Fréttablaðið - 17.06.2014, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 17.06.2014, Blaðsíða 26
FÓLK|HEILSA SINNEP ER HOLLT Gísli Örn Bragason hefur stundað rathlaup síðustu fimm árin en hann er einn stofnenda Rathlaupsfélags- ins Heklu og er dagskrárstjóri þess. „Við félagi minn kynnt- umst íþróttinni í Finnlandi fyrir nokkrum árum og fluttum þetta með okkur heim. Við höfðum verið að skipuleggja ratkeppnir í skátunum og það þróaðist út í að við stofnuðum Rathlaupsfélagið.“ HREYFING OG ÚTIVIST Rathlaup er í stuttu máli hlaup úti í náttúrunni þar sem á að finna pósta sem merktir eru inn á kort. „Þetta er eins og ratleikur í grunninn þar sem hlauparinn þarf að finna fljótlegustu leiðina sem hægt er að fara. Sá sem kemur fyrstur í mark eftir að hafa fundið alla póstana vinnur. Eina hjálpartækið er áttaviti og kortið sem er mjög nákvæmt og sýnir allt sem hefur áhrif á rötun hlauparans eins og þétt- leika skógar, steina, holur og staðsetningu póstanna. Þetta er mjög skemmtileg íþrótt sem sam- einar margt af því sem ég leita eftir í áhugamáli. Það er hreyfing í þessu og það er hægt að vera úti í náttúrunni. Svo er rötunin skemmtilegur þáttur í þessu sem gefur hlaupinu og útiverunni tilgang, maður er að gera eitt- hvað annað en bara að hlaupa og gleymir sér í því. Allt í einu er fólk búið að hlaupa marga kíló- metra án þess að taka eftir því, svo er ágætis afsökun að skoða kortið ef fólk verður þreytt,“ segir Gísli og hlær. FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Rathlaup er íþrótt fyrir alla fjöl- skylduna og á stærri mótum og keppnum er keppendum boðið að taka þátt í mörgum flokkum eftir aldri, kyni, áhuga og getu hvers og eins. „Rathlaup gerir miklar kröfur til hlauparans enda þarf hann að einbeita sér að því að rata rétta leið á sama tíma og hann fer eins hratt og hægt er yfir svæði sem getur verið honum algjörlega ókunnugt. Keppendur geta tekið þátt á ólíkum forsendum enda ekki nóg að vera fljótur að hlaupa heldur þarf að æfa rötun og kortalestur jafnóðum og þrek, úthald og tækni er æfð. Þegar ég var að byrja í þessu lenti ég í ýmsu skrautlegu þegar ég tók rangar ákvarðanir og ætlaði að stytta mér leið. Til dæmis var ég á móti í útlöndum og þurfti að fara yfir læk sem ég hélt að væri grunnur en svo endaði ég á að þurfa að synda yfir hann.“ OPNAR ÆFINGAR Opnar æfingar eru vikulega á sumrin hjá Rathlaupsfélaginu og getur fólk sem áhuga hefur á að prófa íþróttina mætt og þar eru félagar í Heklu tilbúnir að útskýra íþróttina og hjálpa fólki við að komast af stað. „Við hitt- umst á fimmtudögum, ýmist á Klambratúni, í Elliðaárdal eða í Öskjuhlíð. Dagskrána má nálgast á heimasíðunni okkar eða á Facebook. Þá erum við búin að setja upp brautir sem henta flest- um, einfaldari brautir sem henta börnum og flóknari brautir fyrir vana hlaupara. Við erum með sérstakt barnanámskeið í gangi núna sem hægt er að vera með í. Það verður eitt hlaup annað kvöld og svo tvö í næstu viku.“ Nánari upplýsingar um rat- hlaup má finna á rathlaup.is og á Facebook undir Rathlaupsfélagið Hekla. ■ liljabjork@365.is Í SKÓGINUM Gísli á ferð í rathlaupskeppni í Noregi. Þar er mikið um brattar hlíðar og erfitt að hlaupa um skógana. Á FERÐ Gísli á haustmóti í Eistlandi. Skógurinn þar er aðeins hærra en hér á landi. „Þetta var fyrsta alvöru mótið sem ég tók þátt í. Það gekk vel til byrja með en á öðrum degi klúðraði ég einum pósti þannig að ég endaði í síðasta sæti.“ SKIPULEGGJENDUR Hópurinn sem skipu- lagði alþjóðlegt rat- hlaupsmót sem fram fór í fyrra. Mótið er árlegt og fer aftur fram í lok júní. ÍÞRÓTT FYRIR ALLA HREYFING Rathlaup er íþrótt sem felur í sér meðal annars hreyfingu, skemmtun, útivist og samveru. Það hentar bæði börnum og vönum hlaupurum. ■ GOTT Sinnep er hollara en margan grunar. Það inniheldur efni sem hefur góð áhrif á vöðvaupp- byggingu líkamans og getur þar af leiðandi gert fólk sterkara. Auk þess eru trefjar í sinnepi, járn, magnesíum, kalk, prótín, sink og ómega-3. Hægt er að bragð- bæta mat með sinnepi en einnig er gott að nota það í sýrðan rjóma til að gera góða kalda sósu. Einnig er gott að leggja rúsínur í bleyti yfir nótt í smá koníaki, hakka þær síðan með töfrasprota og setja saman við gott sinnep. Eru flugur, flær eða maurar að ergja þig og bíta? áhrifaríkur og án allra eiturefna. Allt að 8 tíma virkni. Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og hjá N1 www.gengurvel.is Sumar 19 22. ágúst - 2. september Klettafjöllin í Kanada Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Hin stórbrotnu Klettafjöll skarta sínu fegursta á þessum árstíma og taka á móti okkur með fjölbreyttu dýra- og plöntulífi, ásamt áhugaverðum áfangastöðum og tignarlegum þjóðgörðum. Heimsækjum m.a. fjallabæinn Banff, Kootenay þjóðgarðinn, Maligne dal og Jasper þjóðgarðinn. Verð: 309.900 kr. á mann í tvíbýli. Sp ör e hf . Fararstjóri: Jónas Þór

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.