikar
350.000 kr.
Gyða Valtýsdóttir
Kynning á nýrri plötu
300.000 kr.
Sólstafir og Kontinuum
Tónleikaferð um Evrópu
1.000.000 kr.
Nordic Affect
Tónleikahátíðir og kynning
800.000 kr.
Agent Fresco
Evróputúr 2014
700.000 kr.
Ragnheiður Gröndal
Tónleikaferðir um Evrópu
500.000 kr.
Rökkurró
Útrás vegna þriðju plötu
350.000 kr.
Grísalappalísa og
DJ Flugvél og Geimskip
Íslandstúrinn 2014
500.000 kr.
Cell 7 ásamt hljómsveit
Tónleikaferð um landið
500.000 kr.
Aldrei fór ég suður 2014
Tónlistarhátíð fyrir vestan
500.000 kr.
Möller um landið
Kynning á íslenskri raftónlist
500.000 kr.
Eistnaflug 2014
Fjölmiðlakynning og námskeið
300.000 kr.