Fréttablaðið - 12.05.2014, Blaðsíða 17
BLÓM OG BLÍÐA
Nú er tíminn fyrir vorverkin í garðinum. Hreinsa beð og bera á
pallinn. Gott er að hafa allt tilbúið til að snæða utandyra þegar
sólin skín og hitatölur hækka. Tími sumarblómanna er að
renna upp. Gaman er að raða þeim fallega saman í útipotta.
Nú er komin viðbót við vörulínu Masterline á markað, sólarlínan Solaire og BB-krem fyrir hendur
og fætur. Allar Masterline-vörurnar eru
án parabena.
Masterline-sólarlínan verndar hárið
gegn skaðlegum áhrifum sólar, klórs
og saltvatns. Vörurnar gefa hárinu þá
vernd sem það þarf í sumar og halda
raka og lit í hárinu.
Þórunn Ívarsdóttir mælir bæði með
sólarlínunni og BB-kreminu fyrir hendur
og fætur. „Ég nældi mér í Repair-
sjampóið frá Masterline en það hreinsar
hárið vel eftir sólardag og gefur fallegan
gljáa. Einnig á ég Spray Conditioner-
hárnæringuna sem kemur í sprey-
formi og maður þarf ekki að skola úr
sem gefur auka næringu og raka og er
einnig mjög gott flókasprey. Síðan er
það uppá haldið mitt úr línunni en það
er Protective Spray Oil sem er vörn í
hárið áður en maður fer út í sólina. Hún
verndar hárið og hárlitinn fyrir útfjólu-
bláum geislum og neikvæðum áhrifum
klórs og sjós. Mér finnst mjög góð lykt
af vörunum og eru þær án parabena og
SLES (sodium laureth sulfate) en ég er
einmitt með ofnæmi fyrir SLES. Spreyið
er eitthvað sem ég ætla að pakka með
mér í strandtöskuna fyrir utanlands-
ferðina og verður örugglega klárað í
tveggja vikna sólarlandaferðinni.“
Solaire-vörurnar koma í handhægum
umbúðum sem þægilegt er að taka með
sér í fríið og engin þörf á að taka neitt
annað með sér.
Masterline BB-kremin eru fyrir
hendur og fætur. Kremið smýgur hratt
inn og gefur fallegan lit. Kremin koma
í tveimur styrkleikum; fyrir ljósa og
dökka húð. „Ég prófaði BB-kremin fyrir
líkama og varð ekki fyrir vonbrigðum.
Með hækkandi sól vil ég hafa smá lit á
höndum og fótum. Það kemur fallegur
litur og áferð með kreminu og ekki
skemmir fyrir að það veitir góðan raka
um leið. Ilmurinn af kreminu er mildur
og góður. Kremið skolast svo af í sturt-
unni,“ segir Þórunn.
Masterline Solaire-línan og BB-kremin
fást í apótekum og Hagkaup.
ALLT SEM ÞARF
FYRIR SUMARIÐ
HALLDÓR JÓNSSON EHF. KYNNIR Masterline hefur nú bætt við vörulínu sína
sólarlínu sem kallast Solaire og BB-kremum fyrir hendur og fætur.
ÁNÆGÐ
Þórunn er ánægð með
Masterline-vörurnar,
bæði sólarlínuna fyrir
hárið og BB-kremið fyrir
hendur og fætur.
MYND/GVA