Fréttablaðið - 17.06.2014, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 17.06.2014, Blaðsíða 6
17. júní 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6 * 1. Hvaða sveitarfélag stefnir að því að verða plastpokalaust? 2. Hver er höfundur ljóðabókarinnar Velúr? 3. Í hvaða landi vilja níu skólastjórar ekki sjálfstæði? SVÖR: 1. Stykkishólmur. 2. Þórdís Gísladóttir. 3. Skotlandi. SKOTLAND Skoski þjóðarflokkur- inn, sem fer með völd í heimastjórn Skotlands, hefur birt fyrstu drög að stjórnarskrá sjálfstæðs skosks ríkis. Skotar greiða í haust atkvæði um það hvort lýsa eigi yfir sjálfstæði Skotlands. Verði það samþykkt er stefnt að sjálfstæði í mars árið 2016. Samkvæmt stjórnarskrár drög- unum er gert ráð fyrir því að Breta- drottning verði áfram þjóðhöfðingi Skotlands. Það var Nicola Sturgeon, að- stoðar forsætisráðherra Skotlands, sem kynnti drögin í gær. Þessi drög eru einungis sögð vera eins konar beinagrind væntanlegrar stjórnar- skrár, en hún eigi að fá á sig fyllri mynd í umræðum næstu mánuðina. Fyrsta grein stjórnarskrárdrag- anna hljóðar svo: „Í Skotlandi er fólkið fullvalda.“ Í þeirri næstu segir: „Í Skotlandi hefur fólkið full- veldisrétt til sjálfsákvörð unar og valfrelsi um það með hvaða hætti ríki þess á að vera skipað og hvers konar stjórnarháttum fólk á að lúta.“ - gb Skoski þjóðarflokkurinn hefur birt drög að stjórnarskrá sjálfstæðs Skotlands: Vilja Bretadrottningu áfram FLUGSLYS „Það er ekkert við þessa skýrslu að athuga,“ segir frétta- maðurinn Ómar Ragnarsson. Rannsóknarnefnd flugslysa hefur lokið skýrslugerð vegna nauðlendingar Ómars á vélinni TF-TAL fyrir nákvæmlega ári. Óhappið varð á flugi frá Sauð- árflugvelli, skammt frá Kára- hnjúka stíflu norðan Vatnajökuls, á leið til Hvolsvallar. Ómar hafði nýlokið við að opna flugvöll sinn norðan við Brúarjökul. Í tæplega 2.500 feta hæð vestan Sultartangalóns missti hreyfill vélarinnar skyndilega afl og nauðlenti Ómar henni við bakka Sultartangalóns. Hann slasaðist ekki við lendinguna. Rannsóknin leiddi í ljós að vinstri elds neytis geymir TF-TAL hafði tæmst á flugi með þeim afleið- ingum að hreyfillinn missti afl. Í kjöl farið hafði Ómar ekki stað- ið rétt að endurræsingu hreyfils eftir að hafa skipt yfir á hægri elds neytis geymi. „Þetta kom mér svo sem ekkert á óvart. Þetta eiginlega lá fyrir alveg strax,“ segir Ómar, spurður út í niðurstöðuna. „Þetta var svo stuttur tími. Ég kláraði bara ekki endurræsinguna sem ég ætlaði mér að gera. Þetta eru tvær pumpur og ég hefði átt að byrja á stóru pumpunni strax. Þetta hefur aldrei komið fyrir mig áður, við það að skipta um tank, að hreyfillinn komi ekki inn aftur,“ segir Ómar en þetta var fyrsta óhapp hans í 26 ár. - fb Rannsóknarnefnd flugslysa hefur lokið skýrslu vegna nauðlendingar Ómars Ragnarssonar í fyrra: Tókst ekki að endurræsa hreyfil vélarinnar ÓMAR RAGNARSSON Ómar stóð ekki rétt að endurræsingu hreyfils TF-TAL. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN NICOLA STURGEON OG ALEX SALMOND Aðstoðarforsætisráðherra og forsætisráðherra Skotlands á flokks- þingi Skoska þjóðarflokksins í apríl síðastliðnum. NORDICPHOTOS/AFP KJARAMÁL „Það er að minnsta kosti enginn gangur,“ sagði Maríus Sigur jónsson, vara formaður Flugvirkjafélags Íslands, á níunda tímanum í gærkvöldi en þá sátu samninganefnd flugvirkja og fulltrúar Ice- landair enn á fundi hjá Ríkis sáttasemjara. Bein afskipti stjórnvalda gætu komið í veg fyrir ótímabundið verkfall flugvirkja sem er fyrirhugað á fimmtudag- inn. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra getur kallað saman þing með sólarhringsfyrir- vara í því skyni að setja lög á verk- fallið. Fari svo að samningar takist ekki hjá Ríkissáttasemjara yrði hún því að kalla þingið saman í dag til að koma í veg fyrir að flugvirkjar geti lagt niður störf á fimmtudag. Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Icelandair, sagði að ekki væri búið að ákveða að fella niður flug fari svo að verkfallið hefjist á fimmtudag. „Við erum í þessum gír að fara bara í gegnum daginn,“ sagði hann. Sólarhringsverkfall flugvirkja hófst klukkan sex í gær- morgun. Verkfallið hafði áhrif á um tólf þúsund far- þega Icelandair en alls var sextíu og fimm flug ferðum aflýst með tilheyrandi óþægindum. Aðalfundur Ferðamála- samtaka Íslands var hald- inn í Reykjavík í gær. Í ályktun samtakanna kom fram að þau harmi þá stöðu sem ferðaþjónustan hafi ítrekað verið sett í vegna verkfallsaðgerða og stöðvunar á flugi hjá stærsta flugfélagi landsins. Áhrif þessara aðgerða komi fram um allt land og hafi skaðað atvinnugreinina. Skor- aði fundurinn á viðsemjendur að ná sáttum svo eðlilegt ástand skapist sem fyrst hjá þessari mikilvægustu atvinnugrein landsins. „Afþreyingaraðilar úti um allt land finna verulega fyrir þessu,“ segir Ásbjörn Björgvinsson, for- maður samtakanna, aðspurður. „Okkur hrýs hugur við því ef það verður ótímabundið verkfall sem gæti tekið einhverja daga eða vikur að leysa. Þá hleypur skað- inn á milljörðum. Þessi atvinnu- grein er að velta gríðarlegum upp- hæðum. Menn verða að taka tillit til þess hver hliðaráhrifin af svona að- gerðum verða um allt land,“ segir hann og vill aðkomu stjórnvalda að deilunni. „Það er lágmarkskrafa að stjórn- völd komi að þessu og leysi ef þetta verður komið í hnút. Þetta eru almannahagsmunir og á þeim grundvelli verður að grípa inn í þegar svona er. Auðvitað vonumst við til að menn beri gæfu til að ná lendingu í þessum málum en þessi litli hópur getur sett þetta algerlega á hliðina hjá okkur.“ freyr@frettabladid.is Ráðherra yrði að kalla saman þing í dag Flugvirkjar og Icelandair funduðu hjá Ríkissáttasemjara í gær án árangurs. Ótíma- bundið verkfall á að hefjast á fimmtudag. Ferðamálasamtök Íslands vilja inngrip stjórnvalda. Innanríkisáðherra getur kallað saman þing með sólarhringsfyrirvara. PAKISTAN, AP Sprengjum var varpað úr pakistönskum herþotum í gær í norðvesturhluta landsins, þar sem talibanahreyfingin hefur hreiðrað um sig. Pakistanska stjórnin segist hafa gefist upp á viðræðum við talibana. Stjórnin og herinn hafa árum saman setið aðgerðarlítil hjá meðan talibanar, bæði heimamenn og erlendir, hafa þjálfað upp herlið og gert árásir á andstæðinga sína, bæði innan Pakistans og handan landamær- anna í Afganistan. Þolinmæði Pakistana virðist hafa þrotið eftir að talibanar gerðu árás á stærsta alþjóðaflugvöll landsins fyrir stuttu. Íbúar héraðsins hafa margir flúið heimahagana á síðustu dögum og vikum, vegna fyrri átaka og þess að allt virðist stefna í harðari átök. - gb Pakistansher ræðst gegn talibönum í norðvesturhlutanum: Hafa gefist upp á viðræðum AÐ LOKNUM AÐGERÐUM Pakistanskt herlið á ferð. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VIÐ SAMNINGABORÐIÐ Samninganefnd flugvirkja, með formanninn Maríus Sigurjónsson hægra megin, við samningaborðið hjá Ríkissáttasemjara í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Það er lágmarks- krafa að stjórnvöld komi að þessu og leysi ef þetta verður komið í hnút. Ásbjörn Björgvinsson, formaður Ferðamálasamtaka Íslands. HANNA BIRNA KRISTJÁNS- DÓTTIR VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.