Fréttablaðið - 12.05.2014, Side 10
12. maí 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
STJÓRNMÁL Hanna Birna Krist-
jánsdóttir innanríkisráðherra
segir ótímabært að láta meta
ávinning af því að Landhelgis-
gæslan taki við sjúkraflugi í land-
inu.
Þetta kemur fram í svari innan-
ríkisráðherra við fyrirspurn
frá Silju Dögg Gunnars dóttur,
alþingis manni Framsóknarflokks.
Í fyrirspurninni vísar Silja til
ábendingar Ríkisendurskoðunar
um gerð langtímaáætlunar um
starfsemi Landhelgisgæslunnar.
Í svari ráðherra segir að ljúka eigi
við áætlunina í haust.
Silja spurði hvort ráðherrann
ætlaði að láta meta sérstaklega
hvaða áhrif það hefði á þjónustu,
nýtingu tækjabúnaðar og annan
rekstur Landhelgisgæslunnar
ef gæslan tæki við sjúkraflugi
og kanna hvort sú breyting yki
öryggi landsmanna.
Innanríkisráðherra bendir á
að sjúkraflug sé ekki á sínu for-
ræði heldur heilbrigðisráðherra.
Landhelgisgæslan megi þó sam-
kvæmt lögum gera þjónustu-
samninga – þar með talið um
almennt sjúkraflug og aðstoð við
læknisþjónustu.
„Landhelgisgæslan sinnir nú
þegar umtalsverðum hluta sjúkra-
flugs án þess að á móti komi sér-
stakar greiðslur. Ákvörðun um
breytingar eða sérstaka skoðun á
öðru fyrirkomulagi sjúkraflutn-
inga, þar með töldu sjúkraflugi,
verður ekki tekin nema að höfðu
samráði við ríkisstjórn og Alþingi.
Því er ótímabært að láta meta
þá þætti sérstaklega sem hér er
spurt um,“ svaraði Hanna Birna,
sem vísaði í þetta sama svar við
næstu spurningu Silju um það
hvort ráðherra ætlaði, í samræmi
við athuga semdir Ríkis endur-
skoðunar, að láta athuga hvort
hagkvæmara væri að sjúkraflug
yrði í höndum einkaaðila eða á
vegum Landhelgisgæslunnar.
Flugfélagið Mýflug annast
sjúkraflug með samningi við
ríkið. Ríkisendurskoðun sagði í
ágúst í fyrra að ekki lægju fyrir
nægar upplýsingar til að meta
hvort hagkvæmt væri að Land-
helgisgæslan tæki sjúkraflugið
að sér. Helstu rökin væru að auka
öryggi í sjúkraflugi og tryggja
betri nýtingu á mannskap Land-
helgisgæslunnar.
„Stofnunin hvetur innanríkis-
ráðuneyti til að skoða mögulega
aðkomu hennar að slíku flugi með
formlegri og nákvæmari hætti
en gert hefur verið,“ sagði Ríkis-
endur skoðun sem kvað mis skiln-
ing vera uppi milli velferðarráðu-
neytis og innanríkisráðuneytis um
málið: „Ríkisendurskoðun gagn-
rýnir að málið hafi ekki fengið
formlega afgreiðslu milli og innan
ráðuneytanna.“ gar@frettabladid.is
Metur ekki flutning
sjúkraflugs til LHG
Innanríkisráðherra segir í svari við fyrirspurn á Alþingi að samráð þurfi við ríkis-
stjórn og Alþingi ef meta á áhrif af því að Landhelgisgæslan annist allt sjúkraflug.
Því sé það ótímabært að ráðuneytið meti hvort slíkt auki öryggi landsmanna.
SJÚKRAFLUG Þyrlur Landhelgisgæslunnar annast nú fyrst og fremst sjúkraflug á sjó og þar sem sjúkrabílum verður ekki komið
við á Suður- og Vesturlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
2
6
4
2
GREIÐSLUR ÚR LÍFEYRISSPARNAÐI
HVAÐ BER AÐ HAFA Í HUGA?
Við bjóðum þér á fræðslufund í Arion banka, Borgartúni 19,
þriðjudaginn 13. maí kl. 17.30. Fyrirlesari er Helga Sveinbjörnsdóttir,
sérfræðingur í lífeyrismálum hjá Arion banka.
Meðal atriða sem farið verður yfir á fundinum:
Reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar
Skattaleg meðferð lífeyrissparnaðar
Samspil útgreiðslna Tryggingastofnunar og lífeyrissjóða
Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund og verður boðið
upp á léttar veitingar.
Allir velkomnir
SKRÁNING Á ARIONBANKI.IS