Fréttablaðið - 12.05.2014, Síða 48
12. maí 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 24
BAKÞANKAR
Hauks Viðars
Alfreðssonar
Miðasala á:
BAD NEIGHBOURS
LÁSI LÖGGUBÍLL
THE OTHER WOMAN
THE AMAZING SPIDERMAN 2 3D
HARRÝ OG HEIMIR
GRAND BUDAPEST HOTEL
KL. 8 - 10.10
KL. 5.40
KL. 8 - 10.25
KL. 6 - 9
KL. 6 - 8
KL. 5.45 - 10.15
BAD NEIGHBOURS
BAD NEIGHBOURS LÚXUS
LÁSI LÖGGUBÍLL
THE OTHER WOMAN
THE AMAZING SPIDERMAN 2 3D
RIO 2 2D ÍSL. TAL
HARRÝ OG HEIMIR
KL. 5.40 - 8 - 10.10
KL. 3.30 - 5.40 - 8 - 10.10
KL. 3.30
KL. 5.30 - 8 - 10.25
KL. 5 - 8 - 10
KL. 3.30
KL. 3.30 - 6 - 8
-T.V.,
BÍÓVEFURINN.IS
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
LOS ANGELES TIMESCHICAGO SUN TIMES
THE
BATTLE FOR
THE STREET
BEGINS.
SETH ROGEN ZAC EFRON ROSE BYRNE
T.V. - BÍÓVEFURINN.IS
BAD NEIGHBOURS 5:50, 8, 10:10
LÁSI LÖGGUBÍLL 6
THE OTHER WOMEN 8, 10:10
SPIDERMAN 2 3D 10:20
RIO 2D 5:40
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
“IT COULD BE HIS BEST FILM SO FAR” -
THE GUARDIAN
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
Austurríska draggdrottningin
Conchita Wurst, sem heitir réttu
nafni Tom Neuwirth, sigraði í
Eurovision á laugardags kvöldið
með lagið Rise Like a Phoenix sem
fékk alls 290 stig. Fyrir keppnina
fóru þjóðirnar Rússland, Hvíta-
Rússland og Armenía fram á að
Conchita fengi ekki að keppa eða
að atriði hennar yrði klippt út úr
útsendingunni til þeirra. Þjóðirnar
höfðu ekki erindi sem erfiði og
eftir að útsendingu keppninnar
lauk var blásið til umræðu þáttar
í rússneska ríkissjónvarpinu. Þar
sagði rússneski stjórnmálamaður-
inn Vladimír Zhirinovsky meðal
annars að sigur hennar væri
„endalok Evrópu“.
„Það eru engin takmörk fyrir
þessu hneyksli. Þetta er hams-
laust. Í Evrópu eru ekki lengur
karlmenn eða kvenmenn, bara
það,“ sagði Vladimír.
Evrópubúar eru sem betur fer
ósammála Rússum en Vladimír
Pútín Rússlandsforseti undirrit-
aði umdeild lög í fyrra sem banna
fólki að tala opinberlega um sam-
kynhneigð með jákvæðum hætti.
Mikið var púað þegar Tolma-
chevy-systurnar, framlag Rússa í
Eurovision, höfðu lokið flutningi
sínum á laginu Shine sem og þegar
stigakynnir Rússa las upp stigin
frá landinu á laugardagskvöldið.
Conchita lætur þessi ófögru orð
í sinn garð ekki á sig fá.
„Mér fannst í kvöld að Evrópa
hafi sýnt að hún sé eining sem er
full af virðingu og umburðarlyndi.
Við erum óstöðvandi. Þið vitið
hver þið eruð. Við erum eining og
óstöðvandi,“ sagði Conchita við
blaðamenn eftir sigurinn og var
orðum hennar greinilega beint að
Pútín Rússlandsforseta.
liljakatrin@frettabladid.is
„Erum eining og óstöðvandi“
Austurríska draggdrottningin Conchita Wurst bar sigur úr býtum í Eurovision. Rússneski stjórnmálamaðurinn
Vladimír Zhirinovsky lýsir sigrinum sem „endalokum Evrópu“. Conchita lætur það ekki á sig fá.
HRÆÐIST EKKERT Tom kom fyrst fram
sem Conchita árið 2011 í þættinum Die
große Chance á sjónvarpsstöðinni ORF.
MYND/EUROVISION
➜ Þetta er fyrsti sigur Austur-
ríkis í Eurovision síðan 1966.
➜ Conchita var sjötta á svið
í undanúrslitunum og ellefta
í úrslitunum en hún á einmitt
afmæli 6. nóvember.
➜ Lagið Rise Like A Phoenix
hljómar eins og Bond-lag. Þegar
hún var spurð hvort hún væri til
í að vera næsta Bond-stúlka á
blaðamannafundi eftir keppn-
ina sagði hún brosandi: „Ég
held að þið vitið svarið: Nei!“
Marcel Bezençon-verðlaunin eru
veitt árlega eftir að ljóst er hver
sigurvegari Eurovision-keppninnar
er. Í ár fékk lagið Rise Like a Phoe-
nix með Conchitu Wurst sérstök
fjölmiðlaverðlaun en sú verðlaun
eru veitt af fjölmiðlafólki til þess
lags sem þótti skara fram úr í
keppninni.
Hollenski dúettinn The
Common Linnets, sem þau Ilse
DeLange og Waylon skipa, fékk
listrænu verðlaunin sem lýsendur
þjóðanna velja og lag þeirra, Calm
After The Storm, fékk höfunda-
verðlaun sem lagahöfundar þeirra
þjóða sem taka þátt í Eurovision
velja. Lagið sömdu Ilse DeLange,
JB Meijers, Rob Crosby, Matthew
Crosby og Jake Etheridge.
➜ Hollendingar hafa
verið sigursælir
Framlag Pollapönks,
No Prejudice, lenti í
15. sæti í Euro-
vision-keppninni. Tvisvar áður
hefur framlag Ísland lent í því
sæti, annars vegar Nína í
fl utningi Stefáns & Eyfa árið
1991 og hins vegar Núna í
fl utningi Björgvins Halldórs-
sonar árið 1995.
Alls fékk lagið 58 stig, sem er
lægra en meðalstigafj öldi
Íslendinga í keppninni, sem er
64,3 stig. Ísland hefur að
meðaltali lent í 12,4. sæti í
keppninni síðan við tókum
fyrst þátt árið 1986.
58
Þrátt fyrir að hressilegt framlag Íslendinga í Eurovision hafi endað
„hægra megin“ á skjánum um helgina
voru úrslit keppninnar mér að skapi.
Evrópa tók afstöðu gegn fordómum
og kaus skeggjaða dragdrottningu til
sigurs.
EINN ágætur á Facebook lýsti því
reyndar yfir að hann teldi að þeir
sem héldu með henni gerðu það til
að „auglýsa meint fordómaleysi sitt“.
Það má vera að það sé rétt í ein-
hverjum tilfellum og er það þá bara
lóð á hina vogarskálina.
FORDÓMAR eru nefni-
lega víða auglýstir og
rötuðu til dæmis mis-
fögur tíst Íslendinga um
belgíska keppandann á
síður vefmiðla í síðustu
viku. Hann var í digr-
ari kantinum og upp-
hófst óformleg keppni
á Twitter um það hver
gæti verið fyndnastur á
hans kostnað.
ÞÁ auglýstu margir fordóma sína í athuga-
semdakerfi Vísis fyrir helgi í fréttum sem
sneru að umdeildri styttu á kaffihúsi í mið-
bænum. Styttan þykir einmitt endurspegla
fordóma en fordómar Virkra í athuga-
semdum beindust aðallega að fréttinni um
mannfræðinginn sem reyndi að útskýra
tengingu styttunnar við rasisma.
FÆSTIR virtust hafa lesið það sem mann-
fræðingurinn hafði um málið að segja.
Það kom þó ekki í veg fyrir að þeir tjáðu
sig um fréttina. Á milli upphrópana mátti
svo finna spurningar sem svarað var í við-
talinu. Það er ein gerð fordóma. Að hafa
sterkar skoðanir á kvikmynd sem þú hefur
ekki séð, söngvara sem þú hefur ekki
heyrt í og frétt sem þú hefur ekki lesið (og
munt líklega aldrei lesa).
EN enginn er víst alveg fordómalaus. Ég
tók til dæmis minna en ekkert mark á
fyrrnefndum ummælum Facebook-vinar-
ins um að þeir sem héldu með Austurríki
væru með því að auglýsa umburðarlyndi
sitt. Ekki af því að mér þótti ummælin
heimskuleg heldur vegna þess að sá sem
skrifaði þau er úr Hafnarfirði.
Enn af fordómum