Fréttablaðið - 10.04.2014, Síða 70

Fréttablaðið - 10.04.2014, Síða 70
10. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 58 BAKÞANKAR Bergs Ebba Benediktssonar The War on Drugs kemur til með að loka hátíðinni ásamt Flaming Lips á sunnudeginum. Kamilla Ingibergsdóttir Hafið þið heyrt um Y-kynslóðina, alda-mótakrakkana sem slitu barnsskón- um í kringum 2000? Ég tilheyri henni víst sjálfur því samkvæmt ýtrustu skilgrein- ingum er nóg að vera fæddur eftir 1980. Það gefur mér líka rýmra skotleyfi og ég verð síður vændur um heimsósóma. Meðal einkenna Y-krakka er lítið athyglisþol og gríðarlegar kröfur um að leiðast aldrei. Markaðsmenn segja að til þess að yng- lingar svo mikið sem líti við vöru megi ekki vera neitt leiðinlegt við hana, bara ein sekúnda af leiðindum er nóg til að styggja vandlátu ufsilón-krakkana. ÞETTA vita líka stjórnmálamenn. Það rembast allir við að koma stjórnmála- skoðunum sínum að í stuttum hnitmiðuðum myndböndum sem mega helst ekki vera meira en nokkrar mínútur að lengd. Helst mega stjórnmálamenn alls ekki vera leiðinlegir því þá fá þeir ekki atkvæði frá vandlátu krökkunum. NÁM á líka að vera skemmti- legt og sérmiðað eftir þörf- um krakkanna. Jón Gnarr borgarstjóri líkti þessu við Subway. Helst eiga aldamótakrakkarnir að geta valið sér álegg ofan í menntabrauðið og kenn- arar að salta og pipra eftir þörfum. Þetta á ekki bara við um grunnskólanám heldur líka háskólanám. Allt á að vera skemmti- legt. Það er í tísku að lýsa því yfir að hlutir séu leiðinlegir. Það er leiðinlegt að hanga á fundum, leiðinlegt að tala um peninga, leiðinlegt að tala um pólitík, leiðinlegt að rífast. Geta ekki allir verið vinir? Og ef það er þörf á að rífast er þá ekki hægt að gera það í gegnum tölvuleiki? Það er allavega skemmtilegt. Tölvuleikir eru framtíðin. ÉG segi eftirfarandi – og skal gerast svo kræfur að tala fyrir hönd ufsilón-fólks. Hættum þessu kjaftæði. Ekkert er jafn spennandi í lífinu og erfið krefjandi verk- efni. Pólitík og peningar þýða völd og völd hafa frá dögum Hammúrabís konungs í Babýlon verið það eftirsóknarverðasta í lífinu fyrir utan kannski ást og væntum- þykju, en það nennir enginn að elska þann sem elskar bara sjálfan sig. Hættum að halda upp á afmælið okkar á hverjum degi. Tökum okkur taki. Sinnum verkefnum okkar og tökum völdin. Það tekur bara mínútu að lesa þennan pistil HARRY OG HEIMIR FORSÝNING 9 CAPTAIN AMERICA 3D 5, 8, 10:45 NOAH 6, 8, 10:45 HNETURÁNIÐ 2D 6 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar FORSÝNING HARRY OG HEIMIR CAPTAIN AMERICA 3D CAPTAIN AMERICA 3DLÚXUS NOAH GRAND BUDAPEST HOTEL HNETURÁNIÐ 2D Ý Í ÍÆVINT RI HR. PBODYS SL. TAL 2D NYMPHOMANIAC PART 2 HEILD GRAND BUDAPEST HOTEL DEAD SNOW - RED VS DEAD ONE CHANCE KL. 8 (FORSÝNING) KL. 5 - 8 - 10.15 KL. 5 - 8 KL. 5 - 8 - 10.15 KL. 8 KL. 3.30 KL. 3.30 - 5.45 Miðasala á: KL. 6 - 9 KL. 6 - 8 KL. 5.45 - 8 - 9 - 10.15 KL. 10.15 KL. 5.40 - THE TELEGRAPH - FRÉTTABLAÐIÐ - THE GUARDIAN- EMPIRE FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 16:00 Skytten, Danmörk (2013) 20:00 Jeg er din, Noregur (2013) Allar kvikmyndirnar eru sýndar með enskum texta og er frítt inn á hátíðina. Nánari upplýsingar á norraenahusid.is. NORRÆN KVIKMYNDA HÁTÍÐ 3.–15. APRÍL 2014 NORRÆNA HÚSIÐ KYNNIR: SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK THE HOLLYWOOD REPORTERL.K.G - FBL. EMPIRE ENTERTAINMENT WEEKLYTOTAL FILMTHE GUARDIAN ht.is ÞVOTTAVÉLAR Skipuleggjendur Iceland Airwaves tilkynntu í dag fleiri listamenn sem koma fram á hátíðinni í ár en alls verða þeir um 200. Iceland Airwaves-hátíðin verður haldin í sextánda sinn í ár, dagana 5. til 9. nóvember, og er undirbúningur í fullum gangi. „Við erum hæstánægð og það er ótrúlega skemmtilegt að tilkynna jafn heita hljómsveit og Future Islands,“ segir Kamilla Ingibergs- dóttir hjá Iceland Airwaves-hátíð- inni, en hátíðin hefur nú tilkynnt um 70 af 200 tónlistarmönnum og hljómsveitum sem koma fram í ár. Eins og mörgum er kunnugt kom Future Islands fram í spjallþætti Davids Letterman á dögunum, en þar vakti söngvari sveitarinnar mikla athygli fyrir frumlega sviðs- framkomu og klippa úr þættinum fór eins og eldur í sinu um netheima. „Söngvarinn í bandinu er náttúru- lega stórkostlegur,“ bætir Kamilla við og segir gaman fyrir hátíðina að sveit sem þau hafi bókað fái svo mikla athygli. Auk þess bætast við sveitir á borð við Caribou og The War on Drugs sem Kamilla segir sérstakt gleði- efni. „The War on Drugs kemur til með að loka hátíðinni ásamt Flam- ing Lips á sunnudeginum en sveitin gaf nýverið út frábæra plötu.“ „Við búumst við jafn mörgum útlendingum og í fyrra, þegar um sextíu prósent rúmlega átta þús- und gesta voru að utan. Við höfum þegar selt fullt af miðum og hvetj- um fólk eindregið til að sofna ekki á verðinum og vera snemma í því að næla sér í miða. Við verðum oft vitni að því að fólk situr eftir með sárt ennið,“ útskýrir Kamilla, og segist sérlega spennt fyrir hátíðinni í ár. „Svo eigum við heilan helling inni. Það á eftir að tilkynna meira en hundrað bönd!“ olof@frettabladid.is Fleiri stór nöfn á stórskemmti- legri Iceland Airwaves í ár Caribou, Future Islands, King Gizzard & The Lizard Wizard og The War on Drugs koma fram á Airwaves. SPENNT FYRIR HÁTÍÐINNI Kamilla Ingibergsdóttir býst við um átta þúsund gestum á Iceland Airwaves í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI The War on Drugs (US) Caribou (CA) Future Islands (US) Oyama Farao (NO) Kaleo Zhala (SE) Spray Paint (US) Rökkurró Emilie Nicolas (NO) Endless Dark Kippi Kaninus King Gizzard & The Lizard Wizard (AU) Brain Police Beneath Þórir Georg Fufanu Epic Rain Skurken AMFJ Kontinuum Ophidian I Var Atónal Blús Mafama Vio Lucy in Blue Conflictions Þeir listamenn sem bætast við: Leikkonan Rachel Weisz elskar að vinna með eiginmanni sínum, Daniel Craig. Parið, sem lætur lítið sjá sig saman opinberlega, var heiðrað á dögunum af góð- gerðasamtökunum The Opport- unity Network, sem hjálpar ung- lingum sem eiga erfitt uppdráttar við að öðlast menntun og frama en leikaraparið er helsti styrktar- aðili samtakanna. Weisz segir þau skemmta sér vel við að vinna að samtökunum saman. Leikararnir giftu sig eftir nokkurra mánaða samband árið 2011 en Weisz skildi við fyrrver- andi eiginmann sinn, leikstjórann Darren Aronofsky, árið 2010. Vinna saman GAMAN SAMAN Rachel Weisz og Dan- iel Craig hafa verið gift síðan 2011. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.