Fréttablaðið - 10.04.2014, Page 78
10. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 66
„Við sórum og lofuðum að gera þetta
aldrei, aldrei aftur en það loforð vís-
aði einungis til meginlandsins. Við
höfum aldrei komið fram á Þjóð-
hátíð í Eyjum. Þetta verður án efa
ein stærsta tónleikahátíð ársins og
þótt víðar væri leitað. Því fannst
okkur í raun og veru liggja beinast
við að Quarashi færi þangað,“ segir
Sölvi Blöndal í hljómsveitinni Quar-
ashi sem spilar á Þjóðhátíð í Eyjum
um verslunarmannahelgina. Allir
upprunalegu meðlimirnir stíga með
Sölva á sviðið í Herjólfsdal en það
eru Höskuldur Ólafsson, Steinar
Fjeldsted og Ómar „Swar ez“ Hauks-
son, Auk þess verður Egill „Tiny“
Thorarensen með bandinu en hann
kom í stað Höskuldar þegar hann
yfirgaf sveitina árið 2002.
„Quarashi-sagan spannar níu ár,
breiðskífur og tugi laga. Við ætlum
að flytja efni af öllum þessum skíf-
um og leggjum ótrúlega mikinn
metnað í þetta. Þetta er þrusupró-
gramm og það er fáránlega gaman
að standa á sviðinu fyrir framan tíu
til fimmtán þúsund manns. Það má
búast við því að þetta verði flott-
ustu tónleikar ársins þó það sé frek-
ar mikil samkeppni við Justin Tim-
berlake,“ segir Sölvi í gamansömum
tón.
Quarashi á ótalmarga smelli frá
ferlinum og naut mikillar velgengni
erlendis rétt eftir árið 2000. Lög
þeirra voru notuð í ótal sjónvarps-
þáttum og kvikmyndum. Stick ’Em
Up og Mr. Jinx ómuðu til að mynda
í 2 Fast 2 Furious, Alias, Smallville
og í auglýsingum fyrir NBA-deild-
ina á sjónvarpsstöðinni TNT. Þá hafa
lög Quarashi af plötunni Jinx, sem
kom út árið 2002, heyrst í tölvuleikj-
unum Amplitude, NFL Blitz, Trans-
world Snowboarding og Madden
NFL. Lagið Stick ’Em Up var einnig
notað í myndunum Death Race 2 og
The Mech anic. Það er því af nægu
að taka á lagalistanum í Eyjum en
aðspurður hvort Quarashi muni líka
bjóða upp á nýtt efni í Dalnum er
Sölvi mjög dularfullur.
„Ég get ekki svarað því.“
Fréttablaðið sagði frá því á þriðju-
dag að Skítamórall, Kaleo og Mamm-
út væru fyrstu þrjár hljómsveitirn-
ar sem tilkynntar væru á Þjóðhátíð í
Eyjum en Sölvi segir að hljómsveita-
úrvalið á hátíðinni í ár hafi haft
mikil áhrif á meðlimi Quarashi.
„Það átti stóran þátt í ákvörð-
un okkar að koma saman á þessari
hátíð. Þjóðhátíð í Eyjum sem tónlist-
arfestival hefur breyst og í ár verða
þar Mammút, Kaleo og ýmis fleiri
áhugaverð bönd,“ segir Sölvi sem
er byrjaður að koma sér í gott form
fyrir lætin á sviðinu.
„Þegar þetta var komið á hreint
fór ákveðið prógramm í gang. Mitt
prógramm er þannig að ég syndi tvo
og hálfan kílómetra á skriðsundi í
viku. Ég tek formið gríðarlega alvar-
lega og ég held að aðrir hljómsveit-
armeðlimir deili því með mér. Ég er
búinn að lenda á spítala einu sinni
á þessu ári og ég vil ekki lenda þar
aftur. Það er löng saga. Í stuttu máli
lenti ég í snjóbrettaslysi.“
Quarashi kom síðast saman á
Bestu útihátíðinni árið 2011 en Sölvi
segir að hljómsveitin sé ekki byrjuð
aftur.
„Hljómsveitin er enn þá hætt og
verður enn þá hætt eftir tónleikana.
Þetta er dauður hestur og fer bara
á vagninn mjög tímabundið. Síðan
verður hann svæfður aftur.“
liljakatrin@frettabladid.is
Quarashi snýr aft ur
Hljómsveitin Quarashi kemur aft ur saman á Þjóðhátíð í Eyjum um verslunar-
mannahelgina. Quarashi-meðlimurinn Sölvi Blöndal segir þó að sveitin sé enn
þá hætt og verði enn þá hætt eft ir tónleikana í Herjólfsdal í byrjun ágúst.
Þetta er dauður hestur og fer bara á vagninn mjög
tímabundið. Síðan verður hann svæfður aftur.
Sölvi Blöndal
• Quarashi var stofnuð árið 1996
• Gaf út fjórar breiðskífur– Quar-
ashi (1997), Xeneizes (1999), Jinx
(2002) og Guerilla Disco (2004).
Auk þess gaf hún út safnplötuna
Anthology árið 2011
• Hefur selt um fjögur hundruð
þúsund plötur á heimsvísu
• Hefur unnið og spilað með lista-
mönnum á borð við Cypress Hill,
Prodigy, Eminem og Weezer
• Allar breiðskífur sveitarinnar fóru í gullsölu á Íslandi
• Á árunum 2000 til 2003 var sveitin á samningi hjá Columbia Records og
EMI Music í Bandaríkjunum
• Myndbandið við lagið Stick ’Em Up var tilnefnt til MTV Video Music-
verðlaunanna árið 2002 en laut í lægra haldi fyrir Trouble með Coldplay
• Árið 2002 hætti Höskuldur Ólafsson í sveitinni og í hans stað kom Egill
„Tiny“ Thorarensen
• Sveitin hætti störfum árið 2005
EIN VINSÆLASTA SVEIT ÍSLANDSSÖGUNNAR
ÞRUSUPRÓGRAMM Sölvi segir að fólk megi búast við því að þetta verði flottustu tónleikar ársins á Íslandi. MYND/
Litla hafmeyjan, ég horfi alltaf á
hana um jólin og þegar ég þarf að
horfa á Disney-mynd til þess að sjá
heiminn í öðru ljósi.
Rakel Mjöll tónlistarkona
BESTA MYNDIN
PAAPAAAAAAAAPAAPAAPAAPAAPAPPP
RRRRRRRRR
\\\\\\\\\\T
BW
A
W
A
W
A
W
A
TB
W
A
TB
W
A
W
AA
BWBWWWTB
WWW
TBT
••
AAAA
AAA
AAA
AAAAAAAAAAAAAAA
SÍ
AA
SÍ
A
S
ÍAASÍ
A
S
••••••••••••••
30
95
30
95
13
09
5
13
09
5
1
30
95
30
9
1
313
444
11
PA
R\
IP
A
R\
A
R\
PI
PA
R\
PI
PA
R
PI
PA
R
PI
PA
R
PI
PAPA
PI
PA
PI
PA
PI
P
PI
PPIIIPIPIIPIPPPPPPPP
TT
W
AAAAAAA
W
AA
BW
A
W
A
BW
AAA
BW
•
SÍ
A
SÍ
A
•
S
ÍASÍ
A
SÍ
A
•
SÍ
A
SÍ
A
••
Í
•
S
ÍAÍ
•
S
ÍAÍÍ
••
SÍ
A
•
•
S
•
•
S
•
•••••••••
PI
PPPP
PI
P
PI
P
PI
P
PI
PPIPIPPPPI
PP
PI
PP
PI
P
PI
P
PI
PIPPIPPPPI
PPP
PI
P
PI
P
PI
P
P
PPP
PI
PP
PI
P
PI
P
PI
P
PI
PP
PPPP
AAAAPAAAAAAAPAAPAPAAAPAAAPAPAPAAAAAAAAAA
11111 RRRR
44444444 \\\\\\\\\\\\\\\T
BW
A
W
A
W
A
W
A
TB
W
A
W
A
BWBWWTB
W
TB
W
TBTBTTTB
W
A
W
A
W
A
W
A
TB
W
A
W
A
BWBWWTB
W
TB
W
TBTBTT
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
ht.is
SELFOSS • REYKJANESBÆR • AKRANES • AKUREYRI • HÚSAVÍK • EGILSSTAÐIR • REYKJAVÍK
Nikon School
námskeið fylgir!
24,2 Megapixla
C-MOS myndflaga
Nikon D3200KIT1855VR
Stafræn SLR myndavél með 24,2 milljón punkta
upplausn, 24,2 mm CMOS flögu á DX-sniði,
EXPEED 3, ISO 100-6400 (fer í 12800), 3” LCD
skjá, Active D-Lighting, D-Movie FHD hreyfimynd,
umhverfis- og brellustillingum, hraðri raðmyndatöku,
tvöföldu rykhreinsikerfi, HDMI C út ofl.
VR LINSA MEÐ HRISTIVÖRN
STAFRÆN SLR MYNDAVÉL
TILBOÐ
FULLT VERÐ 109.995
99.995
NIKON FERMINGARTILBOÐ
Þráðlaust farsímatengi
að verðmæti 11.990 fylgir!
Nú með nýrri
og léttari
linsu!
„Í staðinn fyrir að vera kaffi-
borðsbók verður þessi bók svoköll-
uð náttborðsbók fyrir fullorðna,“
segir Sigríður Dögg Arnardótt-
ir kynfræðingur sem skilaði inn
handriti að sinni fyrstu bók í gær.
Bókin nefnist Kjaftað um kynlíf
og verður handbók fyrir foreldra
þar sem farið er yfir hvernig á að
tala um kynlíf við börn og ung-
linga á aldrinum 0-18 ára. Bókin á
að koma út í haust á vegum útgáf-
unnar Iðnú.
„Bókin er byggð á efni sem
ég hef sankað að mér á seinustu
fjórum árum, mín reynsla í bland
við erlendar og innlendar rann-
sóknir,“ segir Sigríður Dögg,
betur þekkt sem Sigga Dögg, en
hún segir bókina vera skyldu-
eign fyrir foreldra og fullorðna.
„Lykillinn að kynfræðslu er að
foreldrar geti talað um kynlíf við
börnin sín. Oftar en ekki veit fólk
ekki hvernig á að gera það og hve-
nær er best að byrja fræðsluna. Ég
skoðaði margar nýjar bækur um
þetta málefni, flestar frá Banda-
ríkjunum og eru þær margar mið-
aðar að því að banna kynlíf fyrir
hjónaband sem á alls ekki við hér.“
Efni bókarinnar verður skipt í
aldursskeið en Sigga Dögg segir
mikilvægt að leyfa forvitni barns-
ins að ráða þegar kemur að kyn-
fræðslu. „Ég mundi segja að 4-6
ára aldurinn væri góður til að
byrja að koma inn á hvernig börn-
in verða til, svo ræður maður
hversu djúpt er farið í útskýring-
arnar. Allt er þetta tekið fyrir í
bókinni.“ - áp
Gefur út handbók fyrir foreldra um kynlíf
Kynfræðingurinn Sigríður Dögg Arnardóttir gefur út sína fyrstu bók, Kjaft að um kynlíf.
KJAFTAÐ UM KYNLÍF Sigga Dögg gefur
út sína fyrstu bók sem er handbók fyrir
foreldra og fullorðna. MYND/ALDÍS PÁLS