Fréttablaðið - 17.06.2014, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 17.06.2014, Blaðsíða 4
17. júní 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is irt f m eð fy rir v yr irv ar a u p re m p re nt vi llu r. H ei m s H e fe rð i sk r ás ki lja ilj a ilj a sé r ur b ur b ur uuuutuuuutuuuutuuuuutttutututututututtttttttt re ys t re f á n fy rir v . ra . ar a. r t tttt ét t t leeelell e il le il le il lell elee il leelll étététététét ið ré t ið ré tét ð ré ð ré ið ré ið ré ð r ððiðiððððiðiðiðiððii g a g a g a tin g a tin g a tin g a g a g a g a g a g a tin g a g a g aaaaa tin g a ng a g a tin g a g a ng a ggggg tint lllllls á s á ss á s á s á s á s á s á ss á s á s á s á sá ss á s á s á s á sá á á áá á áááá á áááá u. ík u. u. u. u. ík u.kuuík uuukukkukkkkkk A th . A th .. h A th . A th . hth . A th . . h A thth ... . A th . A th . th . A th ...h..hth . A thth .h.th ...hh.h. A th . A thhhthhhhhh A thhhh A th A th A thhhhh A th A th A th A th A th A thhhhthh A th A th A ttttt A t A tt AAAAAAAA að ve að v e að v e að v e að v e að ve aðaðaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa e rð g e rð g e rð g e ð g eee g e rð g ee gg eeee rð g ee g ð g e g rð g e ð g e ð g e g e ð g e ggggggg ð gg rð ggg ðð ttttttttttttttttttttttttttttttttttttttt Frá kr. 103.900 Netverð á mann frá kr. 103.900 á Ayaz Agua m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 143.900 á Ayaz Agua m.v. 2 fullorðna í herbergi. 26. júní í 14 nætur. Tyrkland 49.900 Flugsæti frá kr. SVEITARSTJÓRNIR Formleg kosning í embætti hjá nýrri borgarstjórn fór fram í ráðhúsinu í gær. Dagur B. Eggertsson tók við embætti borgarstjóra og í ræðu sinni þakk- aði hann Jóni Gnarr fráfarandi borgarstjóra fyrir störf hans. „Ég veit að ég mæli fyrir munn miklu fleiri þegar ég segi að ég hef lært mikið af Jóni,“ sagði Dagur. Dagur var kjörinn með níu atkvæðum af fimmtán, fjórir seðlar voru auðir en Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknar, hlaut tvö atkvæði. Sóley Tómasdóttir var kjörin forseti borgarstjórnar með sömu atkvæðum. Þá var lögð fram tillaga meiri- hlutans um stofnun stjórn kerfis- og lýðræðisráðs undir forystu Halldórs Auðar Svanssonar, odd- vita Pírata. Sú tillaga var nokkuð gagn- rýnd af minnihlutanum, sem gerði athugasemdir við að óskýrt væri hvort verið væri að stofna nýtt ráð eða breyta fyrirliggjandi stjórn- kerfisnefnd í hið nýja ráð. Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, sagði tillög- una þurfa meiri umræðu. „Hér erum við að stækka kerfið hjá okkur frekar en að minnka það,“ sagði Halldór. Sveinbjörg Birna gerði sömu athugasemdir og sagði dagskrár- liðinn ekki tækan til afgreiðslu. Þrátt fyrir aðfinnslur minni- hlutans var tillagan samþykkt en Halldór í Pírötum sagði það liggja í loftinu hvað þyrfti að gera í þess- ari nefnd, þar á meðal að auka gegnsæi og taka til í stjórnsýsl- unni. Þá voru fulltrúar flokkanna kjörnir í nefndir og ráð á vegum borgarinnar. Sjálfstæðisflokkur- inn hafði gert samkomulag við meirihlutann sem tryggði þeim fleiri fulltrúa en þeir eiga rétt á samkvæmt lögum. Dagur B. Eggertsson tók síðan í kjölfar borgarstjórnarfundarins við lyklunum að Höfða af Jóni Gnarr en Jón sagði Höfða opinbert húsnæði borgarstjórans í Reykjavík. Dagur sagði frá því að Jón hefði stungið upp á því að lyklaskipt- in færu frekar fram í Höfða en á skrifstofu borgarstjóra í ráðhús- inu, eins og venjan er, þar sem Jóni þætti það hátíðlegra. Við lyklaaf- hendinguna varð Jóni það að orði að erfitt væri að koma lyklinum að á lyklakippu, en hann er fremur stór. fanney@frettabladid.is Dagur tók við lyklavöldum Kosið var í embætti í nýrri borgarstjórn Reykjavíkur sem hélt sinn fyrsta fund í gær. Dagur B. Eggertsson, nýr borgarstjóri, þakkaði Jóni Gnarr, fráfarandi borgarstjóra, fyrir störf hans en Jón afhenti Degi lyklana að Höfða í kjölfar fundarins. Minnihlutinn gagnrýndi hvernig staðið væri að skipan í nýtt stjórnkerfis- og lýðræðisráð. ■ Sjálfstæðisflokkurinn gerði samkomulag við meirihlutann í borgar- stjórn þannig að flokkurinn fær fjórtán fulltrúum fleiri í nefndir og ráð en hann hefði átt rétt á samkvæmt lögum. Aðeins er um að ræða fimm manna ráð eða nefndir. ■ Sjálfstæðisflokkurinn fær aukafulltrúa í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur til tveggja ára en að þeim liðnum flyst fulltrúinn yfir til meirihlutans. ■ Þá fær Sjálfstæðisflokkurinn aukafulltrúa í stjórn Faxaflóahafna og heilbrigðisnefnd að tveimur árum liðnum en fulltrúar meirihlutans munu skipa þau sæti fyrstu tvö árin. ■ Þá verður barnaverndarnefnd óbreytt frá því sem verið hefur. ■ Að auki fær Sjálfstæðisflokkurinn aukafulltrúa í fimm hverfisráðum af tíu. Samkomulag D-, S-, Þ- og Æ-lista 12 einstaklingar eru skráðir í Félag íslenskra tryggingarstærðfræðinga. Eldri félagsmenn eru tíu talsins, en aukafélagar eru tveir. VEIÐI Stangaveiðifélag Reykja- víkur og Veiðifélag Hítarár gengu á laugardag frá nýjum samningi um leigu á veiðirétti í Hítará á árbakkanum. Hítará verður því áfram hjá SVFR næstu árin. Hítará hefur verið vinsæl lax- veiðiá á meðal félagsmanna SVFR. Í tilkynningu segir SVFR ánægjulegt að samstarf félag- anna haldi áfram og félagsmenn geti veitt í Hítará næstu árin. - fb Undirrituðu samning: Hítará áfram hjá SVFR STJÓRNMÁL „Framsóknarflokkur- inn þarf að gera hreint fyrir sínum dyrum áður en við getum starfað með honum. Flokkurinn er óstjórntækur,“ segir Dagur B. Eggertsson, nýkjörinn borgarstjóri Reykjavíkur. Meirihluti Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata bauð Sjálfstæðisflokknum að fá fjór- tán aukasæti í ráðum og nefndum en Framsóknarflokkurinn fékk ekki sama boð. Ástæðan er málflutningur borgarfulltrúa Framsóknar um mús- lima og úthlutun lóðar undir mosku. „Framsókn fór yfir ákveðna línu í kosningabaráttunni og hefur ekki komið til baka, boltinn er hjá þeim,“ segir S. Björn Blöndal, formaður borg- arráðs og oddviti Bjartrar framtíðar. Sveinbjörg Birna Sveinbjörns dóttir, oddviti Framsóknar, segir í sam- tali við fréttastofu að þær Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir, borgarfulltrúi flokksins, hafi nú þegar útskýrt hvernig á þessu stóð öllu saman, þær muni ekkert draga til baka. Hún segir ummæli um að þær séu ekki stjórn- tækar dæma sig sjálf. „Þeir sem fylgdust með borgarstjórnarfund- inum í dag sáu að þarna fara sterkir borgarfulltrúar Framsóknar sem átta sig á hlutverki sínu sem eftirlitsaðila,“ segir Sveinbjörg. Halldór Halldórsson, oddviti Sjálf- stæðisflokksins, segir það hafa verið mat flokksins að nýta sér samkomu- lagið sem bauðst til að fá fleiri fulltrúa og verða þannig öflugri. Hann vill lítið tjá sig um stöðu Framsóknarflokksins. „Vissulega var margt undarlegt sem tengdist þessari moskuumræðu, það skal viðurkennt,“ segir Halldór. - fbj Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur vill ekki starfa að neinu leyti með Framsóknarflokknum: Segja Framsóknarflokkinn óstjórntækan JAFNRÉTTISMÁL Jafnréttisráð- herrum Norðurlandanna, þar á meðal Eygló Harðardóttur, voru formlega afhentar lokaniðurstöður jafnréttisráðstefnunnar Nordiskt Forum á lokahátíð ráðstefnunnar á sunnudag. Í þessu lokaskjali eru ráðherr- arnir hvattir til að virða sátt- málann sem ríkisstjórnir Norð- urlandanna skrifuðu undir á Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna í Peking 1995. Þar lofuðu ríkisstjórnir landanna að virða kynjasjónarmið í öllu sínu starfi og ákvörðunum. Norræna kvenna- hreyfingin setur fram í lokaskjali Nordiskt Forum 63 kröfur sem ríkisstjórnir Norðurlandanna eru hvattar til að bregðast við. - fb Ráðstefnu lauk á sunnudag: Ráðherrar fengu 63 kröfur Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá GLEÐILEGA HÁTÍÐ! Nú verða íbúar Suður- og Vesturlands að raula: „Mér finnst rigningin góð, lalalalala“ til að koma sér alvöru þjóðhátíðarskap en það bætir í úrkomuna eftir því sem líður á daginn. Rjómablíða annars staðar fram eftir degi. 12° 7 m/s 12° 7 m/s 14° 6 m/s 12° 5 m/s 5-10 m/s. 3-8 m/s. Gildistími korta er um hádegi 30° 30° 20° 19° 19° 17° 21° 20° 20° 24° 20° 26° 26° 31° 24° 21° 22° 22° 17° 3 m/s 14° 5 m/s 21° 4 m/s 15° 4 m/s 18° 5 m/s 17° 6 m/s 8° 5 m/s 12° 12° 10° 8° 18° 14° 15° 12° 14° 13° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur FIMMTUDAGUR Á MORGUN STANDA VIÐ ORÐ SÍN Svein- björg Birna segir Framsókn ekki ætla að draga neitt til baka. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR EYGLÓ HARÐARDÓTTIR Jafnréttisráð- herrar Norðurlandanna fengu afhentar 63 kröfur varðandi kynjasjónamið. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FJÖGURRA FLOKKA MEIRIHLUTI Tekist var á um flugvöllinn við lok fyrsta borgarstjórnarfundarins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.