Fréttablaðið - 12.05.2014, Síða 16
12. maí 2014 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Okkar ástkæri
BJARNI EYVINDSSON
lést sunnudaginn 4. maí sl. Útförin fer fram
frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 15. maí
kl. 13.00.
Bergljót E. Ingvarsdóttir
Steinunn Markúsdóttir
Ásta Bjarndís Bjarnadóttir Guðmundur H. Gestsson
Brynjólfur Eyvindsson Soffía Arnardóttir
barnabörn og aðrir aðstandendur.
Bróðir minn,
SVEINN BIRGIR RÖGNVALDSSON
verður jarðsunginn frá Garðakirkju á
Álftanesi föstudaginn 16. maí kl. 13.00.
Guðný Kristín Rögnvaldsdóttir
Georg VI. og kona hans, lafði Elísabet,
voru krýnd konungur og drottning Bret-
lands í Westminster þennan dag árið
1937. Georg, sem stundaði nám við
sjóherskólann í Dartmouth og barðist
í fyrri heimsstyrjöldinni, varð erfingi
að hásætinu eftir að eldri bróðir hans,
Játvarður VIII. konungur, sagði af sér
í desember 1936. Játvarður var fyrsti
þjóðhöfðingi Englands sem afsalaði
sér sjálfviljugur hásætinu og titlinum.
Það gerði hann til að ganga að eiga
Wallis Warfield Simpson, sem var fráskilin
Bandaríkjakona.
Árið 1939 varð Georg konungur fyrsti
þjóðhöfðingi Breta til að heimsækja
Ameríku og Kanada. Hann og kona hans
héldu kyrru fyrir í Buckingham-höll í
seinni heimsstyrjöldinni þrátt fyrir að
stöðug hætta væri á árásum. Þá hélt
hann útvarpsræður til að efla baráttuvilja
Breta, en til þess varð hann að sigrast á
málhelti sem hann var haldinn.
Konungurinn veiktist alvarlega árið
1949. Þrátt fyrir það hélt hann áfram að
inna af hendi embættisskyldur sínar allt
til dauðadags árið 1952. Elsta dóttir hans
varð arftaki hans og var Elísabet önnur
krýnd Englandsdrottning í júní 1953 og
ríkir enn.
ÞETTA GERÐIST 12. MAÍ 1937
Nýr konungur krýndur í Bretlandi
MERKISATBURÐIR
1191 Ríkharður ljónshjarta gengur að eiga Berengaríu af
Navarra og hún er krýnd drottning sama dag.
1882 Konur fá takmarkaðan
kosningarétt til sveitarstjórna.
Eingöngu ekkjur og ógiftar
konur sem orðnar eru 25 ára
mega kjósa, en giftar konur
ekki.
1916 Hásetaverkfalli lýkur eftir
að hafa staðið í tvær vikur.
Þetta er fyrsta verkfall á Íslandi
sem ber nokkurn árangur.
1926 Roald Amundsen flýgur
yfir Norðurpólinn.
1935 Fyrsti golfvöllur á Íslandi
er vígður í Laugardalnum.
1942 Reykjavíkurborg kaupir
Korpúlfsstaði af Thor Jensen.
1984 Oddur Sigurðsson setur
Íslands- og Norðurlandamet í
400 metra hlaupi: 45,36 sek-
úndur.
1990 Ásgeir Sigurvinsson
lýkur ferli sínum sem atvinnu-
knattspyrnumaður, en hann
hófst 1973.
1999 Skoska þingið kemur
saman í fyrsta skipti.
2008 Jarðskjálfti verður í
Sesúan í Kína. Skjálftinn er
átta stig á Richterskvarða. Um
69.000 manns láta lífið og
fimm milljónir manna missa
heimili sín.
2009 Samtök fullveldissinna
eru stofnuð gegn hugsanlegri
aðild Íslands að Evrópusam-
bandinu.
„Ég á erfitt með að lýsa tilfinningum
mínum, ég held það sé ekki til mikið
meiri heiður en að fá að vera kosinn
heiðurslistamaður af sínu bæjarfélagi,
sérstaklega í Kópavogi þar sem listin
blómstrar,“ segir hinn 65 ára gamli
leikari Theódór Júlíusson, en hann
var útnefndur heiðurslistamaður Kópa-
vogsbæjar í gær við hátíðlega athöfn
í Gerðarsafni. „Ég er mjög glaður í
hjartanu og þakka lista-og menningar-
ráði með mikilli auðmýkt.“
Theódór hefur átt glæstan leiklistar-
feril. Hann er með diplómu í leiklist
frá The Drama Studio í London og
hefur á sínum langa ferli komið víða
við. „Ég var í tíu ár starfandi sem leik-
ari hjá Leikfélagi Akureyrar, það var
lærdómsríkur tími og þar fékk maður
að leika meiri og stærri hlutverk en
þegar maður var kominn til höfuð-
borgarinnar, þar sem úrvalið og sam-
keppnin var meiri,“ bætir Theódór við.
Hann flutti suður til Reykjavíkur árið
1989 og bauðst vinna í Borgarleikhús-
inu sem var opnað sama ár.
„Það er eftirminnilegt að hafa fengið
að taka þátt í opnunarverkinu á stóra
sviðinu, þar hef ég starfað síðan,“ segir
Theódór. Fyrir utan að hafa leikið í
fjölda sviðsverka, þá hefur hann leik-
stýrt fjölda sýninga hjá áhugaleik-
félögum og hjá Leikfélagi Akureyrar
og einnig leikið í fjölda kvikmynda. Er
eitthvað sérstakt sem stendur upp úr á
þínum langa og farsæla ferli?
„Það er margt eftirminnilegt, eins
og til dæmis þegar ég var lánaður í
Þjóðleikhúsið í eitt verkefni þar sem
ég lék með Róberti Arnfinnssyni,
hann var stórkostlegur leikari sem ég
bar mikla virðingu fyrir. Það er líka
ánægjulegt fyrir mig að ég er annar
leikarinn á eftir honum sem fær þessa
viðurkenningu sem heiðurslistamaður
Kópavogs. Einnig þegar ég lék Sölva
Helgason í leikriti Sveins Einarssonar
um Sólon Íslandus. Manni verður líka
hugsað til allra þeirra stórkostlegu
listamanna sem maður hefur unnið
með í gegnum tíðina. Þá eru mörg
eftirminnileg verk sem ég tók þátt í
í Borgarleikhúsinu eins og til dæmis
Vanja frændi í samnefndu leikriti.
Einnig var stórkostlegt að taka þátt
í sýningunni Fjölskyldan undir leik-
stjórn Hilmis Snæs Guðnasonar,“ segir
Theódór. Hvort er þó skemmtilegra að
leika á sviði eða í kvikmynd?
„Þetta er ólíkt en ég geri ekki upp
á milli. Það er rosalega gaman að
blanda þessu saman og hvort tveggja
er innspýting fyrir leikarann, hvort
sem það er að vera á sviði eða í mynd-
um. Það geta komið tímar í leikhús-
inu þar sem ekki allt tekst og maður
hugsar að maður hefði getað gert betur
en ánægjustundirnar eru þó talsvert
fleiri.“ Fyrir utan leiklistina hefur
Theódór starfað mikið að félags málum
og var í níu ár í stjórn Leikfélags Akur-
eyrar.
„Ég var einnig kosinn í stjórn Félags
íslenskra leikara og var þar í 12 ár og
eftir það var ég kosinn í stjórn Leik-
félags Reykjavíkur og sat þar í 13 ár en
fór úr stjórninni núna í október,“ bætir
Theódór við. Hann er að búa sig undir
tvær bíómyndir, önnur fer í tökur í
ágúst og hin síðar. „Þetta er kvik-
mynd í leikstjórn Gríms Hákonar sonar
og leggst rosalega vel í mig, þetta er
svona bændamynd sem verður tekin í
Bárðardal,“ segir Theódór um aðra af
þeim myndum sem væntanlegar eru.
gunnarleo@frettabladid.is
Er glaður í hjartanu
Stórleikarinn Theódór Júlíusson var kosinn heiðurslistamaður Kópavogsbæjar nú um
helgina. Hann hefur komið víða við á sínum langa og farsæla ferli.
TVÆR BÍÓMYNDIR Í BÍGERÐ Theódór hefur í nægu að snúast á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Englar alheimsins
Hafið
Mýrin
Reykjavík-Rotterdam
Djúpið
Eldfjall
➜ Kvikmyndir sem
Theódór hefur leikið í
➜ Það er margt eftirminnilegt,
eins og til dæmis þegar ég var
lánaður í Þjóðleikhúsið í eitt
verkefni þar sem ég lék með
Róberti Arnfinnssyni, hann var
stórkostlegur leikari sem ég bar
mikla virðingu fyrir.