Fréttablaðið - 17.06.2014, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 17.06.2014, Blaðsíða 42
17. júní 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 38 Ég er mjög sár og svekktur út í mitt upp- eldisfélag og átta mig eiginlega ekki á þessum vinnubrögðum. Kári Kristján Kristjánsson HANDBOLTI Patrekur Jóhannesson og læri- sveinar í austurríska landsliðinu í handbolta tryggðu sér sæti á HM í Katar með sigri á Noregi. Patrekur var ansi brattur þegar Fréttablaðið náði tali af honum. „Þetta er auðvitað ótrúlegt afrek og hefur verið á forsíðum blaðanna en það hefur fallið örlítið í skuggann. Austurríkismenn eru meira fyrir skíðaíþróttir og fótbolta en auðvitað fylgdi þessu mikil gleði. Það voru fáir sem áttu von á því að við myndum vinna,“ sagði Patrekur. Undir stjórn Patreks komst austurríska liðið á EM í janúar og nú HM í Katar. „Noregur hefur úr að velja gríðarlegum fjölda af handboltamönnum. Noregur vann Þýskaland fyrir stuttu svo við vissum fyrir fram að þetta yrði erfitt verkefni. Ég reyndi bara strax að telja mönnum trú um að þetta væri mögulegt og við unnum mjög mikið í andlega þættinum,“ sagði Patrekur. Austur- ríska liðið naut aðstoðar Jóhanns Inga Gunnarssonar í aðdraganda leiksins og var Patrekur honum gríðarlega þakklátur. „Ég er heppinn að hann vann með föður mínum í gamla daga og við höldum enn góðu sambandi. Í æfingabúðunum á Íslandi var aðstoð hans algjörlega ómetanleg. Vinnu- fundirnir með honum áttu stóran þátt í þessum sigri.“ Patrekur viðurkenndi að það hefði komið honum á óvart hversu mikilvægur sálfræði- legi hlutinn var. „Síðustu eitt, tvö árin hef ég unnið mjög markvisst með Jóhanni. Þetta byrjaði hægt og rólega en í dag er hann eiginlega þjálf- arinn minn. Það er alltaf verið að tala um að andlegi hlutinn sé 80 prósent en hversu mikið og hvernig æfirðu hann? Ég finn mikla breytingu á mér hvernig ég vinn mína vinnu eftir að hafa unnið með Jóhanni,“ sagði Pat- rekur sem var einfaldlega heillaður. „Það er hægt að æfa og auka snerpuna eða hvað sem er í handbolta en þetta snýst alltaf um hvernig þú nærð því besta út úr hverjum og einum. Hvernig þú nálgast leikmenn því það er engir tveir eins. Þetta hefur vakið athygli mína, ég les mikið af bókum og er búinn að skrá mig í meistaranám í íþrótta- sálfræði. Þetta heillar mig gríðarlega mikið. Þótt það gangi vel núna þá vil ég reyna að læra. Það er aldrei nein pása frá lær- dómnum,“ sagði Patrekur kíminn en hann ætlar að beita þessu á Haukaliðið einnig. „Hver er skiptingin hvað þú æfir hvorn hluta mikið, líkamlega og andlega? Það er eitthvað sem ég ætla að breyta hjá Haukum. Við byrjuðum á þessu í vetur og áttum frá- bært tímabil, unnum þrjá titla af fjórum og vorum nálægt þeim síðasta.“ Patrekur var jarðbundinn þegar gengið var á hann um markmið fyrir mótið. Hand- bolti er ekki ein af stærstu íþróttunum í Austurríki og ekki margir iðkendur. „Að komast í milliriðlana væri auð- vitað frábær árangur. Það sem er vanda- málið í Austurríki er lítið úrval leikmanna í ákveðnum stöðum. Á línunni er ég með tvo leikmenn, annar þeirra er hálf-atvinnu maður sem er einnig lögfræðingur og ég er ekki viss hvert framhaldið verður hjá honum. Ef Robbi Gunn væri Austurríkismaður myndi ég stefna á eitt af efstu sex sætunum,“ sagði Patrekur. Hann gældi þó við hugmyndina um að línumaðurinn myndi láta slag standa fyrst mótið væri haldið í Katar. „Handboltaáhuginn er einfaldlega ekki nægilegur í Austurríki. Liðin í austurrísku deildinni eru oft með nokkra útlendinga sem gerir landsliðsþjálfaranum enn þá erfiðara fyrir. Ég hef bara úr einhverjum 25 leik- mönnum að velja sem gerir þetta enn magn- aðra afrek. Maður er ekki enn búinn að ná þessu, sérstaklega þegar maður lítur til þess hvaða þjóðir komust ekki áfram.“ - kpt Fáir sem áttu von á því að við myndum vinna Noreg Patrekur Jóhannesson er þakklátur Jóhanni Inga Gunnarssyni fyrir sálfræðilega aðstoð hans við undirbúning austurríska liðsins. HUGFANGINN Patrekur er hugfanginn af áhrifum sálfræði á austurríska landsliðið. Hann ætlar að yfir- færa aðferðirnar á Haukaliðið. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP HANDBOLTI „Þetta er súrsæt stund í lífinu hjá mér. Að fá þessi góðu tíðindi með heilsuna og vera svo stunginn í bakið af uppeldis- félaginu. Það er grátlegt,“ segir Kári Kristján Kristjánsson hand- boltamaður en hann veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Samningur Kára við danska félagið Bjerringbro-Silkeborg er að renna út og hann er búinn að fjárfesta í húsi í heimabæ sínum, Vestmannaeyjum, enda hafði hann hug á að koma heim og spila fyrir uppeldisfélag sitt. Ekkert verður af því þar sem handknattleiksdeild ÍBV ætlar ekki að semja við Kára, sem kom leikmanninum í opna skjöldu enda taldi hann sig hafa komist að samkomulagi við ÍBV um samning. Æxlið ekki nálægt líffærum Kári er staddur úti í Danmörku þessa dagana. Hann fékk þau tíð- indi fyrir nokkrum dögum að æxli í baki hans væri góðkynja. Þetta er í annað sinn sem Kári fær æxli í bakið. Og það sem meira er, línu- maðurinn sterki þarf ekki að fara í aðgerð. „Þetta æxli er af sama meiði og í fyrra skiptið. Ég taldi það vera alveg klárt að ég færi í aðgerð enda er æxlið nokkuð stórt. Það er aftur á móti ekki nálægt neinum líffærum og er því ekkert að skaða mig,“ segir Kári en læknar segja að hann eigi vel að geta lifað með þessu æxli svo lengi sem það stækkar ekki frekar. Eðlilega verður svo fylgst vel með æxlinu í framhaldinu. „Það er vel þess virði að taka þessa áhættu enda hefur fólk lifað með svona æxli. Mér líður hvorki betur né verr en áður og þetta truflar mig því ekkert sérstaklega. Ég er í rauninni fær í flestan sjó.“ Skrítinn fundur Eyjamaðurinn þurfti að bíða í margar vikur eftir niðurstöðu rannsókna og það tók eðlilega á hann að vera í óvissu lengi. „Þetta var ofboðslega skrítinn fundur því ég átti aldrei von á svona fundi. Fyrst fæ ég að vita að æxlið sé góðkynja sem var því- líkur léttir að heyra. Það var við- bjóður að vera með þetta á bak við eyrað í margar vikur. Að fá svo tíð- indin að ekki þyrfti að skera kom mér svo gríðarlega á óvart. Maður labbaði auðvitað himinlifandi út af fundinum.“ Aðeins nokkrum dögum síðar fékk Kári Kristján ekki jafn góð tíðindi. Hann hafði verið í samn- ingaviðræðum við ÍBV síðan í byrjun maí og taldi það mál vera í höfn. Svo reyndist ekki vera. „Viðræðurnar við ÍBV voru komnar á það stig að flugstjórinn var búinn að tilkynna að vélinni yrði lent eftir korter. Þá kom stopp í viðræðurnar sem mér fannst furðulegt, enda voru menn búnir að sættast á stoðir samningsins og í raun bara fínpússning eftir. Ég skildi ekki hvað var eiginlega í gangi og hafði því samband við þá aftur. Þá er mér tilkynnt að þetta gangi ekki upp,“ segir Kári en hann fékk þau tíðindi um nýliðna helgi. Sár og svekktur út í ÍBV „Stjórnin vissi algjörlega um heilsufar mitt og samningurinn átti þá ekki að taka gildi fyrr en ég væri búinn að ná mér góðum af veikindunum. Fyrir mér var þetta allt klárt og ég farinn að undir- búa flutning til Eyja. Þá virðist vera einhver misskilningur innan stjórnar félagsins þar sem menn virðast ekki kannast við allar upplýsingar málsins. Það kom flatt upp á mig því ég er með öll okkar samskipti á tölvupósti. Við vorum búnir að sættast á tölur og bara smáatriði eftir. Þetta kom því algjörlega flatt upp á mig þegar þeir segjast ekki geta gert þetta.“ Eyjamaðurinn er mjög undrandi og svekktur yfir vinnubrögðum handknattleiksdeildarinnar. „Ég er mjög sár og svekktur út í upp- eldisfélag mitt og átta mig eigin- lega ekki á þessum vinnubrögðum. Ég var mjög spenntur fyrir því að koma heim í mitt félag og taka þátt í þessum skemmtilega uppgangi sem er þar í gangi. Mér finnst ég hafa verið svikinn af uppeldis- félaginu og er svekktur með mína menn.“ henry@frettabladid.is Svikinn af uppeldisfélaginu Landsliðsmaðurinn Kári Kristján Kristjánsson fékk góð og slæm tíðindi á síðustu dögum. Hann fékk staðfest að æxlið í baki hans sé góðkynja og að hann þurfi ekki að fara í aðgerð. Nokkru síðar tilkynnti uppeldisfélag hans, ÍBV, að það gæti ekki samið við hann en Kári taldi að samningur við ÍBV væri í höfn. FRAMTÍÐIN ÓRÁÐIN Kári Kristján er án félags eftir að ÍBV dró í land með samningstilboð til hans. Kári er að flytja heim til Íslands og líklegt að ófá félögin í efstu deild vilji fá landsliðsmanninn í sínar raðir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FORMÚLA 1 Ökuþórinn Michael Schumacher hefur yfirgefið sjúkrahús í Grenoble og er vakn- aður úr dái. Fjölskylda Þjóðverj- ans þakkar öllum þeim sem hafa stutt við bakið á þeim undanfarið hálft ár. BBC greinir frá. Þjóðverjinn, 45 ára, verður áfram í meðhöndlun á ónefndri sjúkrastofnun, kemur fram í til- kynningu frá fjölskyldunni. Schu- macher slasaðist alvarlega á höfði á skíðum í frönsku Ölpunum þann 29. desember. Ekkert kemur fram um ástand Schumachers annað en að hann sé vaknaður úr dái. Fjölskylda Schumachers þakkar öllum þeim sem sent hafa skilaboð og bataóskir á þessum erfiðu tímum. „Við erum sannfærð um að það hjálpaði honum,“ segir í tilkynn- ingunni. Fjölskyldan hrósaði einnig sjúkrastarfsmönnum í Suðaustur- Frakklandi. Læknar hafa haldið Schumacher sofandi til að minnka bólgur í heila Þjóð verjans. „Michael hefur yfirgefið CHU Grenoble til að halda áfram umfangsmikilli endurhæfingu. Hann er vaknaður úr dái,“ sagði Sabine Kehm, talsmaður Schu- machers, fyrir hönd fjölskyld- unnar í dag. „Við óskum eftir því að fram- hald endurhæfingar hans geti farið fram fjarri kastljósi fjöl- miðla,“ sagði Kehm. Ekki kom fram á hvaða sjúkrastofnun Þjóð- verjinn verður vistaður. Schumacher hætti keppni í Formúlu 1 árið 2012 eftir nítján ára feril. Hann varð tvívegis heimsmeistari með Benetton, árið 1994 og 1995, áður en hann skipti yfir í Ferrari. Hann varð heimsmeistari fimm ár í röð frá árinu 2000. - ktd Schumacher er vaknaður GÓÐ TÍÐINDI Schumacher virðist vera á réttri leið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.