Fréttablaðið - 10.04.2014, Side 74

Fréttablaðið - 10.04.2014, Side 74
10. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 62 Með þessu kasti á sunnudaginn hoppaði ég upp í 13. sæti á Evrópu- listanum í mínum aldurs- flokki og nú set ég stefnuna á ÓL í Tókýó. Vigdís Jónsdóttir, sleggjukastari. © GRAPHIC NEWS Heimild: Augusta-golfklúbburinn AUGUSTA-VÖLLURINN Augusta, Georgíuríki, 10.-13. Apríl Rae-vík 1553 Redbud 4074 Tea Olive MetrarParHola 5255 Pink Dogwood 2203 Flowering Crab Apple 1413 Golden Bell 4665 Azalea 1643 Juniper 4164 Magnolia 4114 Pampas 4024 Nandina 5215 Yellow Jasmine 4254 Holly 4524 Camellia 4624 White Dogwood 4204 Carolina Cherry 3204 Flowering Peach 4024 Chinese Fir 4845 Firethorn Amen-hornið Samanstendur af öðru höggi á holum 11 og 12 og upphafshöggi á 13 MASTERS-MÓTIÐ 2014 FRJÁLSAR „Ég bjóst kannski við að kasta svona 51-52 metra en sleggj- an fór alveg yfir 55 metrana sem kom skemmtilega á óvart,“ segir Vigdís Jónsdóttir, 18 ára frjáls- íþróttakona úr FH, sem á sunnu- daginn bætti fimm ára gamalt Íslandsmet ÍR-ingsins Söndru Pét- ursdóttur í sleggjukasti kvenna. Vigdís var að keppa á Coca Cola-móti FH á heimavelli sínum í Kaplakrika og þrumaði sleggjunni 54,51 metra í fyrsta kasti. Hún var þá búin að bæta Íslandsmetið sem var 54,19 metrar. Vigdís bætti um betur og kastaði næst 55,23 metra og bætti Íslandsmetið um 1,04 metra. Enn fremur bætti hún eigin árangur með 4 kg sleggjunni um ríflega 10 metra. „Sleggjan var ekkert búin að fara rosalega langt á æfingum en þetta er í takt við það hvernig mér gengur á mótum. Mér geng- ur betur þegar ég keppi – fæ eitt- hvert svona adrenalínkikk,“ segir Vigdís sem setti stefnuna ekki á Íslandsmet í fullorðinsflokki held- ur í flokki 18-19 ára. „Ég ætlaði kannski að ná stóra metinu í sumar en 18-19 ára metið átti að fara. Ég bætti metið strax í fyrsta kasti og við öll sem stóð- um þarna fengum alveg sjokk. Svo bætti ég metið strax í næsta kasti og við urðum öll himinlifandi.“ Sleggjan betri fyrir ökklana Þessi efnilega íþróttakona hefur aðeins æft sleggjukast í 18 mánuði. Alla æsku sína æfði hún fimleika, fyrst með Björk og síðar Stjörn- unni, en hún sagði skilið við fim- leikana fyrir tveimur árum. „Ég var búin að vera með álags- meiðsli í ökkla sem höfðu tekið sinn toll og ég bara gat ekki meira. Það voru álagsbrot í báðum ökkl- um þannig ég gat ekki keppt mikið. Það endaði með því að mér var alltaf illt og var alltaf vafinn þannig að ég ákvað að taka mér pásu,“ segir Vigdís en pásan varð varanleg og ákvað hún því að prófa frjálsar. Stefnan var fyrst tekin á spjótkast. „Ég byrjaði að hlaupa en ætlaði síðan að fara í spjótkastið því mér fannst það spennandi. En kast- þjálfarinn minn, Eggert Bogason, sá meiri sleggjukastara í mér og leyfði mér að prófa. Svo var ég bara svo fljót að ná tækninni,“ segir Vigdís en meiðslin sem stóðu í vegi fyrir henni í fimleikunum angra hana ekkert í dag. „Ég hef reyndar bara batnað. Ég meiddist rosalega illa í apríl 2011 og fór til sjúkraþjálfara að styrkja ökklann en ég lenti oft illa eftir það. Ökklarnir hafa bara styrkst í sleggjunni. Fimleikarnir gera mér samt mjög gott og eru góður grunnur.“ Beðið eftir niðurstöðum Kast Vigdísar er eðli málsins sam- kvæmt það lengsta á árinu en með því vann hún sér sæti í landslið- inu sem tekur þátt í Evrópubikar- keppninni sem fram fer í Georgíu í júní. „Ég á bara eftir að fá niður- stöðurnar úr lyfjaprófinu sem ég fór í eftir mótið á sunnudaginn. En lengsta kastið gildir þannig að vonandi kemst ég til Georgíu,“ segir Vigdís. Hún setur stefnuna á fleiri mót á árinu og langar mikið að komast með Anítu Hinriksdóttur á heims- meistaramót 20 ára og yngri sem fram fer í Bandaríkjunum í sumar. „Mig vantar tvo metra til að ná lágmarkinu fyrir það. Ég þarf að kasta 57 metra til að komast á HM. Það væri alveg rosalega skemmti- legt að fara með Anítu og Hilm- ari.“ Stóra markmiðið er auðvitað Ólympíuleikarnir en ekki eftir tvö ár í Ríó. „Með þessu kasti á sunnudaginn hoppaði ég upp í 13. sæti á Evrópu- listanum í mínum aldursflokki og nú set ég stefnuna á Ólympíuleik- ana í Tókýó 2020. En ég ætla líka að reyna keppa á Smáþjóðaleik- unum á næsta ári hérna heima. Þjálfarinn minn ætlar að reyna fá sleggjukast sem keppnisgrein,“ segir Vigdís Jónsdóttir. Komst langt í fimleikunum Kastsería Vigdísar var mjög myndarleg á mótinu í Krikanum en fimm af sex köstum hennar voru yfir 52 metra, hún tvíbætti Íslandsmetið og gerði aðeins einu sinni ógilt. Vigdís er uppalin í Hafnarfirði og stundar nám í Kvennaskólan- um í Reykjavík þar sem hún er á öðru ári. „Þetta flækist stundum hvort fyrir öðru en þetta sleppur alveg,“ segir hún og hlær við. Fimleikaferill hennar var sæmi- lega farsæll og ekki að ástæðu- lausu að hún hefur náð svona langt á svo skömmum tíma í sleggjunni. „Ég komst tvisvar á úrtöku- mótin fyrir Evrópuliðin en komst reyndar ekki í liðið. Ég komst samt alveg langt í fimleikunum. En nú á sleggjukastið hug minn allan og ég set kraftinn í það,“ segir Vigdís Jónsdóttir. tom@frettabladid.is Hætti í fi mleikum og varð Íslandsmethafi í sleggjukasti Vigdís Jónsdóttir, 18 ára frjálsíþróttakona úr FH, stórbætti árangur sinn í sleggjukasti um síðustu helgi og bætti um leið Íslandsmetið í greininni. Hún ætlaði sér að æfa spjótkast eft ir farsælan feril í fi mleikum. Þessi efnilega íþróttakona setur stefnuna á Ólympíuleikana í Tókýó árið 2020 sem og á fl eiri mót. EFNILEGUR ÍSLANDSMETHAFI Framtíðin virðist björt hjá hinum 18 ára gamla sleggjukastara Vigdísi Jónsdóttur sem er nýr Íslandsmethafi í greininni eftir stórbætingu á móti í Kaplakrika síðastliðinn sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL GOLF „Þetta er örugglega vinsæl- asta mótið af þeim fjórum stóru í áhorfi. Það er alltaf spilað á sama vellinum og mikil hefð hefur myndast í kringum mótið,“ segir Birgir Leifur Hafþórsson, fremsti kylfingur þjóðarinnar, um Mast- ers-mótið, fyrsta risamót ársins, sem hefst á Augusta-vellinum í Georgíuríku í dag. Birgir Leifur er einn af þeim sem lýsa mótinu í beinni útsend- ingu á Golfstöðinni en sýnt verður beint frá öllum fjórum dögunum. Hann er eðlilega spenntur fyrir mótinu enda oft mikil dramatík í boði á Augusta. „Fólk sér alltaf sömu holurn- ar og sömu pinnana og tengir við þetta mót. Svo eru staðir eins og Amen-hornið sem er mjög frægt og alltaf eitthvað sem gerist þar. Menn bíða alltaf spenntir eftir síðustu níu holunum á lokahringn- um því það er oft mikil dramatík í gangi. Þetta snýst um að halda sér í formi allan tímann,“ segir Birgir Leifur. Norður-Írinn Rory McIlroy er talinn sigurstranglegastur fyrir mótið þar sem Tiger Woods er ekki á meðal keppenda í fyrsta skiptið í 20 ár. „Þessi völlur hentar Rory vel ef hann nær pútternum í gang. Hann er samt ekki búinn að vera að pútta vel að undanförnu. Jason Day líður líka vel á þessum velli og er búinn að lenda nokkrum sinn- um í öðru sæti. Hann vill slá frá hægri til vinstri og því er völlur- inn góður fyrir Day,“ segir Birg- ir Leifur, sem býður sjálfur upp á óvænta en skemmtilega spá fyrir mótið. „Ég vil sjá Evrópumenn gera það gott: Justin Rose, Lee West- wood eða Luke Donald, Ef pútt- erinn verður heitur hjá Henrik Stensson spái ég honum sigri. Hann verður fyrsti Svíinn til að vinna risamót. Stenson verður minn maður um helgina,“ segir Birgir Leifur léttur að lokum. - tom Birgir Leifur spáir Stenson sigri The Masters, fyrsta risamót ársins í golfi nu, hefst í dag á Augusta-vellinum. SVÍI Vinnur Henrik Stenson óvæntan sigur á Masters? FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY KÖRFUBOLTI Þjóðverjinn Dirk Nowitzki, leikmaður Dallas Mavericks í NBA-deildinni í körfubolta, hitti úr 9 af 11 skotum sínum gegn Utah Jazz og skor- aði 21 stig í öruggum 95-83 sigri Dallas. Leikurinn var sögulegur fyrir Nowitzki því hann komst upp í 10. sætið á stigalistanum yfir mestu skorarana í NBA-deildinni frá upphafi. Á topp-10 listanum eru nöfn á borð við Michael Jordan, Wilt Chamberlain og stigakóng- inn sjálfan, Kareem Abdul-Jabb- ar. Nowitzki hirti 10. sætið af goð- sögninni Oscar Robertson sem skoraði 26.710 stig á 14 ára ferli með Cincinnati Royals og Mil- waukee Bucks á árunum 1960- 1974. Hann varð meistari með Milwaukee árið 1971. Þjóðverjinn er nú búinn að skora 26.714 stig en hann komst upp fyrir Robertson með laglegu stökkskoti úr teignum í fjórða leikhluta, en það hefur hann gert nokkrum sinnum áður. - tom Sögulegt hjá Nowitzki Í SÖGUBÆKURNAR Þjóðverjinn hefur átt flottan feril. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY GOLF Hefð er fyrir því að sigur- vegari síðasta árs í Masters- mótinu velji matseðilinn á kvöld- verði meistaranna sem fram fór í fyrradag í klúbbhúsinu á Aug- usta National. Ástralinn Adam Scott sigraði í mótinu á síðasta ári og bauð upp á steik og humar eða „Surf and Turf“ eins og það útleggst á enskri tungu. „Ég taldi að það myndi hitta í mark að bjóða upp á eitthvað sem allir kannast við,“ segir Scott. Hann hafði íhugað að bjóða upp á mjög sérstakan þjóðarrétt frá Queensland í Ástralíu. Meðal annars kom til greina að bjóða upp á rétt þar sem skordýr koma við sögu. Fyrrverandi meistarar voru því líklega himinlifandi yfir að fá steik og humar í gærkvöldi. Margir framandi réttir hafa verið framreiddir á kvöldverði meistaranna í gegnum tíðina. Frægt er þegar Skotinn Sandy Lyle bauð upp á þjóðarrétt Skota, haggis. - jjk Bauð upp á naut og humar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.